Heimilisritið - 01.07.1945, Side 54
Sijörnuspáin *
i
Hvenær er íæðingardagur þinn? Ef
hann er ó tímabilinu 22. júlí—22. ágúst
(báðir dagar meðtaldir), þá ertu í heim-
inn borinn undir stjömumerki ljónsins.
Hér geturðu lesið, hvað stjömuspá-
mennirnir hafa að segja þeim, sem
fæðst hafa á þessum tima árs.
22. jlílí - 22. ágiíst +
MENN, fæddir á þessum tíma
,árs, eru undir áhrifum frá
stjörnumerki ljónsins. Þeir eru
fæddir forustumenn og á þá er
venjulega litið sem sjálfkjörna
til að stjórna og leiðbeina. —
Einna mikilsverðastur er sá
hæfileiki þeirra að geta hug-
hreyst og uppörvað þá kunn-
uga og ókunnuga, sem þeir kom-
ast í samband við, og ef þeir
læra að nýta þessa eiginleika
sína á réttan hátt er líklegt að
þeim verði falin áhrifamikil og
ábyrgðarmikil störf. Það er
ekki ósennilegt, að þeir vinni
ómetanleg endurreisnarstörf í
þágu þjóðfélagsins, þegar mik-
ið er í húfi.
Eina hættan, sem getur verið
í vegi þessara manna á frama-
leið þeirra, er sú, að þeim er
hætt við að gleyma því, að það
eru ekki allir jafn atorkusamir
og hugmiklir og þeir sjálfir. —
Ekki er heldur ólíklegt, að þeir
villist á þeim, sem eru áhuga-
menn vegna eigin hagsmuna og
hinna, er bera alþjóð fyrir
brjósti. Þá gæti svo farið að
þeir :yrðu verkfæri í höndum
óvandaðra manna, er væru að
nota hugsjónamál til að hlaða
undir sig. Allir, sem fæddir eru
undir ljónsmerkinu, þurfa sér-
staklega að vera á varðbergi
fyrir slíkum mönnum — mönn-
um, sem alltaf eru á sama máli
og síðasti ræðumaður, þótt
hann hafi á röngu að standa, til
þess eins að koma sér í mjúk-
inn hjá honum.
52
HEIMILISRITIÐ