Heimilisritið - 01.04.1955, Page 11

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 11
11. Segirðu „Ég ætla að fara að fá mér nýjan bíl“, í staðinn fyrir ,,við“ og ,,okkur“? 12. Tekurðu hana burt úr hópi góðkunningja hennar með orðum eins og: „Þú virðist aldrei geta munað það, að ég þurfi að fara snemma á fæt- ur?“? 13. Spyrðu sem svo: „Því hafð- irðu engan tíma — þú, sem ekkert hefur að gera allan daginn?“? 14. Kemurðu heim með „menn af skrifstofunni" án nokkurs fyrirvara? 15. Gerirðu athugasemdir eins og þessar: ,,Ég gæti haldið þetta hús eins vel og jafnvel bet- ur fyrir helminginn af þeim peningum, sem þú þarft til þess“? — „Ef ég hagaði verzl- unarmálum mínum eins lak- lega og þú stjórnar þessu húsi —“ — „Ef ég skýrði þetta fyrir þér, myndirðu ekki skilja hætishót11? 16. Gleymirðu afmælisdögum? 17. Eyðirðu löngum tíma í að tala um: andlegt og líkam- legt þol einkaritarans þíns? — Þær, sem þú varst skotinn í fyrir 3|öngu, eða skotnar voru í þér? — Þá sorglegu staðreynd, að eiginkonur skilji ekki svo mikið sem það, hvaða þýðingu ein reykjapípa geti haft fyrir eiginmann? 18. Ertu í varnaraðstöðu gagn- vart tengdamóður þinni? 19. Segirðu við konuna þína, að sparifötin hennar geri hana óeðlilega feita, þegar þið er- uð í þann veg að fara að heimsækja kunningjana? 20. Hristirðu sígarettuösku nið- ur á gólfteppið með þeirri afsökun, að hún komi í veg fyrir möl? 21. Gleymirðu að þurrka af skónum áður en þú kemur að utan? 22. Leggurðu blaut glös frá þér á húsgögnin? 23. Krefstu linnulausrar umönn- unar, þegar þú ert heimavið með kvef? 24. Skilurðu eftir opnar bækur, þegar þú hættir að lesa, og rexar síðan út af því, að það sé búið að rugla þig í því, hvert þú hafir verið kom- inn? 25. Skilurðu eftir opnar skúff- ur? 26. Lýsirðu því yfir með hávaða, ef þjónninn hefur skrifað vitleysu á reikninginn? 27. Segirðu við hana, að nefið á henni glansi, einmitt í því að hún er að hrífa annan mann með þægilegri fram- komu sinni? APRÍL, 1955 9

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.