Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 12
28. Dansarðu sjaldnar við hana
en aðrar konur í samsætinu?
29. Þegar þú keraur seint heim,
gerirðu þá kröfu til heits
matar og ástúðlegrar eigin-
konu?
30. Spyrðu sem svo: „Því hef-
urðu það sama í kvöldmat
sem ég át í hádeginu?“?
31. Gefurðu skýringu á ein-
hverju með' því að rissa á
borðdúkinn?
32. Krefstu skilyrðislausrar
þagnar og bannar allar til-
lögur, þangað til þú hefur
sjálfur komizt að niðurstöðu
og tekið ákvörðun?
33. Gagnrýnirðu matinn svo
vinnukonan heyrir, þegar
gestir eru?
34. Seturðu upp grettinn tor-
tryggnissvip, þegar eitthvað
óvenjulegt er á borðum?
35. Ætlastu til, að konan þín
geti veitt fullkomnustu mót-
tökur í öllum smáatriðum,
þegar gestir koma algjörlega
á óvænt?
36. Kvartarðu undan því, að þú
sjáir ekki, hvað þú sért að
éta, þegar matborðið hefur
verið skreytt fallegum kerta-
ljósum?
37. Helgarðu sjálfum þér bað-
herbergið tímunum saman og
situr þar að lestri?
38. Skilurðu eftir rakbursta og
10
rakblöð á mundlauginni?
39. Montarðu þig af köldum
steypiböðum, og ætlastu til
þess, að konan þ:n taki þau
líka?
40. Skilurðu eftir stóra polla á
gólfinu, þegar þú hefur ver-
ið í baði?
41. Skilurðu baðhandklæðið eft-
ir á gólfinu?
42. Hnuplarðu hárgreiðunni
hennar og bleytir hana til
að greiða sjálfum þér?
43. Syngurðu fortissimo?
44. Notarðu náttjakka og nátt-
buxur sitt af hvorri sort
fremur af eigin löngun en
af nauðsyn?
45. Neyðirðu hana til að hlusta
á þig rifja upp allt, sem skeð
hefur á skrifstofunni hjá þér
yfir daginn, þegar hana lang-
ar til að fara að sofa?
46. Þegar þú kemur heim úr
veizlu starfsbræðra þinna
seint um nótt, vekurðu þá
konuna til að segja henni frá
hverju smáatriði?
47. Er þér mikið í mun að
slökkva ljósið einmitt þegar
hún er að komast að raun
um, hver sé þorparinn í
skemmtilegu leynilögreglu-
sögunni, sem hún er að lesa?
48. Verður hún að hóta eða beita
ofbeldi til að drífa þig fram
úr rúminu á morgnana?
HEIMILISRITIÐ