Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 14
16. Neyðirðu hann til að hlusta
á, hvað þú borðar samkvæmt
einhverjum ráðleggingum, og
viltu láta hann borða það
sama?
17. Talarðu tæpitungu við dýr?
Við manninn þinn?
18. Notfærirðu þér slæma heilsu
til að fá það fram, sem þú
vilt?
19. Hringirðu á skrifstofuna til
hans, til að segja honum eitt-
hvað, sem þú hefur gleymt?
20. Viltu fá álit gesta þinna á
einhverju, sem þið hjónin er-
uð ósammála um innbyrðis?
21. Talarðu í tíma og ótíma um:
Hversu hugfanginn og að-
laðandi hann hafi verið,
þegar hann var að gera
hosur sínar grænar fyrir
þér?
Heimilisáhyggjurnar?
Þekkta menn, sem þú
sjálf kannist við?
22. Talarðu um ættfólk manns-
ins þín með umburðarlyndu
brosi?
23. Glettistu við aðra menn og
gefur manninum þínum auga
til að sjá, hvernig hann taki
því?
24. Gagnrýnirðu venjur manns-
ins þíns með samanburði á
hinum ágætu venjum eigin-
manna vinkvenna þinna?
25. Grípurðu fram í fyrir hon-
um, þegar hann segir uppá-
haldssögur sínar, til þess að
slá botninn í þær fyrir hann
í flýti eða til að segja: „Nei,
það var ekki svona, góði
minn“?
26. Segirðu sögur af manninum
þínum 1 þeim tilgangi að
láta sjá, hvað þú sért gáfuð
sjálf?
• 27. Tekurðu manninn þinn úr
hópi kunningja hans með
þessum orðum, sögðum í
þjósti: „Sýnist þér nú ekki
vera kominn háttatími,
góði?“?
28. Kynnirðu hann fyrir öðrum
mönnum með því að segja:
,,Þið hljótið arínars að þekkj-
ast, því þið hafið báðir svo
gaman af golfspili"?
29. Heldurðu því fram, að kon-
ur geti eins vel kveikt eld í
eldstæðum og karlmenn?
30. Ertu fljót að leggja undir
sjálfa þig bókina, sem hann
var að koma með heim handa
sjálfum sér til að lesa?
31. Eru flibbahnapparnir hans
látnir slæðast með í þvotta-
húsið?
32. Tekurðu sjálf til í skúffun-
um hans?
33. Verðurðu æf, ef þú sérð tó-
baksösku á gólfinu?
34. Læturðu hann borga alla
þína reikninga?
12
HEIMILISRITIÐ