Heimilisritið - 01.04.1955, Page 16
RauStoppa var orSin dauðhrœdd og sat
uppi í rúminu. Hún greip um I^ocrl^ar sér.
Hvernig svo sem liún
velti málinu fyrir sér
og hegðaði sér, myndi
hún verða að svíkja.
Eftir var aðeins að
ákveða, hver það yrði.
Rauðtoppa
ÞÓTT Boukarian hefði barið
jafn mörg högg á dyrnar og á-
kveðið var, hélt Kvenna-Freddy
á skammbyssu þegar hann opn-
aði.
— Vertu ekki svona taugaó-
styrkur, Freddy! Ég gaf rétt
merki.
— En hvað um það ef menn
Antonio hefðu haft hendur í hári
þínu og neytt þig til að koma
upp um mig?
— Heldurðu að ég svíki vini
mína?
— Nei, en Antonio notar öll
ráð til að fá fólk til að tala.
14
Boukarian yppti öxlum.
— Ég fer varlega. Og veiztu
hver er hérna fyrir utan. Ung
stúlka! Hún spyr eftir þér. Hún
heitir Rauðtoppa.
Freddy varð agndofa:
— Unnusta Markúsar? Veit
hún að ég er hér?
Þegar hann hugsaði sig betur
um þótti honum það sennilegt.
Markús, sem var einn af síðustu
stórlöxunum í bófaflokki Fredd-
ys, hafði fallið fyrir kúlum An-
tonio. Flokkur Antonio fór eng-
um silkihönzkum um bráð sína,
og Freddy var eina stóra villi-
HEIMILISRITIÐ