Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 25
Margir af dýrlingum kristn-
innar lögðu persónulega stund á
lækningar, annað hvort með
djöflasæringum eða handaálagn-
ingum. Þeir héldu áfram lækn-
ingaaðferðum galdralækna frum-
stæðra manna. Þeir tóku aftur
upp þessar aðferðir, eftir að
prestar Æsculapiusar voru hætt-
ir við þær fimm hundruð árum
fyrir Krists burð, og trúarlækn-
ingar höfðu um nokkur hundruð
ára bil orðið að víkja fyrir raun-
hæfum læknisaðgerðum.
Áhuginn fyrir lækningum dýr-
linganna dvínaði smám saman,
og síðar færðist þessi starfsemi
yfir á hendur konunga í Frakk-
landi og Englandi með konungs-
snertingunni. Eftir að kóngarnir
gáfust upp við að stunda trúar-
lækningar, tóku við aðrir svik-
arar og fúskarar á borð við Val-
entine Greatrakes, Cagliostro,
Mesmer og Andrew -Jackson
Davis, og síðan Dowie, Eddy, og
Coué.
Það er ekki nema stigmunur
á aðferðum hins frumstæða
galdralæknis og Christian Sci-
ense „lesandans“. Kraftur allra
slíkra lækninga felst í trú áhang-
andanna. Ef styrkur trúarinnar
er nógu mikill, veitir aðgerðin
frið og öryggi, jafvel þótt dauð-
inn bíði á næsta leiti.
ENDIR
UR EINU í ANNAÐ
í Bikanir í Indlandi bindur prestur-
ínn hjónabandið með því að hnýta hönd
brúðguntans við kýrhala. Kýr eru heil-
agar í Indlandi. Þegar kýrin baular, er
víxlunni lokið og brúðkaupsveizlan get-
ur hafizt.
★
Á Filipseyjum er rétturinn „baketes“
talinn mesta hnossgæti. Það eru egg,
sem soðin eru rétt áður en unginn skríð-
ur út úr þeim.
★
Rómverski einvaldurinn Vitellius er
talinn vera mesti sælkeri og átvagl sem
uppi hefur verið. Hann eyddi sem svar-
ar 375.000 dollurum í mat og drykk
daglega, eða fyrir 90 milj. dollara á 8
mánuðum, sem er á annað þúsund
miljón króna. Hann át 1000 ostrur á
dag og neytti mikils af næturgalatung-
um, páfuglsheilum, hornsílalifur og því
líkum mat. Samt svelti hann móður
sína til bana, vegna þess að því hafði
verið spáð fyrir honum, að hann myndi
sitja lengur að völdum ef móðir hans
Iétist á undan honum!
*
Góður maður gcfur gaum að rótum
trésins og hlynnir vel að þeim; þá verð-
ur það gott scm upp kemur. Rótin er
bamsleg lotning, ávöxturinn er bróður-
legur kærleikur. (Kínverskt spakmteli)
*
Vilji maður fá mælikvarða á hugsana-
heim einhvers, er rétt að veita athygli
um hvað hann nennir að rökræða.
APRÍL, 1955
23