Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 27

Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 27
alvörugefin. Þess vegna verð’- urðu að ganga úr skugga um til- finningar þínar. Þú verður að fara þangað aftur. Og ef þú sit- ur við gluggann annað kvöld og bíður eftir mér eins og þú ert vanur, þá hef ég það til marks um að allt er í lagi. Hann stakk lyklunum í vas- ann.-----Já, ég skal fara þang- að, sagði hann. Morguninn eftir var dimm- við'ri og þokusúld. Hann iðrað- ist eftir að hafa lofað Jane að fara þangað. Það var aðeins kvenfólk sem gat látið sér detta í hug að hverfa aftur til fortíð- arinnar, engum fullorðnum karl- manni myndi detta slíkt í hug. Samt fann hann til ákafrar löng- unar til að sjá húsið aftur — húsið' og Castledown-skóginn. Það var í skóginum að hann hafði séð hana í fyrsta sinni, Lilly Morrison, sem fram að þeim tíma hafði verið ein af gráu skrifstofustúlkunum í fast- eignasöhmni þar sem hann vann sjálfur. Hann var aðeins tuttugu ára og átti sér eina brennandi ósk: að stofna sjálfur eigið fyrir- tæki. Hingað til hafði Lilly aðeins verið óviðskiljanlegur hluti skrif- stofunnar — þar til hann hitti hana í skóginum við Castle- down. Hann hafði komið henni á óvart. Það var góðviðriskvöld í júní og þar sem hún stóð þarna í grænum bómullarkjól með ljóst hárið' slegið um herðarnar, var hún snögglega ekki lengur ung- frú Morrison með blekklessur á fingrunum, lieldur skógargvðja með geislandi blá augu og feimn- islegt bros. Ást við fyrstu sýn? Ef til vill. Hann hafði tekið af sér skóna og vaðið út í til hennar. Sjálf hélt hún á skónum sínum í hend- inni — hlægilega hælaháum skóm sem alltaf höfðu farið í taugarnar á honum í skrifstof- unni. Það var ekkert eðlilegra en þau héldust í hendur og væðu niður lækinn, og á eftir sátu þau á lækjarbakkanum og töluðu Síunan. Hún var nýkomin til Castledown og var áfjáð í að kanna landið, og hann bauðst til að verða fylgdarmaður hennar. Þau héldu þessu áfram þang- að til langt var liðið á haust. Lilly og Mike leiddust um skóg- inn þegar gott var veð'ur og hímdu í biðröðinni framan við kvikmyndahúsið í Castledown þegar rigndi. Og haustið varð að vetri með löngum kvöldum, og þá sátu þau við arininn og létu sig dreyma um framtíðina. — Bara pínulitla íbúð þar sem ég get stoppað sokka og bakað' APRÍL, 1955 15

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.