Heimilisritið - 01.04.1955, Blaðsíða 35
Smásaga eftir
Leslie E. Gillman,
sem endar á óvæntan hátt.
Hún fjallar um óframfærinn
mann, sem á ótrúlega
skömmum tíma kveikti
bál í hvorki meira né
minna en þremur
hjörtum.
Það verður
hverjum list,
sem hann leikur
,,Rosemary,
yndið miti, ég
elst^a þig. Þú munt ávallt
verða eina þonan í Viji mínu“.
BRIAN TRAVERS lá mak-
indalega í sólskyggnisstólnum
sínum og renndi augum yfir sól-
vermda mannþyrpinguna, sem
þokaðist framhjá honum eftir
Sunwater-skemmtibrautinni. Og
þó var hugur hans enganveginn
bundin við þetta fólk. Athygli
hans öll beindist að einni ein-
ustu stúlku, þeirri, sem sat í
stólnum við hliðina á honum,
enda þótt svo liti út sem hann
veitti henni enga eftirtekt. Með
tveim leyndum augnagotum
hafði hann þó orðið þess vísari,
að þessi nágranni hans var und-
urfögur og brúnhærð — mikil
prýði fyrir kyn sitt. Ef hún not-
aðist við fegurðarlyf, gerði hún
það af snilld; svo ósvikin var á-
ferðin á brúnu hörundi hennar,
að ef notað hefði verið innihald
flösku til að kalla hana fram,
hafði þeirri notkun verið beitt af
ýtrustu varfærni.
Brian bölvaði óframfærni
sinni í viðurvist kvenna og braut
heilann um það, hvernig hann
APRÍL, 1955
33