Heimilisritið - 01.04.1955, Page 36

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 36
gæti á heppilegan hátt byrjað samtal. Áður fyrr var það nefni- lega venjan, að stúlkur misstu vasaklútinn sinn á hentugu augnabliki, en nú á tímum urðu mennimir að ganga beint til verks, án þess að geta gert sér vonir um nokkum forleik. Nú, en — eins og á stóð, var stúlk- an niðursokkin í bókina sína — svo að . . . En sú brúnhærða, sem lesið hafði sömu blaðsíðuna fjórum sinnum, tók að efast um, að myndarlegi ungi maðurinn, sem annað slagið var að stelast til að gefa henni auga, hefði mál. Að vísu gat það verið ágætt út af fyrir sig að fyrirhitta, til til- breytingar, einhvern sem ekki bað strax um nafn manns og heimilisfang, auk símanúmers, en hins vegar þurfti hann ekki að láta hlédrægnina ganga út í öfga. NÚ LITU þau bæði upp — al- veg í sömu andrá — og augu þeirra mættust., Stúlkan brosti vingjarnlega. Brian brosti klaufalega. Meðan Brian var að leita eftir orði, sagði hún: — Dásamlegt veður, finnst yð- ur ekki? Ensk stúlka getur nefnilega komið með athugasemd um veðrið, án þess að það sé lagt út sem ósæmileg framkoma við ókunnugan karlmann — Ah, já — skiljanlega — hrífandi gott, flýtti Brian sér að segja og fitlaði við bindið sitt — Það var líka ágætt í gær. Al- veg fyrirtak. — Maður getur vissulega ekki óskað eftir því betra. — Ja, það var nú ekki laust við að vera heldur heitt í gær, vildi stúlkan sagt hafa. — Já, ég skil hvað þér mein- ið, svaraði Brian alúðlega. — All- ur þessi hiti þreytir mann, finnst yður ekki? Eftir stundarfjórðungs töf við veðurfræðilegar athugasemdir og umræður, tóku þau að ræða um hið fagra landslag við Sun- water. Stúlkan sagðist hafa á- kveðið að fara í ökuferð seinna um daginn. Skemmtileg tilvilj- un, fannst Brian, — því hann hafði hugsað sér nákvæmlega það sama. Kannske gætu þau mælt sér mót? Það myndi óneit- anlega vera skemmtilegra að þau væru tvö saman, heldur en láta sér leiðast sitt í hvoru lagi. Fannst henni það ekki? Jú, það fannst henni. Þau voru sam- mála. Einarðlegt samtal í vagninum léiddi í ljós, að stúlkan hét Rose- mary Rivers. Hún bjó í Sunwat- 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.