Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 42
falsaðri undirskrift kennarans,
var sýnt pabba og mömmu, en
hið rétta, með jafn frábærlega
vel fölsuðu nafni föður hans, var
afhent kennaranum.
Það eru miklar líkur fyrir því,
að þessar falsanir á yngri árum
hafi leitt Jim út á þá glæpabraut
sem hann átti eftir að ganga.
Hefði þá komizt upp um hann,
má vera, að hægt hefði verið að
sýna honum fram á, að þessi
leikur borgaði sig ekki fyrir
hann, en það komst ekki upp um
hann.
Sömmu eftir að hann útskrif-
aðist úr skóla, fékk hann vinnu
hjá stórri heildverzlun. Hann
vann þar í nokkrar vikur, en
honum líkaði ekki vinnan. Og
að því kom, að kvöld nokkurt,
•eftir að hann háfði tapað í spil-
um, falsaði hann nafn fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins und-
ir ávísun og fékk út á hana pen-
inga í banka. Þetta var fyrsti
stórþjófnaður hans, og til allrar
■óhamingju var hann ekki hand-
samaður.
Nú tók hann ákvörðun. Ef það
var svona auðvelt að ná í pen-
inga, hvers vegna skyldi maður
þá vinna fyrir litlum launum.
Það geta þeir heimsku gert;
hann hafði fengið í vöggugjöf
sérstaka hæfileika til þess að
innvinna sér peninga.
Hann tók síðan að leita sér að
félagsskap við sitt hæfi. Og ekki
leið á löngu þar til hann var
byrjaður að vinna með glæpa-
flokki.
Það er ógerningur að gefa skrá
yfir öll þau verk, sem Jim vann
frá þeim degi, og vafamál að
hann hafi sjálfur munað eftir
þeim öllum. En til þess að gera
langa sögu stutta, þá var hann
búinn, að skömmum tíma liðn-
um, að setja banka víðs vegar
um landið á annan endann.
Hann kom bankastjórum til að
tárast löngu áður en mönnum
var farið að dreyma um kreppu.
Svo skeði það í Florida að
vetrarlagi, að allur glæpaflokk-
urinn, sem Jim var í, var hand-
samaður, að Jim undanskildum.
Þá var það sem Jim vann það
verk, sem hann hlaut mesta
frægð fyrir. Hann falsaði nafn
dómarans undir dómskjal og
frelsaði alla félaga sína úr fang-
elsi á einu bretti. Um gervallt
landið stóðu menn á öndinni af
undrun og undirheimar glæpa-
manna af einstakri hrifningu
yfir þessu afreksverki Jims. Og
Jim fékk viðurnefnið Rispa,
konungur falsaranna, honum til
óblandinnar áægju.
Þegar hér var komið sögu
skildi Jim ekki, að flestir stór-
glæpamenn munu fyrr eða síðar
40
HEIMILISRITIÐ