Heimilisritið - 01.04.1955, Page 45

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 45
Hann skrifaði bréf með rit- hönd konu sinnar og skrifaði ut- an á það til klefafélaga síns. Af- henti síðan bréfið gömlum starfsbróður, sem lofaði að láta frímerkja bréfið í New York og senda síðan til fangelsisins. Þetta bréf var eitt af meiát- araverkum Jims, svo fullkomið var það, að hann varð að setja smá blett á eitt horn umslags- iris, til þess að hægt væri að þekkja það frá bréfi, sem kon- an myndi skrifa Ed. Jim fór til póstmanns fang- elsisins, sem einnig var fangi og Jim hafði þekkt í allmörg ár. Hann sagði póstmanninum. að hann væri bara að leika smá- vegis á klefafélaga sinn, „bara saklaus brella“, sagði hann, og hann vonaðist til þess, að póst- maðurinn myndi hjálpa sér. Hann bað hann um að afhenda Jim fyrst bréf, sem merkt væri i einu hominu, ef Jim fengi tvö bréf samdægurs. ,,Bara smá brella,“ sagði falsarinn. „Það liggur ekkert á bak við þetta, Harry. Þetta gerir honum að- eins gott eitt. Allt í lagi þín vegna?“ „Allt í lagi mín vegna,“ sagði póstmaðurinn og kinkaði kolli. „Hann skal fá það merkta.“ Tveim dögum síðar lá Jim uppi í fleti sínu, og gaut augun- um til Eds, þar sem hann var að opna bréfið með merkinu. Hann sá að Ed brá — eins og ofsahræðsla af undrun næði tök- um á honum. „Þetta getur ekki verið,“ muldraði hann aftur og aftur. Þetta getur ekki verið. Lestu þetta, Jim. Lestu það, og í guðsbænum segðu mér, að ég hafi ekki séð það, sem stendur þarna í bréfinu. Gerðu það, Jim,“ sagði Ed í grátklökkum bænarróm. Falsarinn tók við sín- um eigin ritsmíðum. Hann las bréfið, eins og það væri honum alveg nýtt. „Ég get ekki blekkt big leng- ur Ed,“ las hann upphátt, „Öll bréfin, sem ég hefi skrifað þér hingað til, eru blekking. Ég er að fara af landi burt með mann- inum, sem ég elska í raun og veru. Þetta er endirinn. Vertu blessaður." Hann rétti klefafélaga sínum bréfið. „Þetta kemur mér ekk- ert á óvart,“ sagði hann. „Ég bjóst við því, að þú myndir fá svona bréf fyrr eða síðar. Þess vegna sagði ég þér fyrir löngu, að þessi bréf væru lygaþvætt- ingur. Þú getur ekki einu sinni treyst beztu konunni í heimi, og því fyrr, sem þér verður þetta ljóst, því betra fyrir þig sjálfan.“ Allar þær kvalir, sem Jim hafði liðið við að horfa upp á APRÍL, 1955 43

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.