Heimilisritið - 01.04.1955, Síða 46
þá hamingju, sem Ed hafði orð-
ið aðnjótandi, fannst honum nú
að hann jafnaði, og vel það.
Klefafélagi hans virtist á tak-
mörkum brjálæðis. Hann grét
og barmaði sér. Hann bölvaði
konu sinni og hann bölvaði
heiminum. Hann svaf ekkert
alla nóttina. Hann gekk um gólf
og snökkti með þungum ekka.
Úr fleti sínu horfði Jim á hann
með einkennilegum svip. Svip,
sem kemur yfir menn, þegar
þeir hugsa um breytileika ham-
ingjunnar, en eiga ekki sjálfir í
hlut.
Næsta morgun, þegar klefa-
dyrnar voru opnaðar, hljóp Ed,
eins og brjálaður maður, út á
ganginn, sem lá meðfram öllum
klefanum, og henti sér með óg-
' urlegu ópi yfir grindverkið.
Þegar komið var að honum á
gólfi neðstu hæðar, var hann
dauður.
Hinir fangarnir ræddu þetta
sín á milli í lágum hljóðum.
Þeir voru allir sammála um, að
þetta hefði verið leiðinlegt, því
Ed hefði verið góður drengur.
En Jim sagði ekki neitt. Honum
þótti sem þetta væri fullkomn-
un á hans „saklausu brellu“.
Tíu mínútum síðar frétti póst-
maðurinn um dauða Eds. Hann
varð dauðhræddur, vegna þátt-
töku sinnar í málinu og fór strax
á fund fangelsisstjórans, og sagði
honum upp alla söguna.
'Ég þarf ekki að segja ykkur
frá því, að rannsókn var þegar
látin fara fram, og Jim fékk
dóm, sem dæmdi hann til að
deyja í fangelsinu.
' Eftir er aðeins að bæta við
einu atriði. Þegar lík Eds var
tilbúið til heimflutnings, skip-
aði fangelsisstjórinn svo fyrir,
að bréfið, sem hafði komið frá
konu Eds, yrði opnað, til þess að
fá rétt heimilisfang.
Það voru aðeins fáir innan
fangelsisins, sem fengu að gleðj-
ast yfir innihaldi bréfsins, en í
því stóð:
„Minn kæri eiginmaður. Ég
verð að segja þér þetta nú, til
að þessu sé lokið. Ég elska ann-
an mann. Ég er að fara í burtu
með honum. Mig tekur þetta
sárt, en svona verður það að
vera.
Vertu sæll.“ *
Hollráð fyrir húsmóðurina
Ryð næst af hnífum ef þeir eru nucld-
aðir með hráum, sundurskornum lauk.
#
Ef vinna þarf óþrifaleg störf, er gott að
setja sápu undir neglurnar, því þá safn-
ast óhreinindi ekki undir þær.
*
Gott er að hafa smápoka mcð kam-
fóru í skápum, sení raki er í. Urn kam-
fóruna verður að skipta við og við.
44
HEIMILISRITIÐ