Heimilisritið - 01.04.1955, Qupperneq 49
í hnefaleik gilda
alveg ákveðnar regl-
ur, en í óheiðarlegu
spili er ekkert tillit
tekið til laga
eða reglugerða
*
Ncssta lota, sem varð
sú jjórba í röSinni,
varS úrslitalotan
Flókið f járhættuspil
Sakamálasaga eftir JULIAN SYMONS
SÍÐUSTU undankeppninni var
lokið. Francis Charles leynilög-
reglumaður hagræddi sér í sæti
sínu við hnefaleikapallinn og
spurði félaga sinn, íþróttafregn-
ritarann Jack Lint:
— Hvor þeirra vinnur, Smith
eða Evrópumeistarinn?
Blaðamaðurinn svaraði:
— Það er ekki gott að vita.
Billy Brodstreet ætti að standa
Smith miklu framar, en — það
er þvaðrað mikið um þessa
keppni. Fyrir hálfum mánuði
stóðu veðmálin þannig, að þrír
veðjuðu á Brodstreet á móti
hverjum einum áhanganda
Smiths. En nú standa veðmálin
jafnt. Það er sagt að hann ætli
að tapa leiknum með vilja.
— Hvers vegna skyldi hann
gera það?
— Vegna peninganna. Brod-
street og umboðsmaður hans,
Lyux Lenekan, eru í klípu. Á
barmi gjaldþrots, hef ég heyrt.
Billy hefur unnið marga stór-
sigra sem hnefaleikari, en hann
er orðinn roskinn og verður
bráðum að draga sig í hlé.
Blaðamaðurinn þagnaði þegar
lítill, skarpleitur maður með
hattinn aftur á hnakka þrengdi
sér fram hjá þeim.
— Hver vinnur titilinn? hróp-
aði Lint á eftir honum.
— Ég hef veðjað á meistar-
ann, Jack, þótt ég sé reyndar á
móti fjárhættuspili.
— Það er sagt að hann ætli
APRÍL, 1955
47