Heimilisritið - 01.04.1955, Page 50
að tapa leiknum viljandi.
Sagt og sagt! Fólk segir svo
mikið. Hann dró armað augað í
pung. — En ég hef mínar upp-
lýsingar frá áreiðanlegum
manni, bætti hann við og hélt
áfram.
— Þetta var Ike Pazeki, sagði
blaðamaðurinn. — Ýmsir af stór-
köllunum nota hann til að veðja
fyrir sig á hnefaleikara þegar
þeim er mikið í mun að vinna.
. . . En sjáðu þennan! Ef einhver
getur svarað því með vissu,
hvort -Brodstreet muni tapa eða
vinna, þá er það þessi maður.
Blaðamaðurinn benti á feitan
mann í flöskugrænum fötum.
Hann kom inn ásamt tveim öðr-
um, sem voru sízt fyrirferðar-
minni, og þeir settust spölkorn
til hægri við þá Lint og Charles.
Þeir tóku báðir eftir því að ann-
ar mannanna hallaði sér fram
og spurði manninn í grænu föt-
unum um eitthvað. Grænklæddi
maðurinn svaraði með því að
rétta upp fjóra fingur.
—Þetta er Sammy Torrant,
næturklúbbaeigandinn, sagði
Lint. — Hann hefur hálfa tylft
hnefaleikara á sínum snærum,
heimullega auðvitað, en ég veit
•af tilviljun að Smith er einn af
þeim. Þegar Torrant krefst þess
að einhver hnefaleikara hans
skuli vinna, þá vinnur hann
alltaf. Ég hef að minnsta kosti
heyrt það sagt. Jæja, nú byrjar
leikurinn.
ÞAÐ var keppt um Evrópu-
meistaratitilinn í léttþungavigt.
Kid Smith, sem hafði skorað
Evrópumeistarann á hólm, var
sjö árum yngri en Brodstreet, en
Evrópumeistarinn var töluvert
meiri á velli og virtist eiga meiri
seiglu til að bera. Báðum var
vel fagnað af áhorfendum, en þó
var lófatakið sem Brodstreet
hlaut blandið ussi og blístri.
Hann stóð í homi sínu ásamt
umboðsmanninum, Lyux Lene-
kan. Andlit Lenekans var allt
þakið broshrukkum, og hann
hafði greitt þunnt hárið vand-
lega yfir beran skallann. Hann
ræddi alvarlega við Brodstreet.
Umboðsmaður Kids Smiths,
tröllvaxinn maður og fyrrver-
andi hnefaleikari, Cruise Harri-
gan að nafni, klappaði sefandi á
öxl Smiths og litaðist um salinn
með ánægjusvip.
Bjöllunni var hringt.
Eftir að þrem lotum var lokið
spurði Charles:
— Hvernig lízt þér á, Jack?
— Engan veginn. Brodstreet
leggur sig ekki allan fram, en
hann hefur fleiri stig. Það er
augljóst að hann er færari en
Smith og ég held varla að Smith
48
HEIMILISRITIÐ