Heimilisritið - 01.04.1955, Page 53

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 53
ákveðnu augnamiði. Torraut gapti af undrun. Leynilögreglumaðurinn og blaða- maðurinn létu hann einan um að komast til botns í þessu og héldu áfram út í borgina til að leita að sporum morðingjans. LYUX LENEKAN, umboðs- maður Brodstreets, komst fljótt 1 vamaraðstöðu: — Eg játa engu, sem þér berið á mig, sagði hann. — En segjum nú að Brodstreet hafi tapað leiknum viljandi? Það hafa margir gert á undan honum, og það verður aldrei hægt að koma í yeg fyrir slíkt. Einkum þegar um er að ræða hnefaleikamenn, sem eru að verða of rosknir til að berjast. En mig myndi aldrei dreyma um að hafa nein afskipti af slíku, sagði harrn sakleysis- lega. — Þér högnuðust víst lítið á keppninni? Lenekan hreyfði höndina eins og hann þurrkaði út skrifstofuna af yfirborði jarðar. — Ég gefst upp á þessu, sagði hann þreytulega. — Ég get ekki haldið því áfram. Við Brod höf- um verið perluvinir áru sam- an. Ég gæti að vísu reynt að finna annan hnefaleikakappa, en ég væri stálheppinn ef hann yrði eins góður og Brodstreet var. NÆST heimsóttu þeir um- boðsmann Kid Smiths. Cruiser Harrigan varð móðg- aður. — Það var fullkomlega sann- gjarnt að Kid vann titilinn, sagði hann og sendi skjólstæðingi sín- um föðurlegt augnaráð. — Kid hefði getað slegið Brodstreet í gólfið með aðra höndina bundna fyrir aftan bak. Ég vil ekki heyra þetta kjaftæði um svindl. Kid var betri en Brod, hann vann, og það hefði hann gert undir öllum kringumstæðum. Nýi Evrópumeistarinn hafði sig lítt í frammi, en var þó sam- þykkur umboðsmanni sínum. — En, sagði Charles, — það er þó undarlegt þegar allir vita fyrirfram um úrslit keppninn- ar. — Ég veit ekki hvað þér eigið við, sagði Cruiser Harrigan gremjulega. — Auðvitað treysti ég Smith; en að veðja á mann sem er viss um sigur þykir mér heldur lítil skemmtun. — Það var þá ekki ákveðið mál að Brodstreet ætti að tapa keppninni viljandi? sagði Charl- es sakleysislega. — Snautið þér út! hvæsti Cruiser Harrigan. — Og ef þér leyfið yður að koma aftur fram með slíkar tilgátur siga ég á yð- ur lögreglunni. APRÍL, 1955 51

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.