Heimilisritið - 01.04.1955, Side 58

Heimilisritið - 01.04.1955, Side 58
FRÁ sér numinn og fullur af hugrekki, af því hann vildi sýna sig verðugan ástar Martine, seldi hann húsgögnin sín og bækurn- ar til þess að geta haldið þrjá hljómleika, helgaða ,,ljóðrænu“ meisturunum, en það var lof- söngur um hans eigin ást. Á fyrstu hljómleikunum voru mjög fáir, nokkrir vinir og fé- lagar ásamt Martine og fjöl- skyldu hennar. Sá næsti tókst vel. Sá þriðji var stór sigur. Hr. Réveraz, sem langaði að vera listfrömuður tók hann að sér ■eins og veðhlaupahest með mikl- ar sigurvonir. Eftir vel heppn- aða hljómleikaför um Ameríku, bað hann um hönd Martine og fékk hana. JEAN-CLAUDE og Martine vo^u í þann veginn að flytja í lítið hús í yndislegum blóma- garði á bakka Signu, en til þessa höfðu þau búið hjá föður henn- ar. Þau eru að undirbúa flutn- ingana, og í kvöld hafa þau á- kveðið að vera heima til að ganga frá ýmsu. Þau eru einmitt að fást við kommóðu í stíl Karl X, þar sem Martine hefur geymt æskuminn- ingagripi sína. Gamlar brúður, bamakjólar, myndaalbúm, skóla- bækur. Þetta er alveg nýr heim- ur, sem Jean-Claude þykir gam- an að skoða sig um í, því hingað til hefur honum verið þetta for- boðið land. ,,Þessi skúffa þama er hryll- ingsgeymslan mín! Þarna er allt, sem ég hef fundið, eða mér ver- ið gefið af ljótum og hlægileg- um hlutum.“ Mitt í þessum bunka af hryll- ingi kemur Jean-Claude auga á heljarmikið öskjulok. Honum finnst hann kannast við það og tekur upp öskjuna. „Er þetta ekki sú . . . ?“ Martine fer að hlæja. „Jú, vinur minn, það er hún . . . gjöfin þín á tuttugu ára af- mæli mínu. Það er einmitt hún!“ „Gjöfin mín, sem þú hafðir ekki með hinum —“ „Já, auðvitað! . . . Ég vildi ekki að vinir mínir gerðu gys að mér, eða þér. Viðurkenndu það. Líttu á öskjulokið. Þessi ljóshærða kvensnift, sem brosir aulalega yfir burtrokinni ást, þetta er hrein glansmynd!“ „Ja, hvernig hef ég getað gert annað eins, eigum við að henda henni?“ „Það getum við sem bezt.“ En áður en Jean-Claude lætur lokið á skarnbyttuna, sendir hann ljóshærða kvenmanninum vinsamlegt bros: Þau tvö vita ein, að hamingja hans var reist á fölskum forsendum. * S6 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.