Heimilisritið - 01.04.1955, Side 59
Framhaldssaga eftir
RUTH FLEMING
Nýí
Herragarðs-
eigandinn
Nýir lesendur geta byrjað hér:
Linda Kinlock er ung stúlka, sem
hefur nýlega misst foreldra sína, en
faðir hennar var herragarðseigandi
og aðalsmaður. Bruce frændi henn-
ar erfir alla eignina, því samkvæmt
gömlum lagaákvæðum, getur kven-
maður ekki erft hana. Bruce býður
Lindu að koma til London og búa á
heimili sínu og móður hans, og þigg-
ur hún boðið, enda er henni ekki
heimilt að búa áfram á Kinlock Hall,
æskuheimili sínu. — Þegar til Lond-
on kemur veður hún fyrir miklum
vonbrigðum, því móðir Bruce tekur
henni kuldalega. — Linda fer á
einkaritaranámskeið, en dvelur á-
fram á heimili Bruce.
8. kapítuli
Jólin í Loridon urðu engin há-
tíð fyrir Lindu. Hún gaf Bruce
sígarettuveski og fékk leikhús-
handveski frá honum. Frú Kin-
lock gerði tilraun til að vera vin-
gjarnlegri við hana en venju-
lega, en hún gat ekki lengur
leynt því, að hún beið aðeins
eftir að verða laus við gestinn
eins fljótt og hægt væri.
Þegar Linda sat ásamt Bruce
fyrir framan arininn á gamlárs-
kvöld, sagði hún:
„Þar sem þú og móðir þín far-
ið nú til Kinlock Hall, hef ég
tekið herbergi á leigu. Ég er-
meira að segja farin að senda
umsóknir um ritarastöður, sem
auglýstar eru í blöðunum, en.
hingað til hef ég leyft mér að
vera dálítið vandlát. Ég vil helzt
fá einkaritarastöðu, en ef ég fæ-
hana ekki áður en þið farið,.
neyðist ég auðvitað til að gera
mér annað starf að góðu. Ég vil
að minnsta kosti segja þér, að ég
mun aldrei gleyma, hvað þú hef-
ur gert fyrir mig þennan tíma,
og vil nota tækifærið til þess að
þakka þér. Það eru ekki margir
APRÍL, 1955
5T