Heimilisritið - 01.04.1955, Page 61

Heimilisritið - 01.04.1955, Page 61
beint skylda hans að kvænast til fjár. Hinn 18. janúar var kaldur og þungbúinn dagur, og um morg- uninn, þegar Linda gekk að glugganum og leit út, fannst henni veðrið í samræmi við skap hennar. Eftir örfáa daga myndi sú stund renna upp, sem hún kveið sífellt meira og meira fyr- ir. Þá yrði hún að segja skilið við þennan dvalarstað og halda út í heiminn ein og óstudd. Henni var þungt 1 skapi, þegar hún fór niður til að borða morg- unverð, en það léttist svolítið á henni brúnin, þegar hún sá Bruce í borðstofunni. Venjulega var hann ekki vanur að borða fyrr en hún var farin í skólann. ,.Góðan daginn, Linda!“ sagði hann. „Ég er óvenju snemma á ferli í dag, og mamma kemur ekki niður að borða. Hún hefur fengið eitt höfuðverkjarkastið.“ Linda settist við borðið, og Bruce fékk sér sæti andspænis henni og lét sem hann væri nið- ursokkinn í morgunblaðið, en í rauninni horfði hann stöðugt laumulega á Lindu. Hann tók eftir baugunum, sem hún hafði fengið undir augun, og þung- lyndissvipnum, sem kominn var á fallega andlitið. Og hann skildi vel, hvað hvíldi svo þungt á henni. „Ég hef heyrt, að þú sért búin að fá þér herbergi á leigu, Linda,“ sagði hann upp úr þurru. „Já, það er rétt,“ svaraði hún lágt. Hann hellti aftur í tebollann sinn. „En hefurðu fengið nokkuð svar við umsóknum þínum um vinnu?“ „Nei, ekki ennþá.“ Þegar hann leit í augu henn- ar, sá hann glitra á tár í þeim, og hann brosti uppörvandi til hennar. „Viltu koma inn í bókastofu í kvöld og rabba við mig? Ég hugsa að ég hafi fundið starf, sem er alveg við þitt hæfi, en ég vil ekki gera út um neitt, fyrr en þú hefur heyrt nánar um í hverju það er fólgið.“ Augu hennar urðu stór af undrun. „Bruce, áttu við. . . . ? Segirðu satt . . . ?“ „Já, en þú mátt ekki spyrja mig frekar,“ svaraði hann og stóð á fætur. „Ég hugsa að ég hafi góðar fréttir að færa þér í kvöld.“ Linda var í bezta skapi allan daginn, og þegar sá tími nálg- aðist, er von var á Bruce heim, iðaði hún öll af eftirvæntingu, og frú Kinlock megnaði ekki einu sinni að gera henni gramt APRÍL. 1955 59

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.