Heimilisritið - 01.09.1957, Síða 20
sóknir munu taka um eitt ár
og kosta um fimmtán milljónir
króna.
Það er einnig mikilvægt að
fá því svarað, hvað slík göng
myndu kosta. Sérfræðingar
segja að þau muni kosta um 12
milljarða la’óna, og þá er miðað
við göng, sem aðeins eru ætluð
járnbrautarlestum. Því er hald-
ið fram, að ef bílar fengju að
aka um göngin, myndi verða
ótrúlega hár kostnaður við loft-
hreinsunarkerfið í göngunum.
Þess vegna er um það rætt að
hafa eins konar bílaferjur —
járnbrautarvagna, sem flytja
bílana um göngin og á hver
vagn að geta tekið um 100 bíla.
Ermasund er tæplega 50 kíló-
metra breitt á milli Calais og
Dover og ætlunin er að grafa
göng, sem hafa tvö járnbrautar-
spor. Kostnaðurinn er áætlaður
12 milljarðar króna og það er
talið að taka myndi sjö til tíu
ár að grafa göngin. *
H eljarstökk
Borgfirðingur, scm staddur var í Reykjavík, kom hlaupandi nið-
ur að ,,Laxfossi“, rétt í því hann var að skríða frá bryggjunni. Mað-
urinn hikaði ekki, cn tók undir sig mikið stökk og skall á þilfarið,
þar sem hann lá hálfrotaður í um það bil tvxr mínútur. Svo setást
hann upp og starði ringlaður á breitt bilið sem nú var orðið milli
skips og bryggju.
„Drottinn minn dýri!“ sagði hann afar hátíðlegri röddu. „Hví-
líkt stökk!“
Eðlileg spuming
Frúin hafði verið á uppboði og keypt þar stxrðar stofuklukku.
Hún scndi mann sinn eftir henni til þess að bera klukkuna hcim.
Hann átti í hálfgerðum brösum við klukkuna, og ekki tók betra við,
þegar hann mxtti augafullum manni á götunni. Þeir rákust saman
og féllu til jarðar; eiginmaðurinn féll á bakið og klukkan ofan á hann.
„Hvers vegna í ósköpunum athugar þú ekki hvar þú gengur?"
spurði eiginmaðurinn reiðilega.
Fyllibyttan hristi ruglaður höfuðið, leit á manninn og klukku-
báknið, sem lá þversum yfir hann.
„Hvers vegna gengur þú ekki með armbandsúr eins og aðrir
menn?“ spurði hann.
18
HEIMILISRITIÐ