Heimilisritið - 01.09.1957, Blaðsíða 59

Heimilisritið - 01.09.1957, Blaðsíða 59
Dýrkeyptir kossar — 3. hluti — FORSAGA Vera hafði farið til Mills Falls til að flýja undan Lonnie Rivers. Þar kynntist hún Pete Snowden, sem er formaður stéttarfélagsins á staðnum. Þau fella hugi saman og giftast, en Vera kann ekki við sig .og eftir hörku-rifrildi við mann sinn flýr hún heim til æskustöðv- anna. Þar hittir hún Lonnie aftur og fer með honum í ökuferð. Þau lenda í rigningu og leita afdreps í kofa hans. Hann kom xneð snapsinn minn. Hann var heitur og sterkur og hitann lagði um mig alla. Þegar ég var búin með hann lagaði hann tvo í viðbót. Ég var strax farin að finna á mér af þeim fyrri. ,;Ég verð hífuð,“ sagði ég. Hann brosti. „Er nokkuð betra hægt að gera á rigningardegi? Það var farið að skyggja. — Regnið dundi á þakinu. Elding leiftraði í fjarska, síðan komu þrumur. Ég dreypti á seinna glasinu mínu. Hann var búinn með sitt, kom til mín og settist við hliðina á mér. Hann snerti mig. „Nei, hvíslaði ég. „Það er tími til kominn að hætta að segja nei. Þú ert búin að segja það of lengi. Þú reynd- ir að stinga mig af en það tókst ekki. Þú varðst að koma aftur. Þú munt alltaf verða að koma aftur. Það er sama hve oft þú segir nei, að lokum muntu segja já. Og því þá ekki að segja það núna?“ Andlit hans var fast upp við mitt. Ég fann heitan andardrátt hans. Það var ekkert til í heim- inum nema nálægð hans, þrá hans og ástríða. Og mín. Glasið datt úr hönd minni og skoppaði eftir gólfinu. Hann kyssti mig, þrýsti mér fast að sér. Skyndilega skeði eitthvað. — Allt var breytt. Ástríðan, sem logað hafði upp í mér, slokkn- aði. Raunveruleikinn kom aftur. Hlutir, sem ekki höfðu einu sinni verið til fyrir tveim dögum, sem máðst hafði yfir, lifnuðu v'ið, urðu raunverulegir aftur. Mill Falls. Andlit og rödd Pete, Pete, mannsins míns. Ég reyndi að hrinda Lonnie frá mér. „Lonnie, hættu!“ stundi ég- Hann hló. HEIMILISRITIÐ 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.