Heimilisritið - 01.09.1957, Side 56
bergið og nálguðust vöggu
barnsins. Eiginmaður minn gat
slökkt eldinn og barninu var
bjargað. Ég lief oft hugsað um
það, hvort þetta var martröð
eða aðvörun,“ segir konan.
Rithöfundar hafa oft fengið
hugmyndir í draumi, sem þeir
hafa getað notað í sögum sínum
eða leikritum. Símastarfsmaður
einn í Bandaríkjunum vaknaði
einn morgun eftir að hafa
dreymt, að hann væri að skjóta
lir loftvarnabyssu af sérstakri
gerð. Hann settist þegar niður
og gerði teikningu af vopninu,
sem hann hafði séð í draumn-
um. Hann sýndi bandaríska
hernum það og þetta reyndist
ágætt vopn, sem herinn hóf
strax framleiðslu á og notaði í
heimsstyrjöldinni síðari.
Það virðist vera lítið varið
í að borða í draumi, en það eru
mörg dæmi þess, að menn hafa
1‘ulla heyrn og lykt í draumi.
Læknir einn segir þetta um
drauma: „Hreyfingar okkar í
draumi eru að ýmsu leyti frá-
brugðnar hreyfingum okkar í
vöku.
I draumi höfðum við þá til-
íinningu, að við getum haldið,
að við fljúgum eða fljótum í
loftinu og líkami okkar getur
hreyft sig miklu frjálsar en í
vöku. En enda þótt hreyfingar
smærri liða, svo sem úlnliða,
ökla, .fingra og tánna séu auð-
veldur í draumi, eru hreyfingar
stærri liða ávallt erfiðar.
Þegar mann drevmir um það
að maður sé að sparka eða slá
til einhvers, verða höggin og
spörkin máttlaus. Það er einna
líkast því að reyna að sparka
eða slá á kafi í vatni.“ *
Kurteisi
Hótelþjónn var að leggja nýliða lífsreglurnar í sambandi við starf
hans.
„Þú verður umfram allt að vera kurteis og háttvís," sagði hann.
„Ég skil vel hvað þú átt við með kurteisi," sagði ungþjónninn,
„en ég veit ekki almennilega hvað háttvísi er.“
„Sjáðu nú til,“ sagði sá eldri, „ég skal skýra þetta fyrir þér með
smá dæmi: Dag nokkum opnaði ég dyr á baðherbergi og nakinn
kvenmaður sat í baðkerinu. Ég flýtti mér að loka hurðinni og sagði:
„Bið afsökunar, herra.“ — Orðin „Bið afsökunar" voru kurteisi, en
„herra“ — það var háttvísi.”
54
HEIMILISRITIÐ