Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
Er frá Þýskalandi
79.900
VELDU
GRILL
SEM EN
DIST
OG ÞÚ
SPARA
R
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
16,5
KW
40 gerðir gasgrilla
20 gerðir kolagrilla
ALLT FYRIR GRILLIÐ
Á EINUM STAÐ
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Léttskýjað, en þykknar upp
vestantiL og rigning um kvöLdið.
Höfuðborgarsvæðið: Sólarglenn-
ur, en Skýjað og bláStur um kvöldið.
smá rign. s- og v- Lands um morguninn.
annars þurrt og sóL n- og a-tiL.
Höfuðborgarsvæðið: að meStu Skýjað
og Skúrir framan af degi.
rigning með köfLum sunnantiL,
en þurrt að mestu n-tiL
Höfuðborgarsvæðið: Smá
rigning eða Skúrir.
kröftug sumarbyrjun
Sumarið kom þetta árum með látum og
áfram lítur út fyrir bæði milt og sólríkt
veður norðan- og austanlands. Þó nú
frekar að tala um hita um 15 stig í stað
20 eins og framan af vikunni. úrkomu-
bakkar verða viðloðandi
sunnan- og vestanlands,
einkum fyrripartinn á
laugardag og þá strekk-
ingsvindur um tíma. aftur
vætusamt á sunnudag.
eftir helgi rofar til og
hlýnar jafnframt á
höfuðborgarsvæðinu.
12
10 13
16
14
10
9 15 15
11
9
9 14 12
10
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
bjóða heim á sunnudaginn
Það verður líf og fjör hjá stórum hluta ferðaþjón-
ustubænda um allt land á opnu hús á sunnudaginn,
9. júní klukkan 13-17. almenningi gefst tækifæri á
að kynna sér starfsemina á ferðaþjónustubæjum,
fá nýja bæklinginn „upp í sveit“ og njóta veitinga
og afþreyingar í boði bænda. ferðaþjónusta bænda
hf. er ferðaskrifstofa í eigu bænda sem býður upp
á fjölbreytta gistingu hjá 180 ferðaþjónustuaðilum
um allt land; á sveitahótelum, í gistihúsum, sumar-
húsum, heimagistingu, svefnpokaplássi og á tjald-
svæðum. boðið er upp á mikið úrval afþreyingar
og áhersla er lögð á mat heima úr héraði, með
sjálfbærni og persónulega þjónustu að leiðarljósi.
Í tilefni útgáfu bæklingsins ætla fjölmargir
bæir innan ferðaþjónustu bænda að hafa opið
hús á sunnudaginn þar sem gestir geta skoðað
aðstöðuna. Þeir geta gætt sér á ljúffengum heima-
bakstri og öðrum afurðum úr sveitinni, heilsað
upp á dýrin, skoðað fjós, tekið þátt í leikjum, notið
lifandi tónlistar, kynnt sér tóvinnu og fræðst um
ylrækt, auk annars.
bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum
og hvítum blöðrum við veginn. nánari upplýsingar
og lista yfir bæina í hverjum landshluta má finna á
vefsíðu ferðaþjónustu bænda www.sveit.is. - jh
sparneytnir yaris og polo dísilbílar
Sigurvegari í sparaksturskeppni fÍb og atlantsolíu sem fram fór síðastliðinn
föstudag var júlíus H. eyjólfsson á toyota Yaris dísil. eldsneytiseyðsla bíls júlíusar
að meðtöldum refsistigum fyrir að fara út fyrir tímamörk, reyndist 3,92 lítrar. Það
þýðir að eldsneytiskostnaður milli reykjavíkur og akureyrar var krónur 3.516, að
því er fram kemur í tilkynningu fÍb.
Í öðru sæti varð Hilmar Þorkelsson á volkswagen Polo dísil. rauneyðsla bíls
Hilmars var sú minnsta í keppninni eða 3,44 lítrar á hundraðið. en aksturinn var
það hægur að Hilmar var talsvert lengur á leiðinni en hann hefði átt að vera sam-
kvæmt tímamörkum keppninnar og hlaut hann því 0,48 lítra í refsingu og aftur
0,45 lítra refsingu vegna of skamms hvíldartíma á gauksmýri. Því varð eyðsla hans
4,36 lítrar að meðtöldum refsistigum (lítrum). - jh
Sparneytnu
dísilbílarnir
toyota
Yaris og
volkswagen
Polo.
ferðaþjónustubændur verða
með opið hús víða um land
á sunnudaginn. Þar gefst al-
menningi kostur á að kynna sér
starfsemina.
F óstrurnar tvær þær Pierette og Gentille voru í starfsnámi á Lauf-ásborg í sex mánuði og fóru út til
Tógó aftur í maí ásamt nokkrum starfs-
mönnum frá Laufásborg sem hjálpuðu
þeim að fara af stað með Hjallastefnuna á
barnaheimilinu í Glidji. Það var ótrúlegt
að fylgjast með hvernig þær rúlluðu
þessu upp, það mætti halda að heim-
ilið hafi beðið eftir því að verða Hjalla-
stefnuvætt. Ég veit ekki hvort það er
Hjallastefnan sem hentaði svona vel eða
hvort fóstrurnar séu svona miklir snill-
ingar. Líklega hvort tveggja. Það eru
komnir hópatímar, valtímar og jafnvel
kynjaskipting eins og vera ber í Hjalla-
stefnuskólum,“ segir Alda Lóa Leifsdóttir,
stofnandi hjálparsamtakanna Sól í Tógó,
glöð í bragði.
Árið 2007 dvöldu Alda Lóa og fjöl-
skylda hennar í Tógó í hálft ár þegar þau
biðu eftir leyfi til að fara til Íslands með
ættleidda dóttur sína. „Þá kynntumst við
Smári, maðurinn minn, nunnunni Victo
og hennar starfi. Hún er kennari og hafði
á þessum tíma tekið að sér mörg börn en
því miður bjuggu þau við óviðunandi að-
stæður. Victo fékk land frá bænum Aneho
og hefur Sól í Tógó styrkt hana til þess
að byggja á landinu í Glidji. Einnig veitti
Auður Capital styrk til þess að klára leik-
skóla í fyrra og í ár fengu samtökin styrk
frá Þróunarsamvinnustofnun til að byggja
húsnæði fyrir sextíu börn.
Barnaheimili nunnunnar Victo er ætlað
varnarlausum börnum sem mörg hver eru
munaðarlaus. Skjólstæðingar Victo eru
tæplega níutíu og sumir búa ekki lengur
á heimilinu. Nokkrir unglingar eru
komnir í framhaldsnám í öðrum borgum
og nokkrar stúlkur eru komnar heim til
fjölskyldna sinna aftur en eru styrktar til
náms. Rúmlega helmingur skjólstæðinga
heimilisins eru yngri en fjögurra ára og
er hópurinn að kynnast Hjallastefnunni.
Byrjað var með fjóra hópa í maí með jafn-
mörgum kennurum sem hvetja og efla
hópinn sinn eftir aðferðum Hjallastefn-
unnar.
Dvöl fóstranna tveggja á Íslandi var
bara byrjunin. Næstu mánuði verða þær í
vikulegu sambandi við kennara Laufás-
borgar varðandi hugmyndafræði Hjalla-
stefnunnar og eins til að fá ráðleggingar
komi einhver vandamál upp. Næsta vor
koma svo aðrir tveir kennarar frá Tógó í
starfsnám á Laufásborg í þrjá mánuði. Í
millitíðinni mun starfsmaður Laufásborg-
ar fara til Tógó og vera fóstrunum þar
innan handar.
Hægt er að gerast heimilisvinur sam-
takanna Sól í Tógó fyrir 2.500 krónur
mánaðarlega og styrkja Hjallaverkefnið
með því að fara inn á síðu samtakanna
www.solitogo.org.
dagný Hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
sól í tógó starFsnám í lauFásborg
Næstu mánuði
verða fóstrurnar
í vikulegu sam-
bandi við kenn-
ara Laufásborgar
varðandi inn-
leiðingu á hug-
myndafræði
Hjallastefnunnar.
Hjallastefnan í Tógó
undanfarna sex mánuði hafa tvær fóstrur frá samstarfsheimili samtakanna Sól í tógó dvalið á
Íslandi og lært aðferðir Hjallastefnunnar hjá leikskólanum laufásborg. Þær eru nú farnar aftur til
Tógó og hafa hafist handa við Hjallavæða starfsemi sína.
fyrsti hópaskipti matartíminn eftir aðferðum Hjallastefnunnar hjá gentille og stúlkunum í tógó. ljósmynd/Sól í tógó
jensína Hermanns-
dóttir, leikskólastjóri
laufásborgar, með börn-
unum í glidji að vinna
með heimatilbúinn leir.
Ljósmynd/Sól í Tógó.
4 fréttir Helgin 7.-9. júní 2013