Fréttatíminn - 07.06.2013, Page 20
1.016.000
krónur voru meðallaun stjórnenda í bankakerf-
inu samkvæmt könnun sem Capacent gerði
í febrúar. Laun stjórnenda hafa tvöfaldast á
síðustu níu árum og hækkað umfram verðlags-
og launavísitölu.
2,6
prósent heildarveltuaukning
varð á Visa-kreditkortavið-
skiptum í maí miðað við
sama tímabil í fyrra.
Fleiri notuðu kreditkort
til að versla áfengi en
færri notuðu
þau til elds-
neytiskaupa
en á sama
tíma í fyrra.
Matur fyrir þá sem hafa
( góðan smekk )
80
ára reynsla
í framleiðslu
á barnamat!
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Grunnstoðir jafnréttis
Engar útivinnandi mæður hér plís
F yrir um áratug var ég útivinnandi móðir í miðborg London. Ég flutti til London með tæplega þriggja
ára dóttur mína þar sem ég bjó í fjögur
ár. Fyrsta árið vann ég heima,
sem fréttaritari Morgunblaðsins í
London. Þá fór mig að þyrsta eftir
breytingum og var síðar ráðin sem
fjölmiðlaráðgjafi á eina stærstu al-
mannatengslaskrifstofu Bretlands
þar sem ég var í tæp þrjú ár.
Þá var ég 29 ára. Ég var eina
konan á þrjú hundruð manna
vinnustað sem var undir fertugu
og átti barn. Hinar mæðurnar
tvær voru mun eldri en ég og í
yfirmannastöðu með barnfóstru
í fullu starfi heima fyrir. Ég fann
alls ekki fyrir fordómum gagn-
vart þessari stöðu minni – heldur
miklu fremur aðdáun og undrun.
Það var eins og gert væri ráð fyrir því að
það væri nánast ómannlegt að geta sinnt
þessum tveimur hlutverkum án mikillar
aðstoðar sérmenntaðs starfsfólks á full-
um launum. Ég þurfti hins vegar margoft
að útskýra fyrir samstarfsfólki og nýjum
kunningjum að á Íslandi byrjaði maður að
eignast börn miklu fyrr, helst bara í há-
skóla, því þá væri svo auðvelt að ráðstafa
tímanum sínum sjálfur. Svo kæmi maður
helst bara út á vinnumarkaðinn og væri
búinn að eignast börn, eða að minnsta
kosti langt kominn. Bretarnir voru alveg
gapandi hissa þegar ég útskýrði jafn-
framt fyrir þeim að á Íslandi væri þetta
svo sjálfsagt að það væri ekki einu sinni
til eiginlegt hugtak yfir „working mom“,
að minnsta kosti ekki í sama skilningi og
þeir nota það (ég sagði þeim reyndar ekki
að það væri ekki heldur til íslenskt orð
yfir „Please“ – mér fannst að það myndi
halla of mikið á Íslendinga í þeim menn-
ingarlega samanburði, en það er önnur
saga).
Börn í Bretlandi byrja í skóla þriggja og
hálfs árs, þá í leikskóladeild. Þar eru eng-
ir ríkisreknir leikskólar en ég var heppin
því ég hafði sambönd sem útvegaði okkur
pláss á einkareknum leikskóla. Til að
byrja með dugðu launin mín reyndar rétt
svo fyrir leikskólaplássinu og restin fór
upp í hluta húsaleigunnar.
Það var hinsvegar ekki fyrr en árið
sem ég kom aftur heim og ég tók blaða-
viðtal við þáverandi forsætisráðherrafrú
Bretlands, Cherie Blair, í tengslum við
ráðstefnu í jafnréttismálum sem hún
var þátttakandi í hér á landi, að ég átt-
aði mig fyllilega á að hinn raunverulegi
grundvöllur fyrir jafnrétti kynjanna væri
aðgengi að dagvistun. Við bárum saman
stöðu kvenna í löndunum tveimur og þá
sérstaklega mæðra, ekki síst útivinnandi
mæðra, en þá var yngsti sonur Cherie
fjögurra ára. Ég var stolt af þessum
samanburði – og jafnframt þakklát.
Ég verð hinsvegar hugsi þegar ég geri
mér ljóst, nú tíu árum síðar, hafa engar
frekari framfarir orðið í þessum málum
– og halda má fram að jafnvel hafi orðið
ákveðin afturför því efnahagsþrengingar
hafa leitt til þess að feður nýta fæðingar-
orlof sitt í minna mæli en áður. Foreldrar
eru enn að basla við að finna dagmömmu-
pláss fyrir börnin sín og brúa bilið milli
fæðingarorlofs og leikskóla. Í þjóðfélagi
sem stærir sig af stöðu jafnréttismála
hlýtur að vera lögð megináhersla á að efla
þessa grunnstoð jafnréttis og með bætt-
um hag muni ríki og sveitarfélög leggjast
á eitt til þess að lengja fæðingarorlofið í ár
og tryggja börnum leikskólapláss strax að
því loknu. Því þannig á það að vera.
VikAn í tölum
5.500
námsmenn á Íslandi í tæplega 30 skólum taka þátt
í Unicef-hreyfingunni og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Börnin læra um jafnaldra sína í fátækari ríkjum.
20
prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins nota Strætó
í hverjum mánuði. Alls nota 45 prósent íbúa
á höfuðborgarsvæðinu þjónustu Strætó á ári
hverju.
68
ár eru síðan
gítarleikarinn
Jeff Beck fæddist
en hann heldur
tónleika í Voda-
fonehöllinni 27.
júní. Þá verður
hann reyndar
orðinn 69 ára.
20 fréttir Helgin 7.-9. júní 2013 vikunnar