Fréttatíminn - 07.06.2013, Blaðsíða 28
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvast
Kjöraðstæður til raforkuvinnslu
Bíltúr á Búrfell
Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð við Þjórsá er skemmtileg
og lærdómsrík fyrir fólk á öllum aldri. Skammt fyrir norðan stöðina
eru vindmyllurnar tvær sem Landsvirkjun hefur reist í rannsóknar-
skyni, þær fyrstu sinnar gerðar á Íslandi. Akstur frá Reykjavík
tekur aðeins um eina og hálfa klukkustund og við erum alltaf
með heitt á könnunni.
Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar 10-17 alla daga í allt sumar:
Búrfellsstöð
Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu
Kröflustöð
Jarðvarmasýning í gestastofu
Fljótsdalsstöð
Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka
Nánari upplýsingar á
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Þ órunn Kristín Emilsdóttir hefur frá barnæsku búið yfir skyggnigáfu og skynjað fleiri víddir tilverunnar
en blasa við flestum. Í upphafi bældi hún
náðargáfuna niður enda var hún ekki tekin
alvarlega sem barn þegar hún færði fólki
fréttir frá ýmsum handanheimum. Eftir að
hún meðtók hæfileika sína hefur hún nýtt þá
til þess að hjálpa fólki í ýmsum raunum og
jafnvel verið fengin til þess að aðstoða lög-
regluna við rannsókn sakamála.
Eftir að Valgeir Víðisson hvarf sporlaust
í júní árið 1994 og grunur kviknaði um að
hvarfið tengdist fíkniefnaviðskiptum og að
honum hefði verið ráðinn bani leitaði faðir
hans til Þóru Stínu, eins og hún er jafnan köll-
uð, og bað hana um að nota skyggnigáfuna til
þess að hjálpa til við leitina að syni sínum.
Þóra Stína leiðbeinir meðal annars dauð-
vona fólki og aðstoðar það við að skilja við.
Sjálf hefur hún mátt reyna ýmislegt, hefur
barist við krabbamein og fékk heilablóðfall
2010. Mótlætinu hefur hún mætt æðrulaus
enda fullviss um að annað líf bíði að þessu
loknu.
Talin með afbrigðum lygin
„Það getur verið erfitt að vera barn sem
skynjar það sem flestir aðrir skynja ekki og
vegna þessa var ég talin með afbrigðum lyg-
in enda var ég alltaf að segja frá einhverju
sem aðrir sáu ekki.“ Þóru Stínu lærðist því
smám saman að þegja yfir því sem hún sá og
skynjaði en geymdi upplifunina með sjálfri
sér. „Þannig að ég hætti að segja frá en um
leið og ég gat farið að skrifa byrjaði ég að
skrifa það sem ég upplifði í stílabækur og
kallaði þetta að ég væri að skrifa til Guðs.
Hjálpar alls konar fólki
Þóra Stína segir alls konar fólk leita til sín
með margvísleg vandamál og það kemur
sjaldan að tómum kofanum hjá miðlinum.
„Þetta er allt milli himins og jarðar. Til
mín kemur fólk sem á stundum í einhverj-
um erfiðleikum í vinnunni, er í sálarangist,
þjáist af sjúkdómum eða á í erfiðleikum með
barneignir. „Mér finnst ég hafa grætt svolít-
ið á því að ég fékk sjálf krabbamein þannig
að ég skil þá vel sem berjast við það mein,
get hjálpað þeim og jafnvel fylgt þeim alveg
fram á síðustu stundu. Ég vil samt ekki
segja að ég sérhæfi mig í að hjálpa dauðvona
fólki og ég geri bara allt sem ég get til þess
að hjálpa öllum sem koma til mín.“
Þóra Stína segir fólk ekkert endilega
þjakað af áhyggjum af framtíðinni þegar það
kemur til hennar. „Þetta er alls konar og
manni getur jafnvel liðið mjög illa án þess að
nokkru í lífinu sé um að kenna. Þá þarf ég
að leita í fyrri lífum vegna þess að stundum
er maður að glíma við fólk í dag sem maður
átti í samskiptum við í öðru lífi og tekur þau
vandamál svo með sér á milli tilverustiga.
Þannig að það er ekki allt sem sýnist.“
Átakanleg leit að Valgeiri
Valgeir Víðisson hvarf af heimili sínu í júní
1994 og síðan hefur ekkert til hans spurst.
Örvæntingarfull leit hans nánustu bar ekki
árangur og fljótlega var talið víst að hann
hefði verið myrtur vegna deilna í kringum
fíkniefnaviðskipti. Faðir Valgeirs lagði sig
allan fram um að finna son sinn eða í það
minnsta komast að því hver örlög hans urðu
og hann leitaði til Þóru Stínu í von um að
hún gæti komist á sporið.
„Ég hjálpaði lögreglunni með þetta and-
styggilega mál og vann með henni á öllum
stigum í eitthvað um þrjár vikur. Ég vil helst
aldrei gera þetta aftur,“ segir Þóra Stína sem
hryllti við því sem hún skynjaði í leitinni
sem fékk á hana bæði andlega og líkamlega.
„Ég hef sagt lögreglunni að ég skuli hjálpa
þeim að henni að leita að týndum börnum
hvenær sem er en ekki í dópmálum og ein-
hverju þannig ógeði.“
Þóra Stína var með lögreglunni á vett-
vangi og á stöðum sem talið var að rekja
mætti slóð Valgeirs. „Þetta tók rosalega
mikið á mig og var erfitt líkamlega. Ég
fór meðal annars í djúptrans sem var mjög
erfiður og sem betur fer var allt tekið upp
á segulband annars myndi ég ekki getað
munað þetta og sagt frá þessu. Það erfiðasta
í þessu máli var þegar ég fór í líkama þess
látna áður en hann dó og fylgdi honum þang-
að til hann hætti að anda. Við þetta lækkaði
blóðþrýstingurinn minn, hjartslátturinn fór
alveg niður í ekki neitt þannig að þetta var
óskemmtileg reynsla.“
Þóra Stína segir rannsóknina hafa verið
umfangsmikla og hún hafi opnað henni sýn
inn í óhugnanlegan heim. „Þetta var mikill
feluleikur og ég vissi ekki hversu ógeðslegir
undirheimarnir eru en eftir að ég komst að
raun um það kæri ég mig ekki um að koma
nálægt þeim aftur.“
Valgeir er enn ófundinn en Þóra Stína
segist hafa náð að þrengja hringinn en
kennileitin sem hún sá hafi verið svo mörg
að lögregla hafi talið ómögulegt að leggjast í
leit út frá þeim.
Ekki alltaf tekin trúanlega
Í bók sinni segir Þóra Stína frá því að hún
hafi heyrt hugsanir lögreglumanna sem
voru með henni í för og að þeir hafi ekki
allir verið jafn ánægðir með að miðli skyldi
blandað í mál þar sem hefðbundnar ran-
nóknaraðferðir ættu við. Hún segir þó að
lögreglan hafi verið tilbúin í samstarf með
henni, hversu einkennilega sem það kunni
að hljóma.
En kemur samt ekki oft fyrir að fólk telji
hana hálf klikkaða og leggi enga trú á hæfi-
leika hennar og getuna til að valsa milli
vídda?
„Jú, jú og mér finnst það fínt. Ef allir
myndu trúa öllu eins og nýju neti þá væri
ekki gaman að vera til. Sem betur fer fæ ég
líka einstaklinga sem trúa ekki og þá þarf ég
að fara öðruvísi að þeim.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Þjáðist með Valgeiri Víðissyni
Þórunn Kristín Emilsdóttir er þekktur
miðill sem hefur áratugum saman
notað skyggnigáfu sína, næmi og
innsæi til þess að hjálpa fólki í alls
konar vandræðum. Sjálf hefur hún
mátt reyna ýmislegt. Hún hefur tekist
á við krabbamein og fyrir nokkrum
árum fékk hún heilablóðfall sem varð
til þess að íslenskan hvarf úr minni
hennar. Þórunn Kristín var á sínum
tíma fengin til þess að aðstoða við
leitina að Valgeiri Víðissyni, sem
hvarf 1994. Þá fékk hún innsýn inn í
hryllilegan heim fíkniefnaviðskipta og
treystir sér varla til þess að skyggnast
ofan í undirheima Íslands aftur. Minn-
ingar hennar eru komnar út í bókinni
Valsað milli vídda og óhætt er að
segja að bókin standi undir nafni þar
sem Þórunn kemur víða við í krafti
skyggnigáfunnar.
Þórunn Kristín Emilsdóttir er þekktur
miðill og hefur nú sagt sögu sína og greint
frá ýmsum upplifunum í bókinni Valsað
milli vídda. Þar segir hún meðal annars frá
aðkomu sinni að leitinni að Valgeiri Víðissyni
á tíunda áratug síðustu aldar. Mynd/Hari
28 viðtal Helgin 7.-9. júní 2013