Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 30
Einstök upplifun
á fornri menningu
Verð á mann í tveggja manna herbergi .
Kr. 314.061,-
Innifalið: Flug, hótel, skattar,
hálft fæði, allar ferðir,
aðgangur þar sem við á og
íslenskur fararstjóri
www.transatlantic.is
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum
ferðamönnum. Enn hefur alþjóðavæðinginn
ekki náð að festa þar rætur og er lítt sjáanleg.
Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á
hverju horni, gríðarfallega náttúru og fagrar
strendur og kynnast einstakri gestrisni
heimamanna þar sem gömul gildi
eru í hávegum höfð.
B andalagið er núna að skoða breyttar áherslur eftir breytingar síðustu ára og við viljum setja kraft í stefnumótun
og gera starfsemina aðgengilegri,“ segir
Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir, nýr formað-
ur Bandalags kvenna í Reykjavík. Að mati
Ingibjargar er bandalagið svolítið gleymdur
vettvangur fyrir samræður félaga sem starfa
að sömu markmiðum, bættri stöðu kvenna,
mennta-, velferðar- og fjölskyldumálum. Um
1.200 konur starfa innan þeirra fimmtán félaga
sem aðild eiga að Bandalagi kvenna í Reykja-
vík.
Konur söfnuðu fyrir Landspítalanum
Þessa dagana vinnur stjórn Bandalags kvenna
í Reykjavík að stefnuskrá þar sem lögð er
áhersla á að efla bandalagið og gera það sýni-
legra út á við. Innan bandalagsins hafa starfað
kvenfélög í bland við stéttarfélög og styrktar-
félög. „Strax í upphafi var þetta mjög fram-
sækin hreyfing og helsti vettvangur umræðna
um bætta stöðu kvenna og samfélagslegrar
þjónustu. Bandalagið beitti sér til dæmis fyrir
því að konur byðu sig fram í opinber embætti
og nefndir og færa má rök fyrir því að kven-
félögin hafi að vissu leyti lagt grunninn að heil-
brigðiskerfinu eins og það er í dag. Það voru
til dæmis konur sem söfnuðu fyrir Landspítal-
anum,“ segir Ingibjörg og bætir við að banda-
lagið hafi knúið á um stofnun barnaheimila og
sorphirðu á vegum sveitarfélaga á sínum tíma.
„Í flestum tilfellum eru þetta grasrótarfélög
sem standa fyrir ákveðnum samfélagslegum
verkefnum í nærumhverfi sínu og ná þannig
einstakri tengingu við íbúana og geta metið
hvar þörf er fyrir aðstoð. Þetta eru öflug félög
Í flestum til-
fellum eru þetta
grasrótarfélög
sem standa fyrir
ákveðnum sam-
félagslegum
verkefnum í
nærumhverfi
sínu og ná þannig
einstakri tengingu
við íbúana og
geta metið hvar
þörf er fyrir
aðstoð. Þetta eru
öflug félög eins og
Hringurinn sem
leggur áherslu á
að bæta aðstöðu
veikra barna,
Thorvaldsens-
félagið og fleiri.
Ný kynslóð nútímavæðir kvenfélögin
Með breyttum tíðaranda hefur starfsemi kvenfélaga tekið
breytingum. Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir er rétt rúmlega
þrítug og nýkjörin formaður Bandalags kvenna í Reykjavík og
stefnir að breyttum áherslum í takt í við nýja tíma.
Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir er aðeins rúmlega þrítug og nýkjörin formaður Bandalags kvenna í Reykjavík. Hún segir verk-
efni kvenfélaga margþætt og að þau snúist ekki öll um bakstur og prjónaskap þó vissulega nýti konur hæfileika sína á þeim
sviðum til að safna fyrir góðum málefnum. Ljósmynd/Hari.
eins og Hringurinn sem leggur áherslu á að bæta
aðstöðu veikra barna, Thorvaldsensfélagið og fleiri,“
segir Ingibjörg.
Kvenfélög á tímamótum
Að mati Ingibjargar standa kvenfélögin nú á tíma-
mótum. „Kvenfélögin hafa ávallt sinnt svokölluðu
„frumkvæðishlutverki“ – það er að koma auga á
málefni sem þarfnast athugunar og finna ný úrræði
til að leysa ýmsan vanda. Í gegnum árin hafa ríkið
og Reykjavíkurborg tekið yfir rekstur og umsjón
með mörgum þeim málaflokkum og verkefnum sem
aðildarfélög bandalagsins höfðu frumkvæði að. Hins-
vegar hafa aðildarfélögin og bandalagið vakað yfir
þeim málaflokkum sem þeim eru nærri hjarta. Sem
dæmi má nefna að konur innan Bandalagsins söfnuðu
fyrir stækkun fæðingardeildar Landspítalans á sínum
tíma,“ segir Ingibjörg.
Vantar fleiri ungar konur
Að sögn Ingibjargar eru uppi áhyggjur hjá sumum
kvenfélaganna um nýliðun þó staðan sé misjöfn.
„Kvenfélögin hafa verið lítið fyrir að flagga starfsemi
sinni og ákveðinn misskilningur virðist þess vegna
ríkja um verkefnin. Margir virðast halda að köku-
bakstur og prjónaskapur sé helsta áhersla þeirra en
verkefnin eru mun margþættari en svo þó konurnar
nýti vissulega hæfileika sína í bakstri og hannyrðum
til að safna fyrir góðum málefnum,“ segir Ingibjörg.
Nýjasta kvenfélagið heitir Silfur og eru flestar kon-
urnar þar á milli þrítugs og fertugs. „Svo má ekki
gleyma því að í Hringnum eru konur á öllum aldri.
Innan okkar vébanda eru líka nokkrar kvennahreyf-
ingar stjórnmálaflokka, eins og félög framsóknar- og
sjálfstæðiskvenna.“
Styrkja ungar konur til náms
Þessa dagana tekur Bandalag kvenna í Reykjavík á
móti umsóknum um styrki frá Styrktarsjóði ungra
kvenna í Reykjavík. Sjóðurinn veitir styrki til ungra
kvenna sem hætt hafa námi og vilja halda áfram en
stendur ekki til boða að taka lán hjá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna. „Sjóðurinn var settur á stofn
árið 1995 eftir að rannsóknir á vegum Rauða krossins
sýndu að það væru einstæðar, lítið menntaðar kon-
ur sem ættu hvað erfiðast uppdráttar í samfélaginu.
Bandalag kvenna í Reykjavík ákvað að mæta þessum
vanda og veitir konum styrki, til dæmis vegna bóka-
kaupa og greiðslu skólagjalda,“ segir Ingibjörg. Um-
sóknarfrestur rennur út 19. júní næstkomandi.
Rannsóknir á stöðu kvenna í dag
Í haust úthlutar Bandalag kvenna í Reykjavík styrk,
í samstarfi við Háskóla Íslands, til lokaverkefnis í
meistaranámi þar sem birtingarmynd kvenna í fjöl-
miðlum er skoðuð. „Þessi styrkur er hluti af nýjum
áherslum hjá Bandalaginu. Það er mikilvægt að skoða
hvaða skilaboð ungar konur fá varðandi staðalímyndir
í fjölmiðlum. Ég geri ráð fyrir því að í framhaldinu
verði fastur liður hjá okkur að styrkja rannsóknir sem
snúa að áherslumálum Bandalags kvenna í Reykjavík,
stöðu kvenna í nútíma samfélagi, mennta-, velferðar-
og fjölskyldumálum,“ segir Ingibjörg. Þema ársins
2013 hjá Bandalaginu er launajafnrétti og stendur til
að halda fyrirlestraröð um kynbundinn launamun
næsta haust. ,,Þessi verkefni eru öll hluti af okkar
nýju áherslum og því markmiði að gera starfsemina
nútímalegri, segir Ingibjörg.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
30 viðtal Helgin 7.-9. júní 2013