Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 07.06.2013, Qupperneq 48
48 heilsa Helgin 7.-9. júní 2013 Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex fyrir liðina Birkilauf fyrir hárið Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Fosfoser Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökva- jafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efna- skiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Betulic www.birkiaska.is Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Evonia  Hreyfing KvennaHlaupið fer fram víða næsta laugardag Karlar velkomnir í Kvennahlaupið Kvennahlaupið fram á yfir áttatíu stöðum á landinu og á nokkrum stöðum utan landsteinanna núna um helgina. Þema hlaupsins í ár er „Hreyfum okkur saman“ og er hlaupið í samstarfi við Styrktarfélagið Göngum saman sem safnar fé til rann- sókna á brjósta- krabbameini. a ð sjálfsögðu eru karlar velkomnir í Kvennahlaup-ið. Það þarf líka mikla karlmennsku til að hafa þor til að hlaupa í kvennahlaupsbol,“ segir Jóna Hildur Bjarnadóttir hjá al- menningsíþróttasviði ÍSÍ. Núna á laugardaginn fer Kvennahlaupið fram á yfir áttatíu stöðum um landið. Erlendis verður hlaupið frá átján stöðum í ellefu löndum. Í ár verður hlaupið undir yfir- skriftinni „Hreyfum okkur sam- an“ og í samstarfi við Styrktar- félagið Göngum saman. Á síðasta ári veitti félagið tíu milljónum króna til rannsókna á brjósta- krabbameini á Íslandi og á síðustu fimm árum hefur félagið úthlutað rúmum þrjátíu og tveimur millj- ónum til rannsókna á brjósta- krabbameini. Á hverju ári greinast um 195 konur með brjóstakrabba- mein á Íslandi en það er algeng- asta krabbameinið meðal kvenna. Níutíu prósent þeirra sem greinast með krabbamein eru á lífi fimm árum eftir greiningu. Að sögn dr. Sigríðar Klöru Böðvarsdóttur, sérfræðings hjá Rannsóknarstofu í krabbameins- fræðum við Háskóla Íslands getur reglubundin hreyfing minnkað líkurnar á því að fá brjósta- krabbamein. „Með tímanum hefur hættan á að greinast með brjósta- krabbamein hjá konum aukist. Það er því ljóst að lífsstíll skiptir miklu máli,“ segir Sigríður Klara. „Ég hef verið svo lánsöm að fá styrk frá Göngum saman og meðal annars í verkefni sem tengj- ast svokölluðum litningaendum en þeir styttast með hækkandi aldri. Það hefur verið sýnt fram á að stytting á þessum endum tengist einnig ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum eins og ákveðnum gerðum krabbameina, hjartasjúk- dómum og áunninni sykursýki. Með hreyfingu getum við hægt á þessu styttingarferli litningaend- anna. Það hefur verið rannsakað vel vísindalega,“ segir Sigríður Klara og bendir jafnframt á að langvarandi streita hafi neikvæð áhrif á þessa litningaenda en að hreyfing geti minnkað neikvæð áhrif streitunnar. Sjálf ætlar Sigríður Klara að hlaupa Kvennahlaupið á Hvamms- tanga og hlaupa tíu kílómetra. „Ég hleyp reglulega og er ánægð með að á Hvammstanga verður líka boðið upp á lengri vegalengdir.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Að sögn dr. Sigríðar Klöru Böðvars- dóttur getur regluleg hreyfing minnkað líkurnar á því að fá brjósta- krabbamein. Mynd/Hari. Allir eru velkomnir í Kvennahlaupið, konur sem karlar og ungir sem aldnir. Mynd/ÍSÍ ekki bara fy rir Reiðhjólafólk Snorrabraut 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.