Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 20
50 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. KYNJALYFIÐ. Saga írá krossferðatímunum. (Eftir Walter Scott.) (Framhald.) Meðan þessu fór fram, safnaðist flokkur her- manna utan um greifann, og voru það mest fylgisveinar hans. Rótti þeim foringinn illa leikinn og fóru að reisa hann á fætur. Kvað nú við úr öllumáttum: »Höggvið niður svarta djöfulinn og hundinn hans!« Gegnum skvaldrið og bölvið í hermönnun- um, heyrðist hin hvella raust konungsins: »Hver, sem gerir hundinum eða svertingj- anum nokkurt mein, skal missa lífið þegar í stað. Hið hygna dýr hefir eigi gert annað en skyldu sfna og notið þess náttúruvits, sem forsjónin hefir gefið því. — Konráð greifi af Montserrot — þú ert þjófur og svikari, eg ber nú á þig, í viðurvisl allra þessara manna, svik og undirferli!* Margir af hinum sýrlensku riddurum stóðu nú kring um greifann, sem farinn var að ná sér eftir árásina. Hann var eigi sá maður, sem þagði við slíkri ákæru, og hafði þegar svar á reiðum höndum, en gremja og sneypa lögðu honum þó orðin í munn. »Hver er tilgangurinn með sh'ku háttalagi!* hrópaði hann. »Hvaða sakir eru hér bornar á mig? Og því er mér sýnd þessi árás og ofbeldi að óvörum? Og hver er tilgangurinn með hinum ærumeiðandi orðum konungsins? Er það á þennan hátt, að England efnir þá samkomulagssáttmála, sem konungur þess ný- lega hefir verið að samþykkja?« »Reiknar Ríkarður konungur höfðingja kross- fararhersins fyrir hirti og héra, fyrst hann sig- ar hundurn á þá?« sagði stórmeistari Musteris- reglunnar, með sinni dimmu grafraust. »Hér er um misskilning og undarlegan við- burð að ræða,« sagði Filippus Frakkajöfur, sem kom að í þessu. »Djöfullinn hefir lagt hér snöru sína,« sagði erkibiskupinn af Týrus. »Fjandakornið — þetta er bara kænskubragð af Serkjum!* hrópaði Hinrik af Campagne. »Pað er rétt að hengja hundinn og leggja svertingjann á píningarbekkinn.« Konungur lyfti hendinni og mælti ógnandi: »Enginn, sem vill lífi halda, vogi sér að hreyfa við þeim. Gakk fram, Konráð, ef þú þorir, og svaraðu ákæru þeirri, sem hið mállausa dýr hefir borið fram gegn þér, sem er í því fólg- in, að þú hafir sært það og hagað þér gagn- vart Englandi sem mesti óþokki.« »Eg hefi ekki snert fánann,« hrópaði greif- inn með geðæsingu. »Orð þín koma upp um þig, Konráð! Rér er þegar Ijóst, að það er fánaránið, sem þú ert sakaður um. Hvernig ættir þú að vita það, hefðir þú eigi þennan glæp á samviskunni?* »Er það ekki alkunnugt, að þú hefir látið éins og vitlaus maður út úr þessu fánahvarfi, og að þér hefir verið það rfkast í huga,« æpti greifinn. »Og vogar þ’í þér að bera slíkt upp á mikilsmetinn aðalsmann, sem einhver hv:nsk- ur ræfill mun hafa gert, til þess að ná gylta þræðinum úr fánadúknum, og svo vílt þú dæma heiðvirðan samherja eftir hundsvitnisburði.« Hávaðinn jókst og menn töluðu í munninn hver á öðrum. Eftir venju, varð það hlut- skifti Filippusar Frakkakonungs, að ráða fram úr vandræðum þeim, er nú horfði til. »Bræður góðir og samherjarU mælti hann með skýrri og hljómmikilli raust. »Gætið þess, að þið talið hér í áheyrn nokkurra manna, sem við getum átt von á að hafi samneyti við óvini vora, og þeir munu eigi hika við að ráð- ast á okkur, ef þeir heyra, að við liggjum í

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.