Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 30

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 30
54 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Hann þrýsti báðum höndum að enni sér, eins og hann vildi gera skiljanlegt, hve mjög það píndi hann, að geta eigi orðið við tilmælum hennar. Hún sneri sér þá frá honum með gremju. »Farðu nú,« skipaði hún, »eg hefi sagt nóg, raunar alt of mikið, fyrst þér viljið ekki eyða einu einasta orði til að svara mér. Farið! segi eg. Hafi eg valdið þeim órétti, sem þér hafið orðið fyrir, þá hefi eg nú fengið hegning fyrir það. Hafi eg verið svo óhamingjusöm, að draga yður niður frá frægðarstöðu, þá hefir mér nú hefnst fyrir það á þessari stundu. Rví sannar- lega hefi eg á þessum fundi gleymt minni eig- in virðingu og lækkað mig bæði í þínum og mínum augum.« Hann þrýsti höndum að andliti sér og virt- ist vera í ákafri geðshræringu. Hann ætlaði að nálgast hana, en hún bandaði honurn frá sér og bauð honum að fara tafarlaust. Riddarinn leit á bréfið frá soldáni, sem lá ólesið þar á borði, var sem hann leitaði þar afsökunar á því, að hann fór eigi þegar. Hún tók bréfið og sagði í fyrirlitlegum róm: »0, það er satt — bréfinu hafði eg nærri gleymt. Eg skil — hinn trúi þjónn, bíður eftir svari.« Hún opnaði bréfið og las það skjótt, sam- rit af því var á frakknesku. Hún skalf af bræði og um varir hennar lék biturt bros. »F*etta gengur þó of Iangt!« hrópaði hún uppvæg, »nú er mælirinn sannarlega fullur. Þessi soldán er vissulega gjörningamaður, að hann getur breytt kristnum riddara og einum af krossfararinnar hrauslustu mönnum í vesæl- an þræl, sem kyssir duftið við fætur hans og skammast sín ekki fyrir að fara í biðilsferð fyr- ir þennan heiðna hund til kristinnar stúlku. En til hvers er að eyða orðum við hinn ves- æla þræl heiðingjans, en þegar svipa hans hefir veitt yður málið aftur, þá segið honum hvað þér hafi séð mig gjöra.« Með þessum orðum kastaði hún bréfinu á gólfið og tróð það undir fótum. »Seg honum að Edith Plantagenet fyrirlíti heiðingjans hylli.« Hún ætlaði síðan að stökkva á brott, en riddarinn, sem í hinni mestu sálarangist hafði kropið fyrir fótum hennar, r.áði í klæðafald hennar og reyndi að halda henni kyrri. Hún snerisl þá gegn honum og mælti: »Heyrðuð þér ekki, hvað eg sagði, heimski þræll. Heilsið þér herra yðar, hinum heiðna soldáni, og segið honum, að bónorð hans sé mér jafn fyrirlitlegt, eins og hylli sú, sem mér væri sýnd af hrakmenni, sem svikið hefði trú sína og riddaralegu æru.« Hún sleit sig því næst Iausa og stökk út úr tjaldinu. í þeim svifum heyrði hann til Neville, sem bauð honum að koma út úr tjaldinu tafarlaust. Vesalings dularklæddi riddarinn var sem nið- urbrotinn af sorg. Hann var hálfruglaður af hinu stranga stríði, er hann hafði orðið að heyja við sjálfan sig. Að hann hafði haldið loforð sitt við Ríkarð konung, fanst honum þessa stundina lítið til um, saman borið við það, að hann hafði bakað sér reiði og fyrirlitningu þeirrar konu, er hann unni hugástum. Hann hélt aftur á leið tii konungstjaldsins á eftir varðliðsforingjanum. Pegar þangað kom var alt á tjá og tundri, því Tómas baróti var kominn aftur og nokkrir gestir með honum, svo lítið varð af viðtali konungs við svertingj- ann það kvöld. Frægt skáld hafði komið með baróninum, meðfram fyrir það varð mikill glaumur og gleði og víndrykkja þetta kvöld í tjaldi kon- ungs, sem drotningin og Edith tóku þátt í. Pó lét konungur eigi hjá líða að rita Saladín bréf og afhenti það svertingjanum, og fól hon- um að leggja af stað með það til soldáns í dagrenning næsta dag. .(Framhald).

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.