Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1919, Blaðsíða 27
KYNJALYFIÐ. 57 Konungur kallaði þá á varðliðsforingjann og mælti: »Fylgið þessum svertingja til tjalda hennar hátignar drotningarinnar, og segið að það sé vilji vor, að hann fái að hitta Edith frærtdkonu mína, þar sem hann hafi boðskap að færa henni.« Svo sneri hann sér að svert- ingjanum og bað hann að hraða ferð sinni sem mest, því hann kvaðst vænta hans aftur eftir hálfa stund. Niðurlútur og með krosslagða handleggi, fylgdi svertingiun varðmanninum Neville til tjalda drotningarinnar. Pað brutust fram marg- ar hugsanir í höfði hans á leiðinni. »Konungurinn hefir grun um, eða jafnvel fulla vissu, hver eg er,« sagði hann við sjálfan sig, »þaö sé eg á öllum sólmerkjum. En eg held þó hann sé ekki neitt mjög reiður við mig. Ef eg skil hann rétt — og það var nú raunar eigi neitt ákaflega erfitt — þá ætlar hann að gefa mér ágætt tækifæri til þess að vinna aftur hina mistu sæmd. Hann vill gefa mér tækifæri til að ganga á hólm við svika- greifann, sem vafalaust er brotlegur, enda leyndi það sér ekki á svip hans og látbragði fyrst, þegar konungur varpaði yiir hann hinni þungu ákæru. Rosval hefir verið mér trúr, enda skal nú misgerðanna við hann verða hefnt.« Svo fór hann að brjóta heilann um annað, og hann hugsaði sem svo: »En þetta síðasta skil eg ekki, hvað merkir það, að eg á nú að fá að sjá hana aftur, sem eg hafði mist alla von um nokkru sinni að fá augum litið? Hvernig fær hinn stolti konungur leyft það, að eg, sendimadur hins heiðna soldáns, hinn seki útlagi, sem vísað var úr herbúðum hans með háöur/g fynr skömmu. — Að eg nú fái að firina hans fögru frænku? Retta er mér óskiljanlegt, einkum þá eg minnist þess, að það var talin ein mín mesta yfirsjón, að hugsa svo hátt að verða ástfanginn í henni. Ríkarð- ur veitti nú sarnþykki s tt til að hún tæki móti hréfi frá vantrúuðum biðli, og hann gerir þá fyrirskipun, að henni sé fæit þetta af jafn lítil- fjörlegum þjór«' og mér. Retta hvorttveggja er næsta undarlegt og ósamrímanlegt við metn- að konungs og stolt. En eg ætla að láta öll skynsamleg rök beygja sig fyrir skilmálalausri hlýðni þjónsins. Ríkarður er göfugmenni og veglyndur, þegar geðofsi hleypur ekki með hann i gönur, og eg vil reynast honum trúr þjónn og hlýða boðum hans, bæði þeim skýru og óskýru, og láta mér nægja skýringar þær^ sem honum þóknast að gefa. Sá maður, sem veitir mér ágætt tækifæri til að skíra minn blettaða skjöld, verðskuldar hlýðni og að skip- unum hans sé að öllu leyti framfylgt.* Kenneth var svo sokkinn ofan í hugsanir sínar, að hann var nærri farinn að tala hátt við sjálfan sig, en hann gætti sín þó og mundi eftir hvaða hlutverk hann var að leika. »En þrátt fyrir alt þekkir hinn göfugi kon- ungur mig eigi vel, fyrst hann þóttist þurfa að ganga svo ríkt eftir, að eg færi eigi að tala við frænku hans Ríkarðar ljónshjarta, ætti hann þó að geta dæmt tilfinningar annara eftir sín- um eigin. Að honum skyldi koma það í hug, að eg mundi dirfast að fara að tala við frænku hans, er næsta undarlegt, — jeg, sem ekki sagði eitt einasta orð við hana, þegar eg tók við sigursverðlaununum úr hönd hennar, þegar eg þótti hafa sýnt, að eg væri einna fræknasti riddarinn í krossfararhernum. Það var blátt áfram heimskulegt að hugsa, að hann mundi fara að tala við hana, þar sem hann nú var í auðvirðilegu þrælsgerfi, það var með öllu ó- hugsandi. Og í raun og veru verðskuldaði hann eigi að bera annað en þrælabúning, með- ann bletturinn var óafmáður á skildi hans.« Pegar hér var komið einlali sálar hans, voru þeir komnir að. inngangi drotningartjaldsins. Verðirnir þar hleyptu þeim þegar inn. Neville lét svertingjann bíða í litlu fortjaldi, en fór ájálfur hiklaust inn í móttökuherbergi drotn- ingarinnar, og skýrði þar greinilega frá skila- boðum konungs. Hann talaði í lágum og undirgefnum róm, enda var hann miklu kurt- eisari við drotninguna og hirðmeyjar hennar, en t. d. barón Tómas, sem enga virðingu bar fyrir neinum manni í herbúðunum, nema kon- ungi. 8

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.