Fréttatíminn - 23.08.2013, Side 48
Námskeið Helgin 23.-25. ágúst 2013
KYNNING
48
KYNNING
Kynning Fjölmörg námsKeið um sjónlistir Fyrir unga og aldna í boði hjá myndlistasKólanum í reyKjavíK
Námskeið um áhrif tækninýjunga á myndlistina
m yndlistaskólinn í Reykjavík býður tugi námskeiða um myndlist og sjónlistir fyrir börn og fullorðna
í vetur.
Auk námskeiða þar sem unnið er með
ólík efni, ólíka tækni og ólíkar aðferðir er
boðið upp á námskeið þar sem listasagan er
skoðuð í nýstárlegu ljósi. Heiti þess er „Lita-
túban og ljósmyndin: Straumar og stefnur
í nútímalist“ og þar leitast Einar Garibaldi
Eiríksson, myndlistarmaður við að varpa
ljósi á myndlist tímabilsins sem kennt er við
nútímann í listasögunni og nær frá miðbiki
19. aldar og framundir 1960.
Á námskeiðinu verða kynntar bæði hefð-
bundnar og nýjar leiðir til skilnings á list
módernismans og reifaðar nokkrar megin-
hugmyndir og kenningar sem markað
hafa umræður um myndlist á tuttugustu
öld. Þarna verður rýnt í nokkur lykilverk
nútímalistarinnar; allt frá verkum raunsæis-
manna og impressionista á nítjándu öld, í
gegnum framúrstefnur í upphafi þeirrar
tuttugustu, allt til popplistar, minimalisma
og hugmyndalistar sjötta og sjöunda áratug-
arins. Sérstaklega verður staldrað við verk
þeirra listamanna er umbreyttu viðteknum
listhugmyndum tímabilsins og vörðuðu
þannig leiðina til þeirrar myndlistar sem við
þekkjum í samtímanum.
Afgerandi áhrif tækninýjunga
Einar Garibaldi segir að hann muni meðal
annars takast á við áhrif þessara tveggja
tækninýjunga sem vísað er til í námskeiðis-
heitinu, litatúbunnar og ljósmyndarinnar,
á listasögu þessa merkilega tímabils.
„Ljósmyndin var uppgötvuð 1839 og það
er tækninýjung sem hafði afgerandi áhrif
á hvernig myndlist þróast í framhaldinu,“
segir Einar Garibaldi. „Og síðan er það
skemmtileg tilviljun að einkaleyfið fyrir
litatúbunni er gefið út þremur árum síðar og
það hefur líka óvænt áhrif á það hvernig til
dæmis málaralistin þróast áfram.“
„Helstu umskiptin sem ljósmyndin veldur
eru þau að með henni verður til tækni sem
fangar útlit veruleikans með fullkomnari
hætti en áður þekktist og þannig breyttust
að mörgu leyti forsendurnar í starfi fjölda
myndlistarmanna. Í stað þess að horfa út
á veruleikann og endurgera hann finnur
myndlistin sér áður ókannaðar lendur til
að rannsaka, lendur sem hún hefði hugsan-
lega ekki fundið nema fyrir tilstilli þessara
tækninýjunga. Það mætti jafnvel leika sér
að því að spyrja hvernig íslensk myndlist
hefði þróast án þeirra eða hvar hefði Kjarval
verið staddur án litatúbunnar í íslenska
hrauninu?“
Sjónarhorn listamanns á listasöguna
„Á námskeiðinu langar mig til að varpa
ljósi á áhrif einfaldra tækninýjunga eins og
þessara. Leyfa mér þannig að fara á svig við
hefðbundnar skilgreiningar á straumum og
stefnum í nútímalist en taka þess í stað eins
konar sneiðmyndir í gegnum listasöguna og
tengja við ýmsar spurningar sem samtíma-
listamenn eru að velta fyrir sér og eiga rætur
að rekja til þess tíma þegar iðnbyltingin og
neyslumenningin voru að byrja að veltast yfir
okkur. Með því vonast ég til að varpa aðeins
öðruvísi ljósi á listasöguna, en sem starfandi
listamaður hef ég tilhneigingu til að líta á
hana út frá sjónarhóli gerandans.“
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja
kynna sér hugmyndir er liggja að baki mynd-
sköpun módernismans og þá merku sögu
og deilur sem mótað hafa listsköpun síðustu
hundrað ára. Skoðuð verða og greind fjöldi
ólíkra listaverka, um leið og hugað verður að
þeim menningar-, heimspekilegu- og sögu-
legu forsendum er lágu þeim til grundvallar.
30 námskeið fyrir börn
Alls býður Myndlistaskólinn í Reykjavík um
30 námskeið fyrir börn og unglinga á aldr-
inum 4-16 ára. Þrjú þeirra eru haldin í nýju
útibúi skólans í frístundamiðstöðinni Mið-
bergi í Breiðholti. Á námskeiðunum fyrir
börn á aldrinum 4-5 ára og 6-9 ára er unnið
með ýmis ólík efni og aðferðir en í þeim
eldri, 10-12 ára og 13-16 ára, er boðið upp á
sérhæfðari námskeið.
30 námskeið fyrir 16 ára og eldri
Almenn námskeið á framhaldsskólastigi eru
opin öllum 16 ára og eldri án skilyrða um
menntun eða reynslu. Í vetur verða haldin um
30 grunn- og framhaldsnámskeið í teikningu,
módelteikningu, málun, vatnslitun og fleiru í
frjóu andrúsmlofti og sérbúinni aðstöðu. Afar
fjölbreyttur hópur nemenda sækir þessi nám-
skeið, fólk á öllum aldri sem hyggur ýmist á
áframhaldandi nám í sjónlistum, er að sækja
sér endurmenntun eða vill einfaldlega læra
eitthvað alveg nýtt, sér til ánægju og yndis-
auka. Kennarar eru allir starfandi myndlista-
menn og hönnuðir með langa reynslu af því
að miðla reynslu og þekkingu sinni.
Skráning á námskeiðin stendur yfir og hef-
ur verið bætt við námskeiðum í teikningu og
leirkerarennslu vegna mikillar eftirspurnar.
Frístundakort og styrkir stéttarfélaga
Námskeiðin eru styrkhæf hjá flestum fræðslu-
sjóðum stéttarfélaga og þá geta börn á aldr-
inum 6-18 ára sem búsett eru í Reykjavík nýtt
sér styrk Frístundakortsins. Skráning fer fram
á heimasíðu skólans www.myndlistaskolinn.is.
Einar Garibaldi Eiríksson vonast til að varpa aðeins öðruvísi ljósi á listasöguna á námskeiði Mynd-
listaskólans í Reykavík um tækninýjungar og þróun myndlistar. „Sem starfandi listamaður hef ég
tilhneigingu til að lýta á listasöguna út frá sjónarhóli gerandans.“ Ljósmynd/Hari
Þórunn
Jónsdóttir,
viðskiptaþró-
unarstjóri
Skema,
og félagar
hennar kenna
börnum frá
sex ára aldri
að forrita
eigin tölvu-
leiki.
sKema Kennir börnum Frá sex ára aldri að Forrita eigin tölvuleiKi
Þau geta þetta
“Okkar markmið er að uppfæra menntun í takt við tækni-
þróun,” segir Þórunn Jónsdóttir viðskiptaþróunarstjóri Skema.
Auk forritunarnámskeiða fyrir börn býður fyrirtækið kenn-
urum námskeið í forritunar- og tölvukennslu.
F yrirtækið Skema kennir börnum frá til 6-16 ára að forrita tölvuleiki og hafa námskeiðin notið mikilla vinsælda frá því þau hófust árið
2011. Um 700 börn sóttu slík námskeið hjá Skema í
sumar.
„Núna í haust verðum við með námskeið
fyrir þennan aldurshóp víðsvegar á höfuð-
borgarsvæðinu og á landsbyggðinni, til
dæmis á Akureyri og í Reykjanesbæ“ segir
Þórunn Jónsdóttir hjá Skema. „Kennslan
byggir á aðferðarfræði sem við höfum þró-
að og er byggð á rannsóknum í kennslu-
fræði, sálfræði og tölvunarfræði.“
„Okkar markmið er að uppfæra mennt-
un í takt við tækniþróun,“ segir Þórunn.
Skema er fyrirtæki sem sérhæfir sig í
kennslu og rannsóknum – með sálfræði,
kennslufræði og tölvunarfræði að leiðar-
ljósi. Þar starfa sérfræðingar í tölvun-
arfræði, margmiðlun, sálfræði, og með
kennaramenntun.
Kennd er tölvuleikjaforritun í þrívíðu umhverfi og
er notast við ýmis forrit við kennsluna.
Nemandi vann forritunarkeppni í Bandaríkjunum
„Í lok námskeiðisins eiga börnin að kunna að forrita
sinn eigin tölvuleik,“ segir Þórunn. „Þau koma til okk-
ar frá 6-7 ára aldri og við höfum sýnt fram á að börn á
þessum aldri geta vel lært að forrita.“
Við kennsluna er notaður opinn hugbúnaður, Alice,
sem kostar ekkert en tölvur eru í kennslustofunum.
Auk grunnnámskeiðsins eru boði ýmis konar fram-
haldsnámskeið fyrir mismunandi áhugasvið og ald-
urshópa.
Einn af nemendum Skema, Ólína Helga Sverrisdótt-
ir, 12 ára, nýtti færnina sem hún lærði á námskeiðinu
með miklum glæsibrag þegar hún vann forritunarkeppni
hjá bandarísku alríkislögreglunni FBI fyrir tölvuleik um
öryggi á netinu.
Kennt á tólf stöðum víða um land í haust
Forritunarnámskeið Skema verða haldin á tólf stöðum í
haust; bæði í aðstöðu fyrirtækisins í Háskólanum í Reykja-
vík og í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu og einnig
á Akureyri, í Reykjanesbæ, Grindavík og á Akranesi, en
fyrirtækið er í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar á
landsbyggðinni.
Á hverjum stað er einn fullorðinn kennari og svö börn
sem hafa áður útskrifast af námskeiðinu og hafa fengið
vinnu sem aðstoðarleiðbeinendur hjá Skema. Námskeiðin
standa yfir í 10 vikur og er kennt einu sinni í viku í klukku-
tíma og korter í senn. Hægt er að nýta frístundastyrki til
að greiða fyrir námskeiðin hjá öllum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu og víðar. Nánari upplýsingar eru
veittar á skema.is <http://skema.is/> .
Námskeið fyrir kennara og handleiðsla til skóla
Auk fyrrgreindra námskeiða hefur Skema að markmiði að
stuðla að því að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og
framhaldsskólum landsins.
Skema vinnur að markmiðinu um að stuðla að kennslu í
forritun í skólum með því að bjóða endurmenntunarnám-
skeið fyrir kennara, bæði í forritun og sérstök iPad-nám-
skeið fyrir kennara.
„Við byrjuðum að halda þau í fyrra og þau hafa verið vel
sótt og eru skemmtileg viðbót við endurmenntunarflór-
una sem er í boði,“ segir Þórunn.
Fyrirtækið býður einnig grunnskólum og framhalds-
skólum aðstoð og handleiðslu við að innleiða forritunar-
kennslu og tók þátt í að innleiða forritunarkennslu í Hofs-
staðaskóla í Garðabæ með góðum árangri og einnig í
Fjölbrautarskólann í Breiðholti.
Börn með sérþarfir blómstra hjá Skema
Skema vinnur einnig að rannsóknum á þeim áhrifum
sem kennsla í forritun hefur á hina ýmsu þætti þroska og
námsgetu barna.
Þórunn segir að í nemendahópnum hafi verið mörg
börn á einhverfurófinu og með ADHD, ADD og aðrar
raskanir sem hafi blómstrað í forrituninni.
Birgir Jóhannes Jónsson er einn þeirra krakka sem lært hafa að forrita tölvuleiki hjá Skema.