Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 10
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Þ Þungu fargi er létt af Íslendingum. Icesave-málið hefur legið sem mara á þjóðinni allt frá falli Landsbankans. Sýknudómur EFTA-dómstólsins á mánudaginn hafnar því að íslensk stjórnvöld hafi brotið gegn tilskipun
um innstæðutryggingar eða mismunað
innstæðueigendum. Þegar upp er staðið
kemur endanlega í ljós hver bjarghringur
neyðarlögin, sem sett voru haustið 2008,
voru íslenskri þjóð en þar var
innstæðum veittur forgangur
á almennar kröfur. Í því ljósi,
meðal annars, er dapurlegt
að líta til þeirrar lánlausu veg-
ferðar sem naumur meirihluti
Alþingis lagði í gegn Geir H.
Haarde einum í Landsdóms-
málinu.
Icesave-málið snerist, eins
og Stefán Már Stefánsson
lagaprófessor hefur bent á,
um hvort Ísland hafi fullnægt
tiltekinni grein fyrrgreindrar tilskipunar
um að greiða öllum innstæðueigendum 20
þúsund evrur og hvort Íslandi væri skylt að
greiða þá fjárhæð. Í viðtali segir prófess-
orinn að fallist hafi verið á með ítarlegum
rökum að tilskipunin geri ekki ráð fyrir
ríkisábyrgð af þessu tagi heldur eigi ríkin
aðeins að innleiða tilskipunina og hafa visst
eftirlit með því að innlánatryggingakerfinu
sé komið á fót en skyldurnar gangi ekki
lengra en það. Stefán Már bendir enn fremur
á að dómurinn sé í raun að segja að þegar
allsherjarhrun verði hafi ríki mjög víðtækt
vald til að ráða þar bót á.
Ferill Icesave-málsins nær allt aftur til
haustsins 2006 þegar Landsbankinn hóf
að taka við innlánum í Bretlandi undir því
merki sem nú er alræmt, Icesave. Svo seint
sem á vordögum 2008 hóf bankinn sömu
starfsemi í Hollandi. Forseti Íslands synjaði
staðfestingar lögum um Icesave-samninga
við Breta og Hollendinga í tvígang sem
leiddi til þess að Eftirlitsstofnun EFTA
ákvað að stefna íslenska ríkinu fyrir EFTA-
dómstólinn. Meirihluti þjóðarinnar ákvað
því í raun í þjóðaratkvæðagreiðslu að málið
færi dómstólaleiðina, sem nú hefur leitt til
hinnar farsælu niðurstöðu, sýknu af öllum
kröfum. Einörð barátta grasrótarhreyfinga
almennings gegn því að íslenskir skatt-
greiðendur bæru ábyrgð á Icesave hafði
mikil áhrif. Þar var staðið fast gegn kröfum
Breta og Hollendinga sem kristallaðist í
þeirri skoðun InDefence-hópsins að engin
lögmæt greiðsluskylda hvíldi að baki kröfu
stjórnvalda þjóðanna tveggja að íslenskir
skattgreiðendur gengju ábyrgð fyrir þær
skuldbindingar sem einkafyrirtækið Lands-
bankinn stofnaði til með Icesave-innláns-
reikningunum. Niðurstaðan nú er því ekki
síst sigur íslensku þjóðarinnar.
Tjónið af falli Landsbankans – og hinna
íslensku bankanna, Kaupþings og Glitnis
– er gríðarlegt, bæði beint og óbeint. Það
tjón bera margir, innlendir og erlendir. Í
þeim hópi eru bæði lánveitendur og skatt-
greiðendur. Því ber þó að halda til haga að
greiðslur úr þrotabúi Landsbankans munu
standa undir forgangskröfum, meðal annars
vegna Icesave-innstæðureikninganna, og
hluti nær til greiðslu annarra krafna. Vissu-
lega er ástæða fyrir Íslendinga til að gleðjast
yfir hagstæðum dómi og fullnaðarsigri í
Icesave-málinu en hóf er best í öllu. Það sitja
nefnilega margir eftir með sárt ennið. Aldrei
má gleyma þeirri háskasiglingu sem ís-
lensku bankarnir voru á áður en allt hrundi.
Þar léku glæframenn sér með fjöregg þjóðar
sinnar. Í svo óábyrga för má aldrei leggja
aftur. Til þess eru vítin að varast þau.
Dómsniðurstaðan nú eyðir óvissu í ís-
lensku efnahagslífi bæði hvað varðar skuld-
bindingar ríkissjóðs og efnahagshorfur
þjóðarinnar. Sendifulltrúi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins hér á landi bendir á að meðal
jákvæðra áhrifa í kjölfar hans sé auðveldari
aðgangur en verið hefur að alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Bæði sjóðurinn og
lánshæfismatsfyrirtækin hafa talið mögu-
legan kostnað vegna Icesave verulegan
áhættuþátt fyrir íslenska hagkerfið. Því ætti
dómurinn að skapa grundvöll fyrir bætt
lánshæfismat ríksins og hugsanlega verið
skref í átt að aukinni og nauðsynlegri fjár-
festingu og þegar fram líða stundir liður í
afnámi hafta. Síðast en ekki síst eykur hann
bjartsýni fólks á framtíðina hér á landi –
sem ekki veitir af.
Fargi létt af Íslendingum eftir sigur í Icesave-málinu
Vegurinn til framtíðar varðaður
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Gafst hún upp á rólunum?
Grýla gamla er loksins dauð!
Björgólfur Thor Björgólfsson
fagnaði Icesave-dómnum og
kastaði rekunum ofan í gröf
óværunnar.
Súru berin í Brussel
Við getum búist við að menn
séu súrir í Brussel, miðað við hvernig
þeir settu sitt fram.
Steingrímur J. Sigfússon reiknaði ekki
með miklum fögnuði hjá ESB í kjölfar
Icesave-niðurstöðunnar.
Latté-lepjandi pakk
Ég lít á ykkur sem hyski.
Sigurður Harðarson, stjórnarmaður
Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi,
vandaði ekki Jóni Gnarr borgarstjóra og
hans fólki kveðjurnar á sögulegum
íbúafundi í vikunni.
Tær snilld Ólafs
Og í dag er í mínum huga
eiginlega efst þakklæti til
forsetans fyrir að hafa staðið
sig svona vel. Ef hans hefði
ekki notið við þá hefði þetta getað
endað mjög illa.
Sigurjón Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans og Icesave-
foringi, er þakklátur forsetanum fyrir
að hreinsa upp eftir sig og hans fólk.
Þannig að Icesave gekk
upp?
Við höfum sagt þetta alla
tíð. Ef réttlætið á að blíva
þá var þetta ósköp ljóst.
Aldrei nein ríkisábyrgð,
aldrei, og peningar til
fyrir þessu og allt í orden.
Björgólfur Guðmundsson
botnar ekkert í öllum
látunum í kringum Icesave nú
þegar dómur liggur fyrir.
Ég ákæri!
Þetta fólk benti á mig sem sökudólg, en
Landsdómur hafnaði því eins og öllum
þeim atriðum sem sneru beint að
bankahruninu. Ég gef ekki mikið fyrir
þessi orð.
Geir H. Haarde var gerður að
sökudólgi og telur rétt að leita nú að
sökudólgum í Icesave-samningaruglinu.
Hvar eru allar stelpurnar?
Ég vona að þetta verði einstakt
atvik í sögu verðlaunanna.
Kynjahlutföllin eru
kengboginn í tilnefningum
til Eddu-verðlaunanna.
Fimm manns eru
tilnefndir fyrir leikafrek
í karlaflokkunum en
aðeins þrjár konur í
sambærilegum flokkum. Brynhildur
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
verðlaunanna, treystir á að þetta
endurtaki sig ekki.
Stúlka fær nafn
Já, þetta er búið að vera svolítið mikið
stress.
Blær Bjarkardóttir hafði ríka ástæðu
til að fagna í vikunni en þá kvað
héraðsdómur upp þann dóm að hún
mætti bera nafnið Blær. Hún þarf því
ekki lengur að heita Stúlka í vegabréfinu
sínu.
Vikan sem Var
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
Ú
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
Ú
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
lÍs en ku
A PARNIR
s
Úlpur allt að 50% afsláttur
Krakkaúlpur 40% afsláttur
Útivistarjakkar allt að 60% afsláttur
og eira og eira...
Ekki missa af þessu
Takmarkað magn!
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
ORKA SEM ENDIST
Weetabix er frábær leið til að
byrja daginn. Veldu næringar-
ríkan morgunverð sem heldur
þér gangandi fram að hádegi. •
•
Sykurminnsta
morgunkornið
Sykurinnihald er það
lægsta sem gerist
í morgunkorni.
4,4 g sykur í 100 g
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 120578
Vissulega er ástæða fyrir Íslendinga til að gleðjast yfir hag-
stæðum dómi og fullnaðarsigri í Icesave-málinu en hóf er
best í öllu.
10 viðhorf Helgin 1.-3. febrúar 2013