Fréttatíminn - 01.02.2013, Síða 24
Matti segist margoft hafa fengið
þá spurningu frá konum hvort það
sé ekki erfiðara fyrir karla að tak-
ast á við áföll því þeir eigi erfiðara
með að tala um þau. „Svarið við því
er nei, það er ekki erfiðara, það er
bara öðruvísi,“ segir hann. „Auð-
vitað er nauðsynlegt og mikilvægt
fyrir okkur að ræða um vandann
en við erum einfaldlega ekki til-
búnir undir það eins fljótt og kon-
ur,“ segir hann. „Ég komst að því
að konur voru í raun að segja: er
ekki betra að þið gerið þetta eins
og við?“
Karlar og konur hugsa á ólíkan
hátt
Konur og karlar hugsa á ólíkan
hátt, að sögn Matta. „Karlar
þurfa að fá að vera karlar og fá að
bregðast við eins og karlar en ekki
eins og konur halda að þeir eigi að
bregðast við – eins og þær,“ segir
hann. „Einn karl orðaði þetta á
mjög áhugaverðan hátt: „Það er
alltaf verið að segja okkur að það
sé eitthvað að okkur,““ segir Matti.
„Það er ekkert að okkur, við erum
bara ólíkir konum,“
segir hann.
„Þegar karlar þegja
er ekki endilega eitt-
hvað að. Þeir eru
kannski að hugsa mál-
in og leysa þau innra
með sér. Það er mikil-
vægt skref í lausna-
ferlinu fyrir karla og
þeir eru ef til vill ekki
tilbúnir til að ræða
erfið mál fyrr en þeir
hafa leyst þau með
sjálfum sér fyrst,“
bendir hann á. „Konur
túlka þögn karlanna
oft rangt. Það er
mikilvægt að leiðrétta
þann misskilning að
þegar karlar þegja
sé eitthvað að,“ segir
hann.
„Við karlar heyrum
konur oft gagnrýna
okkur fyrir að tala
ekki nóg. Það er hins
vegar ekki rétt. Við
tölum við sjálfa okkur
á meðan konur tala
við aðra. Við þurfum að gera það
áður en við getum rætt við aðra.
Þetta er eins og að fara á mikil-
vægan fund – maður verður að
undirbúa sig fyrst,“ segir hann.
Tungumál kynjanna ólíkt
Matti bendir jafnframt á að tungu-
mál kynjanna sé ólíkt. „Konur
búa yfir miklu meira tilfinninga-
tungumáli en karlar. Þær tala um
fólk, sambönd og hvernig fólki
líður. Samtöl karla einkennast mun
fremur að miðlun upplýsinga. Þess
vegna eiga kynin oft í svo miklum
vandræðum með sam-
skipti,“ segir Matti
og hlær. Hann segir
jafnframt að karlmenn-
irnir á námskeiðinu séu
sammála um að eigin-
konan sé þeirra mesti
stuðningur.
Sérkenni karlmanna
og ólík viðbrögð gagn-
vart áföllum er ástæðan
fyrir því að Ljósið, sem
er endurhæfingar- og
stuðningsmiðstöð
fyrir fólk sem hefur
fengið krabbamein og
aðstandendur þeirra,
standa fyrir sérstöku
námskeiði eingöngu
ætlað karlmönnum.
Markmið námskeiðsins
er að karlmenn fái upp-
byggjandi fræðslu og
eigi tækifæri á að hitta
aðra karlmenn í sömu
aðstæðum. Að sögn
Matta er á námskeiðinu
meðal annars farið í
gegnum það breytinga-
ferli sem karlmenn
ganga í gegnum við það að veikjast
og haldnir eru fyrirlestrar um
mikilvægi þess að byggja sig upp
andlega og líkamlega og mikilvægi
þess að setja sér markmið.
Kynning á námskeiðinu er
mánudaginn 4. febrúar klukkan
17.30 í Ljósinu og eru makar vel-
komnir.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
K arlar og konur bregðast á mjög ólíkan hátt við áföll-um, að sögn Matta Ósvalds
Stefánssonar, sem heldur regluleg
fræðslunámskeið fyrir karla með
krabbamein. Konur sækja í stuðn-
ingsnetið en karlar sækja styrk í
einveru.
„Konur tala við vinkonur sínar,
systur eða mæður þegar þær
verða fyrir áföllum og þær halda
að karlar þurfi að gera hið sama,“
segir Matti. „Það er erfitt fyrir
konur að samþykkja að við þurfum
að bregðast öðruvísi við en þær.
Við þurfum frið til að hugsa málið
áður en við erum tilbúnir að ræða
það,“ segir hann.
Karlar sækja styrk í einveru
Kynin bregðast á ólíkan hátt við áföllum. Konur leita til stuðningsnetsins en karlar sækja styrk í
einveru, að sögn Matta Ósvalds Stefánssonar, sem heldur námskeið fyrir karla með krabbamein.
Hann segir að karlar verði að fá að taka á áfallinu á sinn hátt – og konur verði að leyfa þeim það.
Yfirlit | 2006 - 2010
Karlar Konur
Meðalfjöldi tilfella á ári 737 660
Meðalaldur við greiningu 67 ár 64 ár
Meðalfjöldi látinna á ári 287 252
Fjöldi á lífi í árslok 2010 5.021 6.302 737
Karlar
Árabilið
2006 - 2010
greindust að
meðaltali árlega
með krabbamein.
KrabbameinssKrá
Íslands
Krabbamein
660
Konur
Þegar karlar þegja er
ekki endilega eitthvað
að. Þeir eru kannski að
hugsa málin og leysa
þau innra með sér.
Krabbameinum
Karla raðað eftir árlegum
meðalfjölda 2006 - 2010*
222 blöðruhálskirtill
77 lungu
57 Þvagvegir og þvagblaðra
56 ristill
39 Húð án sortuæxla
29 Nýru
22 Heili og miðtaugakerfi
21 Eitilfrumuæxli
19 Sortuæxli í húð
18 Endaþarmur
*Krabbameinsskrá Íslands
Matti Ósvald Stefánsson ráðgjafi heldur
sérstök námskeið fyrir karla með krabba-
mein því karlmenn bregðast á annan hátt
við áföllum en konur.Ljósmynd/Hari
24 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013