Fréttatíminn - 01.02.2013, Qupperneq 28
Þ egar Sigrún Lilja var 24 ára stóð hún á krossgötum í lífinu og fannst hún þurfa að ákveða hvort hún héldi áfram
að mennta sig eða reyna að hasla sér völl sem
hönnuður. Hún ákvað að láta hjartað ráða för
og þegar hún var í sólarlandaferð með fjöl-
skyldu sinni yfir jól og áramót í Eyptalandi
hannaði hún fyrsta skóparið sitt og lét búa það
til á staðnum. Og eftir það var ekki aftur snúið.
Gyðja Collection varð til í Egyptalandi og
þaðan kom íslenska gyðjan endurnærð, tilbúin
til þess að standa eða falla með draumi sínum.
„Ég var í fríi í Egyptalandi þegar ég fékk
hugmyndina að fylgihlutalínu með skóm,
töskum og beltum þannig að það má segja að
Gyðja hafi orðið til í Egyptalandi. Ég hannaði
fyrsta parið á mig og það var svolítið magnað
og gaman að því að ég fékk hugmyndina þarna
og ákvað að gera þetta. Ég lenti bara í þessum
aðstæðum. Ég fór inn í verslun þar sem verk-
smiðja var baka til og þá datt mér þetta í hug
og spurði hvort þeir gætu framleitt fyrir mig
skópar. Sem reyndist ekki vera neitt mál. Í
kjölfarið fór ég að hugsa og láta mig dreyma
og ákvað bara að prófa þetta og þarna byrjaði
Gyðja.“
Tók fyrstu sporin í 30 skópörum
Sigrún Lilja lagði grunninn að Gyðja Col-
lection með rúmlega 200.000 krónum. Hún
stofnaði vefverslun sem kostaði hana um það
bil 100.000 krónur og pantaði fyrstu skó-
sendinguna sem kostaði hana aðrar 100.000
krónur.
„Þannig að Gyðja byrjaði á 30 pörum af
skóm. Ég fann strax mikinn meðbyr og að kon-
ur væru spenntar fyrir þessu. Pörin 30 seldust
upp sem mér fannst nú bara býsna gott og þá
fór ég að hugsa þetta lengra,“ segir Sigrún
Lilja sem vann hjá fjölskyldufyrirtækinu Tanna
auglýsingavörum á daginn og sinnti Gyðju á
kvöldin.
„Ég þróaði drauminn og hann stækkaði og
stækkaði og í lok ársins 2008 ákvað ég að fara
í þetta á fulla ferð. Hrunið var nýskollið á en þá
bauð Nýsköpunarmiðstöð Íslands upp á skrif-
stofuhúsnæði á góðu verði fyrir frumkvöðla-
starf. Mig langaði að reyna að spreyta mig á
fyrirtækjarekstri og að byggja þessa línu upp.
Ég hafði trú á Gyðju, átti mér draum og ákvað
að láta hann rætast.“
Sigrúnu Lilju hefur gengið vel með Gyðja
Collection á Íslandi, hún hefur vakið athygli í
útlöndum og stendur nú aftur á krossgötum
og þarf að ákveða hvort rétti tíminn til þess að
sækja fram erlendis sé kominn.
„Stundum virðist vera að fólk eigi svolítið
erfitt með að trúa því að það sé ég sem standi á
bak við þetta fyrirtæki. Fólk heldur oft á tíðum
að það sé eitthvert stórt batterí og mikið fjár-
magn á bak við mig en svo er alls ekki. Þetta
er í raun og veru bara ég og ég byrjaði með
200.000 krónur og hef svo tekið þetta skref
fyrir skref og látið þetta byggjast upp innan
frá. Ég hef hingað til kosið að fá ekki fjárfesta
til liðs við mig og það tekur alveg á að standa
ein í þessu og maður þarf að vera þrautseigur
og einbeittur. Maður verður að vera duglegur
og tilbúinn til þess að gefa sig alveg í þetta. Ég
lifi og hrærist í þessu og elska það sem ég er
að gera.“
Fyrst Ísland, svo heimurinn
„Ég finn alveg að Gyðja er á ákveðnum
tímamótum núna og við höfum tækifæri til að
stækka mikið og það er náttúrlega það sem
mig langar til að gera. Í dag erum við orðin
fjögur sem erum í fullu starfi á skrifstofunni
og svo eru tveir í hlutastarfi. Við erum búin að
ná fínum árangri á innanlandsmarkaði, erum
búin að vera að þreifa fyrir okkur á erlendum
mörkuðum og það hefur gengið ágætlega.
Gyðja Collection er núna með 15-20 sölufull-
trúa í útlöndum og við stefnum að því að þeir
verði orðnir 100 í lok þessa árs. Við erum að
Ég er ekki með háskóla-
menntun í markaðsfræði
en tel mig samt vera með
hálfgerða meistaragráðu í
þeim fræðum eingöngu í
gegnum sjálfmenntun.
Gyðjan sem fer sínar eigin leiðir
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hefur gert
það gott með fylgihlutalínu sinni og
ilmvötnum sem hún setti á markað
undir merkjum Gyðja Collection. Hún
trúir á mátt viljans og hvetur allar
konur sem eiga sér drauma að láta þá
rætast. Engar hindranir séu í raun svo
stórar að ekki megi komast yfir þær.
selja í nokkrum löndum og gengur mjög vel
. Við erum til dæmis með ilmvötnin okkar í
sölu og það koma pantanir í hverri viku alls
staðar að úr heiminum.“
„Mig langar að setja ennþá meiri kraft í
sóknina á erlenda markaði því ég hef séð
hversu gríðarlega miklir möguleikar og
tækifæri eru til staðar fyrir okkur að vaxa
verulega erlendis. En þrátt fyrir að okkur hafi
tekist ágætlega upp með tiltölulega hógværu
fjármagni þá veit ég að það getur verið veru-
lega kostnaðarsamt ef maður ætlar að fara út í
markaðssetninguna af alvöru og í samkeppni
við rótgrónu risana sem eru fyrir á markaðn-
um. Þannig að við erum fyrst núna farin að
kanna möguleika á að fá inn stærri fjárfesta.
Ég er samt ekki ákveðin í því og geri það ekki
nema að mjög vel athuguðu máli. Ég fer mjög
varlega í þetta enda skiptir miklu máli að fá
inn fólk sem maður getur treyst og vill leyfa
hjarta fyrirtækisins að slá áfram. Þess vegna
hef ég ekki gert þetta hingað til og farið
frekar hina leiðina sem getur verið mjög erfið.
Maður hefur líka heyrt um mjög marga sem
hafa lent í vandræðum eftir að hafa tekið inn
fjármagn og það hefur oft orðið fyrirtækjum
að falli bara vegna þess að samstarfið gengur
ekki upp. Þetta er vandmeðfarið og þarf að
vanda vel tl verka, sérstaklega þar sem fyrir-
tækið er í raun orðið „barnið“ manns.
Sigrún Lilja segist þó, hvað sem öllu líður,
vera tilbúin til þess að taka stóra skrefið út
fyrir landsteinana. „Maður verður að sigra
heimamarkaðinn áður en maður leggur til
atlögu á erlendum mörkuðum. Þeir sem
stökkva strax út í djúpu laugina og ætla að
sigra allan heiminn í einu geta lent í miklum
erfiðleikum. Það er að mínu mati mjög gott
og mikilvægt að byggja heimamarkaðinn
vel upp fyrst, vinna svo út frá honum og hafa
alltaf baklandið sterkt.“
Lá á út í lífið
„Ég hef unnið allt mitt líf eins og skepna, er
alin upp við það og þekki í raun ekkert annað.
Foreldrar mínir eru dugnaðarforkar sem hafa
alla tíð unnið langa daga og mjög mikið. Ég
er afar þakklát fyrir að hafa haft slíkar fyrir-
myndir í uppvextinum og í raun lært að vinna.
Það nýtist mér mjög vel í því sem ég er að
gera núna því að Gyðja er þegar upp er staðið
byggt upp á mjög mikilli vinnu og endalausri
þrautsegju.
Ég byrjaði að sjá fyrir mér að mestu sjálf
þegar ég var sextán ára svona að minnsta
kosti hvað veraldlega hluti snerti og vann alla
tíð með skólanum. Ég var í FB á daginn og
vann svo hjá fjölskyldufyrirtækinu, Tanna
auglýsingavörum, til ellefu flest virk kvöld.
Mig langaði í háskólanám eftir stúdentsprófið
en taldi mig í raun ekki hafa efni á því að fara
í fullt nám. Ég gat ekki hætt að vinna þar sem
ég lifði frekar hratt og var þá búin að kaupa
mér mína fyrstu íbúð sem ég gerði frekar ung
og var komin með bíl og hund. Það voru því
skuldbindingar sem ég gat ekki hlaupið frá
og námslán hefðu vart dugað fyrir.
Á meðan ég var að velta fyrir mér hvað ég
vildi gera með nám og annað eftir stúdents-
prófið byrjaði ég að vinna í fullu starfi í fjöl-
skyldufyrirtækinu Tanna.“
Sigrún Lilja dreif sig þó í fjölmiðlafræði við
Háskóla Íslands. „Ég var samt áfram í fullri,
mjög krefjandi vinnu hjá fjölskyldufyrirtæk-
inu en naut þess samt að vera að vinna hjá for-
eldrum mínum sem vildu að sjálfsögðu að ég
menntaði mig og því gat ég stokkið í einstaka
tíma upp í Háskóla beint úr vinnunni, vann
svo fram á kvöld og lærði fram á nótt flesta
daga.“
Sigrún Lilja og maðurinn hennar, Reynir
Daði, kynntust á Kanaríeyjum þegar Sigrún
Lilja var nýorðin sautján ára en hann er rúm-
lega árinu yngri.
„Ég á alveg yndislegan mann. Við vorum
mjög ung þegar við kynntumst og við höfum
þroskast saman og ég myndi segja að sam-
band okkar sé mjög fallegt. Við virðum hvort
annað mjög og erum mjög góð hvort við
annað. Hann er stoð mín og stytta og það er
ómetanlegt að eiga mann sem styrkir mig
á hverjum degi í stað þess að rífa mig niður.
Stuðningur hans gerir það að verkum að ég
get gert það sem ég er að gera. Ef maður á
ekki sterkt bakland er svo erfitt að komast
áfram.“
Þegar Sigrún Lilja var 23 ára gömul réðust
hún og Reynir Daði í það stóra verkefni
að byggja sér húsið sem þau búa í. „Húsið
var um ár í byggingu og við kláruðum það
að mestu sjálf eftir að það var fokhelt. Þá
vorum við að til klukkan 2 og 3 allar nætur að
byggja, svo var unnið á daginn og á þessum
tíma var ég líka í skóla þannig að okkur skorti
ekki verkefnin. Þessi reynsla að byggja sér
hús kemur sér oft voða vel og ég hef gaman
að því að vera flink á borvélina þegar á þarf
að halda.“
Sjálfmenntaður markaðsfræðingur
Eftir háskólanámið sótti Sigrún Lilja ýmis
námskeið í viðskipta- og markaðsfræðum
Framhald á næstu opnu
Sigrún Lilja hefur fengið svo mikið af fyrirspurnum frá konum sem vlija fá hjá henni ráð um hvernig þær eigi að koma hugmyndun sínum á framfæri og láta
þær verða að veruleika að hún ákvað að slá upp helgarnámskeiði 9.-10. febrúar þar sem hún miðlar af reynslu sinni. Draumurinn er síðan að þróa námskeiðið,
Konur til athafna, fyrir konur í þróunarlöndunum í góðgerðarskyni. „Þetta eru konur sem sem eiga sínar vonir og drauma alveg eins og við og ég vil hvetja kon-
ur alls staðar til þess að láta drauma sína rætast. Við eigum allar drauma og markmið og við megum alveg hugsa stórt. Það er allt hægt!“ Ljósmyndir/Kári Sverris
28 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013