Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 36
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Þ
að var alveg sama við
hvaða lækni ég talaði, ég
var bara álitin þunglynd,“
segir Matthildur Krist-
mannsdóttir, sem barðist
í þrjú ár við erfið veikindi án þess að
fá á þeim aðra skýringu en þá að hún
væri þunglynd – sem hún vildi ekki
samþykkja. „Ég svaf stóran hluta
sólarhringsins og gat alls ekki séð
um mig sjálf. Ég fékk hinsvegar enga
hjálp í kerfinu því ég var með þung-
lyndisgreiningu og átti í raun bara að
rífa mig upp úr þunglyndinu og koma
mér út í göngutúra. Ég stóð hinsvegar
ekki á fótunum og þó svo að viljinn
væri fyrir hendi gat ég einfaldlega
ekki gengið,“ segir hún.
Margoft hringdi Matthildur á
sjúkrabíl vegna mikilla kvala og full-
komins orkuleysis en fékk alltaf sömu
meðferðina á bráðamóttökunni. „Ég
var alltaf send heim aftur – þó svo að
ég væri svo veik að ég gæti ekki annað
en legið í rúminu hjálparlaus. Fjöl-
skylda og vinir voru orðnir ráðalausir
og tóku í raun sama pólinn í hæðina
og læknarnir, héldu að ég ætti við
alvarlegt þunglyndi að stríða. Ég var
orðin alein. Það var eiginlega komið
þannig fyrir mér að mig langaði til að
deyja því enginn hlustaði á mig,“ segir
Matthildur.
Hringdi ítrekað á sjúkrabíl
Veikindi Matthildar voru viðvarandi í
Kvaldist í þrjú ár
vegna læknamistaka
Matthildur Kristmannsdóttir var ranglega greind með þunglyndi í þrjú ár þegar var í raun með
stórt, illkynja æxli í ristli. Hún var ítrekað send heim af bráðamóttöku sem hún leitaði á vegna
óbærilegra verkja og mikillar þreytu en var ávallt send heim án þess að rannsóknir væru gerðar
á henni. Henni var sagt að fara til geðlæknis og út í göngutúr.
Illkynja æxli á stærð við appelsínu fannst í ristli Matthildar Kristmannsdóttur þegar hún loks fékk að fara í rannsóknir eftir
þriggja ára kvalafull veikindi sem ollu verulegu orkuleysi og þreytu. Hún var ranglega greind með þunglyndi.
Framhald á næstu opnu
Matthildur var ranglega greind með þunglyndi í þrjú ár og læknar neituðu að
leggja í dýrar rannsóknir af þeim sökum.
36 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013