Fréttatíminn - 01.02.2013, Qupperneq 42
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Fjölbreytt úrval vandaðra verðmætaskápa
Seðlahólf fyrir verslanirVerðmætahólf fyrir heimili Eldtraustir skjala- og verðmætaskápar
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
27
3
Skoðaðu úrvalið í sýningarsal okkar að Askalind 1, Kópavogi
Sálfræðitryllir sem snertir alla
Í kvöld frumsýnir Jón Atli Jónasson verk
sitt Nóttin nærist á deginum í Borgar-
leikhúsinu. Jón Atli er á meðal fremstu
leikskálda þjóðarinnar, en tvö verka
hans hafa verið kvikmynduð og notið
mikillar hylli. Brim og Djúpið. Jón Atli
þykir einkar fær í að fanga íslenskan
raunveruleika og í þessu nýja verki er
það ekki hafið sem á hug hans, heldur
sjálft hrunið. Einnig eru spennandi
tímar fram undan hjá Jóni Atla þar
sem hann samdi nýverið við norrænan
kvikmyndarisa um framleiðslu á handriti.
Aðalleikarar eru þau Elva
Ósk Ólafsdóttir og Hilm
ar Jónsson. „Ég barðist
mikið fyrir því að fá þessa
leikara og ég er ótrúlega
heppinn að hafa fengið þ
au,
þetta er ótrúlegt fagfólk.“
N ú erum við föst hérna. Við vorum búin að selja ofan af okkur og sitjum föst hérna núna. Í auðu hverfi í auðri götu sem enginn man hvað heitir.
Peningarnir kláruðust. Það er það sem við segjum
fólki. Þess vegna eru engin gólfefni á gólfunum. Engar
hurðir. Bara byggingarplastið sem ég límdi niður. Við
göngum um á svona plastklossum sem komust í tísku
fyrir nokkrum árum. Ég er á svörtum klossum en
Kata mín er á svona bleiksanseruðum. Dótið okkar,
sem við erum búin að vera safna að okkur síðan við
byrjuðum að búa saman, fyllir húsið. Það er samt eitt-
hvað svo undarlega tómt. Í fyrstu vorum tókum við þá
ákvörðun að láta þetta ekkert slá okkur út af laginu.
Hrunið.“
Svona hefst inngangur leikrits Jóns Atla Jónassonar,
Nóttin nærist á deginum sem frumsýnt er í Borgar-
leikhúsinu í kvöld, föstudagskvöld. Jón Atli hefur fyrir
löngu skapað sér sess sem eitt áhugaverðasta leik-
skáld þjóðarinnar. Viðfangsefni hans eru oftar en ekki
rammíslenskur raunveruleiki og er hans nýjasta verk
þar ekki undanskilið. Nóttin nærist á deginum tekur á
raunveruleika sem hefur verið þjóðinni ofarlega í huga
um nokkurra ára skeið, efnahagshrunið og afleiðingar
þess á venjulegt millistéttarfólk.
„Atburðarásin fjallar um örþrifaráð ráðalauss manns
föstum í atburðarás sem stendur svo mörgum nærri.
Þegar ég fór um þessi stóru hverfi og skoðaði þessi
hús sem fólk var að byggja fyrir hrun blasti við átakan-
leg sjón. Þarna stóðu opin tóm hálfbyggð hús sem
fólk hafði gefist upp á, eða hreinlega neyðst til þess að
gefast upp á. Verkið er sálfræðitryllir um hjón sem búa
einmitt í svona úthverfi sem fer í frost í hruninu. Þau
reyna að gera gott úr ókláruðu húsi. En í kjallara þess
er íbúð sem þau ætluðu dóttur sinni sem hugðist snúa
heim eftir nám ytra, en kom ekki aftur sökum ónógra
tækifæra. Þau ákveða að leigja út íbúðina og eigin-
maðurinn setur í gang atburðarás sem er svakaleg,“
segir Jón Atli og bætir við að hann megi þó ekki segja
of mikið.
Sagan er spennusaga um mannleg átök og sam-
kvæmt Jóni Atla tekur sýningin á þá sem á hana horfa.
„Það var rennsli í þessari viku og ég get vitnað um að
þetta er átakanlegt. Þetta stendur manni nærri og líkt
og í Djúpinu þekkja allir einhvern sem hefur gengið
í gegnum þessa sögu, þennan veruleika. Mig langaði
með verkinu að fanga atburðarásina og þennan merki-
lega tíma í íslenskum samtíma því hún slær mann.“
Tvö leikrita Jóns Atla hafa verið kvikmynduð, Brim
af Árna Ólafi Ásgeirssyni árið 2010 og Djúpið af Balt-
asar Kormáki árið 2012 . Auk þessa hefur Jón Atli þýtt
fjölda leikrita og starfar nú sem leikskáld Borgarleik-
hússins. Þess utan hefur hann nýlega samið við fram-
leiðendur dansk–sænsku þáttaraðarinnar Broen um
gerð kvikmyndahandrits.
„Þetta kom inn á borð eftir velgengni Djúpsins.
Í mínu tilviki má allavega rekja þetta beint til þess.
Þetta verður sér íslensk saga gripin úr íslenskum
raunveruleika en framleidd ytra. Það má því segja að
ég sé svolítið í því að fjalla um mig og mína.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Atburða-
rásin
fjallar um
örþrifaráð
ráðalauss
manns
föstum í
atburða-
rás sem
stendur
svo mörg-
um nærri.
Jón Atli Jónasson frumsýnir nýtt verk í Borgarleikhús-
inu í kvöld, Nóttin nærist á deginum. Sagan er spennandi
samtímasaga um íslenskan raunveruleika eftir hrun.
42 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013