Fréttatíminn - 01.02.2013, Síða 70
G ömlu jassrefirnir Jón Páll Bjarna-son, Reynir Sig-
urðsson, Gunnar Hrafns-
son og Erik Qvick koma
saman á Kaffi Rósenberg
næstkomandi þriðjudag,
5. febrúar, ásamt söngkon-
unni Jóhönnu V. Þórhalls-
dóttur. Jón Páll, Reynir,
Gunnar og Erik eru hokn-
ir af reynslu í jassinum.
Jóhanna hefur sungið
alls kyns tónlist á liðnum
áratugum með mörgum
hljómsveitum en þetta er
frumraun hennar á þessu
sviði.
„Jassjómfrúin heilög Jó-
hanna mun því tapa hrein-
leika sínum þetta kvöld og
gefa sig sveiflunni og lostanum á vald,“ eins og segir í fréttatilkynningu.
Jóhanna er reyndar gamall nemandi Reynis úr Álftamýrarskólanum en
þau troða nú upp í fyrsta sinn saman í hljómsveit. Jón Páll er gamall kennari
allra íslenskra jassgeggjara og verður fróðlegt að sjá hann sveifla gítarnum.
Gunnar og Erik eru sjóaðir jassarar sem hafa varðveitt hæfileikann að gefa
af sálu sinni og meðtaka andagift annarra.
ÓTRÚLEGT TILBOÐ -
FLUG KEFLAVÍK - ANTALYA
TYRKLAND
Góð hóteltilboð eru í boði, t.d. 7 nætur á 5 stjörnu
hóteli frá ca. 196 evrum með morgunmat og
kvöldverði (Tveir í tvöföldu herbergi).
* Fæst ekki endurgreitt / fæst ekki skipt - Verð fyrir einn fram og til baka. Bókunar-og uggjöld innifalin, að
undanskildum eldsneytis- og alþjóðagjöldum. Aðrar ugsamsetningar ekki mögulegar.
58.000KR
AFSLÁTTARKÓÐI: INF132FR
KEF - AYT AYT - KEF ISK
14.02.2013 21.02.2013 ISK 58‘000*
21.02.2013 28.02.2013 ISK 62‘000*
28.02.2013 07.03.2013 ISK 68‘000*
07.03.2013 14.03.2013 ISK 58‘000*
14.03.2013 21.03.2013 ISK 58‘000*
21.03.2013 28.03.2013 ISK 62‘000*
28.03.2013 04.04.2013 ISK 62‘000*
Þjónustudeild: 5 711 888
www.oska-travel.is
FRÁ
Markmiðið
með sýning-
unni er að
draga allan
almennan
safnkost
Kjarvals-
staða fram
úr geymsl-
unum.
Kjarvalsstaðir 40 ára
Listaverkaflóð í fjóra mánuði
Þann 23. mars 1973 opnaði Birgir Ísleifur Gunnarsson,
þáverandi borgarstjóri, Kjarvalsstaði sem hafa því
staðið fólki opnir í fjóra áratugi. Af þessu tilefni mun
Birgir Ísleifur mæta til leiks á laugardaginn og opna
afmælissýningu sem mun standa í tæpa fjóra mánuði.
Um er að ræða stærstu myndlistarsýningu sem opnuð
hefur verið á Íslandi en hún mun taka stöðugum breyt-
ingum á meðan á henni stendur, enda kölluð Flæði.
B irgir Ísleifur Gunnarsson var borgarstjóri Reykjavíkur þegar Kjarvalsstaðir opnuðu fyrir 40
árum. Hann opnar sýninguna Flæði
í húsinu á laugardaginn, klukkan 16,
en markmiðið með sýningunni er að
draga allan almennan safnkost Kjarvals-
staða fram úr geymslunum og sýna
hann. Sýningin mun því taka stöðugum
breytingum á meðan hún stendur yfir
þar sem verkefnum verður sífellt skipt
út, jafnvel á meðan gestir eru viðstaddir.
Því má búast við að hátt í þúsund verk
muni prýða veggi Kjarvalsstaða næstu
tæpa fjóra mánuðina og flæðið verður
slíkt að fólk getur komið aftur og aftur
og séð ný verk í hvert skipti. Þeir sem
koma þrisvar á sýninguna fá frítt inn í
þriðju heimsókn auk árskorts á Lista-
safn Íslands í kaupbæti en kortið gildir
á sýningar og viðburði í Hafnarhúsi,
Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.
Hópi fólks hefur verið boðið að koma
á þessa tímamótasýningu og velja
uppáhaldsverkið sitt á sýningunni og
segja frá því hvað gerir verkið einstakt
í sínum augum. Þetta verður gert á sér-
stökum hádegisfyrirlestrum á fimmtu-
dögum frá 14. febrúar til 18. apríl. Meðal
þeirra sem velja eftirlætis verkið sitt
á sýningunni eru Jón Gnarr borgar-
stjóri, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona,
Hugleikur Dagsson teiknari, Hrefna
Sætran matreiðslumeistari, Andri Snær
Magnason rithöfundur, Einar Bárðarson
forstöðumaður Höfuðborgarstofu, Ómar
Ragnarsson fjölmiðlamaður og Steinunn
Sigurðardóttir fatahönnuður.
Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Jassvinir á
Kaffi Rósenberg
Það verður jass á Rósenberg næsta þriðjudag.
Búast má við að um þúsund verk verði dregin
úr geymslum safnsins og hengd upp.
Hugleikur
Dagsson er einn
þeirra sem munu
velja uppáhalds
verkið sitt á
sýningunni og
segja frá því
hvað við verkið
heillar hann.
70 menning Helgin 1.-3. febrúar 2013