Fréttatíminn - 14.12.2012, Blaðsíða 25
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Virðing
Réttlæti
Færð þú umsaminn hvíldartíma í desember?
Hvíldartíminn
hafa sitt ákveðna hlutverk. Enginn
getur einn og óstuddur haldið uppi
afreksstarfi í skák innan grunn-
skólanna.“
Tók í taumana
Skólinn verður 20 ára á næsta ári.
Hvaða þýðingu hefur þessi árang-
ur haft fyrir skólann í heild sinni?
„Örugglega mjög jákvæða þó að í
einhverjum tilfellum megi heyra
efasemdarraddir. Skólinn átti á
upphafsárum við þó nokkra for-
dóma að stríða, fréttir af afbrotum,
innbrotum í „draugablokkir“ og
fleira sem telst neikvætt, rataði í
fréttaskot síðdegisblaðanna, ekki
ósjaldan frá fréttaskotum þeirra
sem gátu unnið sér inn smá skild-
ing fyrir viðvikið. Það gekk svo
langt að orðið Rimlahverfi var haft
um þetta nýjasta hverfi borgarinn-
ar sem byggðist hratt upp ekki síst
í kringum félagsíbúðir borgar-
innar. Á þessum tíma kallaði ég til
mín til borgarstjóra og fulltrúa lög-
reglunnar og foreldrafélagsins,“
segir Helgi.
Í framhaldinu fór borgin að
fjárfesta í íbúðum til félags-
legarar útleigu víðsvegar um
borgina, ekki einungis í nýjum
hverfum, og lögreglan að fylgjast
betur með hverfinu síðdegis og
á kvöldin. „Allt var þetta gert í
góðri samvinnu,“ segir Helgi.
„Skólinn kom þarna sterkur inn,
nemendur fóru að sýna sig og
sanna í grunnskólakeppnum,
einkum í íþróttum og ræðu-
mennsku en þar fóru nemendur
skólans mikinn og komust í úrslit
ár eftir ár þar til keppnin var lögð
niður árið 2001 þegar Rimaskóli
sigraði í annað sinn. Framhaldið
þekkja síðan fleiri, ótrúlegur ár-
angur í skákinni, Stóru upplestr-
arkeppninni og öllum víðavangs-
hlaupum,“ segir hann. Í haust
unnu nemendur 10. bekkjar það
afrek að vinna grunnskólamótið
í knattspyrnu, bæði í drengja-og
stúlknaflokki.
„Krakkarnir í Rimaskóla eru
mjög stoltir af skólanum sínum,
kennurum og starfsfólki. Einkunn-
arorð Rimaskóla frá stofnun hafa
verið: Regla – metnaður – sköpun.
Með þessi orð að leiðarljósi höfum
við komið á fót áhugaverðum
skólaverkefnum sem í sex skipti
hafa fengið Hvatningarverðlaun
skóla-og frístundasviðs Reykja-
víkurborgar sem afhent eru fyrir
fyrirmynd í nýbreytni og þróunar-
starfi.“
Mikil umræða hefur verið um
skóla án aðgreiningar og hafa
kennarar og foreldrar gagnrýnt yf-
irvöld fyrir að stefnunni fylgi ekki
nægilegt fjármagn og fyrir vikið
sé ekki hægt að framfylgja henni
í skólum svo vel megi vera. En
hvernig snýr þetta að skólastjór-
anum? „Skóli án aðgreiningar er
nokkuð sem Bandaríkjamenn hafa
þróað lengst og náð þar mestum
árangri. Fyrir nokkrum árum yfir-
færðum við Reykvíkingar skóla
án aðgreiningar nokkuð óbreytt
yfir á íslenskt samfélag og náðum
ekki alveg að hitta í mark. Til
þess hefði skólinn þurft talsvert
meira fjármagn og að fá að móta
stefnuna hægar og markvissar,“
segir Helgi.
„Þörf á stuðningi við námið er
meiri hér á Íslandi en í Ameríku,
og fleiri nemendur fá stuðning í
skólanum. Aðstæðurnar ólíkar,
fleiri foreldrar eru heimavinnandi
í Bandaríknunum og alsiða að
foreldrar taki þátt í skólastarfinu
sem sjálfboðaliðar. Ábyggilega er
meira frjálsræði í íslenskum skól-
um og það á ekkert endilega skylt
við agaleysi. Frjálsræðið er skap-
andi og hvetjandi og gerir börnin
hamingjusamari, ef því fylgir gott
uppeldi. Einstaklingsmiðað nám
og skóli fyrir alla eru metnaðarfull
markmið og hugtök sem íslenskir
skólar fóru af stað með að fyrir-
mynd erlendis frá. Í allt of mörgum
tilfellum hafa markmið og lausnir beðið skip-
brot og úrræðaleysið aukist.“
Náum ekki að sinna öllum
Erum við að bregðast þessum krökkum? „Já,
við erum að bregðast þessum krökkum. Bæði
vegna þess að við náum ekki að sinna öllum
sem aðstoð þurfa. Skóli fyrir alla hentar alls
ekki öllum. Tveir sérskólar fyrir alla Reykjavík
dugir hvergi. Á Íslandi er skólaskylda og því
verða grunnskólarnir í öllum tilfellum að redda
þeim vandamálunum sem að skólunum steðja.
Biðin eftir ráðgjöf, innlögn eða sérskólaplássi
er undantekningarlaust áralöng.“
Eru krakkar hérna í Rimaskóla sem ættu
betur heima í öðrum úrræðum? „Já, ekki spurn-
ing. Í sérskólum eins og Brúarskóla og Kletta-
skóla. Tilfellum greininga ADHD, einhverfu og
Asperger fjölgar og kostnaður við aðstoð þess-
ara nemenda dugar ekki þrátt fyrir að einhverju
fjármagni hafi verið bætt við sérkennsluúrræði
skólanna. Þessar greiningar heyrði maður ekki
nefndar fyrir rúmum tuttugu árum þegar ég
var sjálfur að kenna fjölmennum bekkjum.“
Hverju myndirðu vilja breyta, hver væri þín
óskastaða sem skólastjóri? „Ég myndi vilja
bjóða upp á fjölbreyttara nám þar sem list og
verkgreinar öðluðust viðameiri sess. Ég vil
leita lausna á áberandi áhugaleysi drengja á
námi og bóklestri. Metnað þeirra þarf að auka
því ný aðalnámskrá gerir ráð fyrir að nem-
endur taki fyrr ábyrgð á námi sínu og framtíð
en áður. Fyrir stúlkurnar þurfum við til dæmis
að bæta aðstæður til leikja á skólalóðum þar
sem þær virðast vera útundan og komast ekki
að á boltavöllum sem flestir leikvellir byggjast
á. Ég hefði heldur ekki á móti því að yfirvöld
sýndu einstaklingum og félagasamtökum meiri
hvatningu til að reka einkaskóla á höfuðborgar-
svæðinu. Sjálfur hefði ég alveg getað hugsað
mér að starfrækja lítinn einkaskóla og bjóða
þar upp á til að mynda skák og listgreinar sem
áherslugreinar. Húsnæði ætti að vera til staðar í
framhaldi af sameiningu grunnskóla.“
Hversu þröngur stakkur er skólastjórnend-
um búinn aðferðafræðilega? Er aðalnámskráin
nógu sveigjanleg svo hægt sé að gera tilraunir,
til að mynda með verknám? „Við eigum að grípa
tækifærin sem gefast að verkefnum sem snúa
meira að listgreinum og íþróttum. Kasta þá frá
okkur kennsluáætluninni. Leyndir hæfileikar
nemenda birtast ekki ósjaldan í kringum þessi
verkefni. Ný aðalnámskrá opnar möguleika á
sveigjanlegra skólastarfi. Gleðilegustu og eftir-
minnilegustu stundir skólastarfsins eru alltaf
í kringum viðburðina sem tengjast náminu
óbeint.“
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
viðtal 25 Helgin 14.-16. desember 2012