Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 2
A lls hafa 160 vændiskaupendur verið til rannsóknar í tveimur málum hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurnesjum. Um er
að ræða vændi sjö kvenna. Tíu hafa verið
ákærðir hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu en lögreglan á Suðurnesjum er
langt komin með rannsóknina. Búast má
við töluverðum fjölda ákæra til viðbótar.
„Hér er blússandi vændi, mikið framboð
og gífurleg eftirspurn, það er alveg ljóst
af þessum tölum.“ segir Karl Steinar Vals-
son, yfirlögregluþjónn hjá lögreglu höfuð-
borgarsvæðisins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og
á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar
tvö mál er varða 160 vændiskaupendur.
Annars vegar eru 86 karlmenn grunaðir
um vændiskaup af sex konum í Reykjavík
og hins vegar um 80 karlmenn af einni
konu, einnig í Reykjavík. Karlarnir eru á
öllum aldri, búsettir víðs vegar um landið.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni
er ekki ólíklegt að um sömu mennina sé
að ræða í einhverjum tilfellunum í báðum
málunum og því ekki hægt að fullyrða að
svo stöddu um fjölda einstaklinga þar sem
rannsóknirnar standi yfir í sitt hvoru lög-
regluumdæminu og séu í raun ótengdar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfir-
heyrði á annað hundrað manns vegna
gruns um vændiskaup. Niðurstaðan var
sú að 86 mál voru send til ríkissaksóknara
sem hefur ákært tíu þeirra.
Lögreglan á Suðurnesjum hóf upphaf-
lega rannsókn máls fertugrar lettneskrar
konu við komu hennar hingað til lands
í gegnum Keflavíkurflugvöll þar sem
grunur vaknaði um mansal. Hún hefur
margoft á undanförnum mánuðum farið
fram og til baka milli Íslands og Lett-
lands og kom hún með ungar stúlkur
með sér hingað til lands. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni leiddi
rannsóknin ekki í ljós mansalstengsl
en stúlkurnar ungu eru farnar af landi
brott. Rannsóknin leiddi hins vegar í
ljós að konan stundaði vændi í húsnæði í
Reykjavík og eru um 80 karlmenn grun-
aðir um að hafa keypt af henni vændi á
síðastliðnum þremur mánuðum. Sjötíu
þeirra hafa þegar verið yfirheyrðir og
mun ríkissaksóknari taka ákvörðun um
hvort þeir verði í framhaldinu ákærðir
fyrir vændiskaup.
Konan auglýsti þjónustu sína á netinu
og í fjölmiðlum undir því yfirskyni að hún
væri að bjóða upp á nudd, meðal annars á
vefsíðunni cityoflove.com sem er vefsíða
sem notuð er til að auglýsa vændi, að
sögn lögreglunnar. Þegar leitað er undir
Reykjavík á síðunni má sjá auglýsingu frá
sjö konum og tveimur klúbbum, Strawber-
ries á Lækjargötu og Goldfinger í Kópa-
vogi. Konurnar auglýsa ýmist erótískt
nudd eða beinhart kynlíf og verðsetja það
á allt frá 150 evrum fyrir klukkustundina,
um 25 þúsund íslenskar krónur.
Samkvæmt heimildum Fréttatímans
er þetta umsvifamesta vændismál sem
lögreglan á Suðurnesjum og Reykjavík
hefur haft til rannsóknar frá því að lögum
um vændiskaup var breytt árið 2009 og
vændiskaup voru gerð ólögleg en vændi
ekki en síðastliðið haust réðst lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu í aðgerðir gegn
kaupendum vændis. Útlit er fyrir að fleiri
verði ákærðir í þessum málum en voru
ákærðir í Catalinu-málunum svokölluðu
þegar 11 vændiskaupendur voru ákærðir.
Níu þeirra voru sakfelldir og dæmdir til
greiðslu sektar á bilinu 40-120 þúsund
króna.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Sigmundur Davíð hefur boðað lausn á skuldavanda heimilanna í nóvember en
endanlegar tillögur munu að öllum líkindum ekki liggja fyrir fyrr en á næsta ári.
EfnAhAgsmál skuldAmál hEimilAnnA lEysAst Ekki 2013
Skuldalausnin bíður næsta árs
„Sérfræðingahópur um skuldavanda heimilanna sem
skipaður var af forsætisráðherra skilar tillögum sínum í
lok nóvember líkt og gert hefur verið ráð fyrir,“ segir Jó-
hannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagðist í viðtali
við Bloomberg fréttastofuna á miðvikudag telja ólíklegt
að nokkrar endanlegar ákvarðanir verði teknar um
skuldaniðurfellingar á þessu ári.
Jóhannes Þór vill ekki taka undir það sjónarmið og
leggur áherslu á að starfið í sérfræðingahópnum gangi
vel. „Grunnlínurnar liggja nokkurn veginn fyrir en ljóst
er að það eru ýmsar flækjur sem greiða þarf úr,“ segir
hann. Aðspurður segir hann „flækjurnar“ varða fólk sem
hefur til að mynda þegar endurfjármagnað húsnæði sitt
eða selt það, hefur misst húsin sín, skilið og þar fram
eftir götunum. „Þá eru ýmsir þættir sem skoða þarf
sérstaklega og varða þjóðhagsleg áhrif skuldaniðurfell-
inga,“ segir Jóhannes Þór.
Samkvæmt heimildum Fréttatímans er þó ólíklegt
talið að endanlegar ákvarðanir um skuldaniðurfellingu
verði teknir á þessu ári, líkt og Bjarni sagði. Sérfræð-
ingahópurinn skili ekki tillögum sínum fyrr en í lok
nóvember, þá þurfi ráðherranefndin að fjalla um málið og
ákveða næstu skref. Semja þurfi frumvarp um málið sem
Alþingi þarf að taka til meðferðar. Svo komi jól og áramót
og því nokkuð ljóst að ekkert muni gerast í skuldamálum
heimilanna fyrr en á næsta ári.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Vændi RAnnsókn á VændiskAupum Af sjö konum
Hér er blússandi vændi
Alls eru 160 vændiskaupendur grunaðir um að hafa keypt vændi af sjö konum í Reykjavík og á
Suðurnesjum. Ein konan sinnti um 80 viðskiptavinum á þremur mánuðum og hafa 70 þeirra verið
teknir til yfirheyrslu. Hún auglýsti þjónustu sína á þekktri vændissíðu, cityoflove.com, og í fjöl-
miðlum.
Rannsókn á vændi konu frá Lettlandi hófst sem grunur um mansal sem ekki fékkst staðfestur. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages
Konan aug-
lýsti þjónustu
sína á netinu
og í fjölmiðl-
um undir því
yfirskyni að
hún væri að
bjóða upp á
nudd ... Þegar
leitað er undir
Reykjavík á
síðunni má
sjá auglýsingu
frá sjö konum
og tveimur
klúbbum,
Strawberries
á Lækjargötu
og Goldfinger
í Kópavogi.
Vill minnka plastnotkun
og styrkja byggingar
Margrét Gauja Magnúsdóttir, varaþing-
maður Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar, hyggst leggja fram
tvær þingsályktunartillögur. Sú fyrsta
fjallar um að láta skoða hvað verið er
að samþykkja í öðrum löndum er varðar
plastpokanotkun í ljósi þess hvað plast
er mikill mengunarvaldur. „Ég vil láta
skoða það hvort að það séu forsendur
fyrir því að það sé hagkvæmt fyrir okkur
minnka plastnotkun og nota bréfpoka.
Ég vil láta skoða hvað Evrópusambandið
hefur ályktað í þessum efnum og láta
kanna hvort það geti nýst á Íslandi,“
segir Margrét.
Hin þingsályktunartillagan sem Mar-
grét hyggst leggja fram er að varpa
fram þeirri hugmynd að stofnaður verði
umbótasjóður til þess að styrkja gamlar
opinbera byggingar sem misst hafa
hlutverk sitt.
Hækkandi íbúðaverð
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 370,1 stig í september
2013 og hækkaði um 0,9% frá fyrri
mánuði, samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðskrá Íslands. Síðastliðna 3 mánuði
hækkaði vísitalan um 1,4%, síðastliðna
6 mánuði hækkaði hún um 5,3% og
síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um
7,0%.
Lítið fjármagn í vinnu-
markaðsaðgerðir
Komandi kjarasamningar voru Birni
Snæbjörnssyni, formanni Starfsgreina-
sambandsins, hugleiknir í setningar-
ræðu hans á þingi sambandsins sem
fór fram á Akureyri á miðvikudag. Björn
gagnrýndi nýframlagt fjárlagafrumvarp
harðlega og sagði það vera meingallað.
Sagði hann að það yrði nauðsynlegt að
fara í töluverðar breytingar og hvatti
hann stjórnvöld til samráðs við aðila
markaðarins.
„Það er verið að taka út stuðning við
atvinnulausa í þessu fjárlagafrumvarpi.
Það er verið að taka út það fjármagn
sem farið hefur í vinnumarkaðsaðgerðir
sem menn hafa verið að vinna saman að
til þess að hjálpa fólki að komast aftur á
vinnumarkað og jafnvel fyrir fólk sem er
dottið út af bótum,“ segir Björn.
Nýtt gistiskýli fyrir
heimilislausa karla
Nýtt og endurbætt gistiskýli fyrir heimilislausa karl-
menn verður opnað að Lindargötu 48 á vormánuðum
2014. Þar með mun starfseminni sem hefur verið í
Þingholtsstræti 25 í nær 50 ár ljúka. Markmiðið með
nýju húsnæði er að bæta aðstöðu og stuðning við
heimilislausa, en að undanförnu hefur ítrekað verið
bent á nauðsyn þess. Núverandi húsnæði gistiskýlisins
að Þingholtsstræti 25 uppfyllir ekki þau skilyrði sem gerð
eru til starfsemi gistiskýla, meðal annars vegna öryggis-
sjónarmiða og aðgengis. Gistiskýlið er opið alla daga ársins
frá klukkan 17 til klukkan 10 næsta dag. Markmiðið með
starfseminni er að veita húsnæðislausum reykvískum
mönnum næturgistingu. Í gistiskýlinu er mönnunum veitt
ráðgjöf og þeir fá stuðning til að breyta aðstæðum sínum
auk þess sem þeir eru í tengslum við félagsráðgjafa á
þjónustumiðstöðvum, ef um ítrekaða dvöl er að ræða.
2 fréttir Helgin 18.-20. október 2013