Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 46
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Skemmtilega
snúið
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Undratækið Spiralfix frá GEFU breytir garðávöxtum
í girnilega spírala á örsskotsstundu. Tækið er einfalt
og öruggt í notkun þrátt fyrir að búa yfir tveimur
flugbeittum hnífum sem umbreyta öllu í fallega,
misbreiða vafninga, lengjur og skrúfusneiðinga.
Eða hvað við kjósum að kalla hið skemmtilega
snúna form sem grænmetið tekur á sig í Spiralfix
– og lítur svo vel út á diskinum.
46 matur & vín Helgin 18.-20. október 2013
MassiMo og Katia Bjóða upp á handgert pasta
h jónin Massimo og Katia reiða fram ítalskan heimilismat á veitinga-staðnum sínum Massimo og Katia
við Laugarásveg. „Við eldum hefðbundna
rétti frá öllum landshlutum Ítalíu eftir
okkar eigin uppskriftum,“ segir Katia. Þau
Massimo hafa rekið veitingastaðinn um
hríð og segjast hafa skotið rótum á Íslandi.
Þau ákváðu nýlega að bæta við úrvalið
með því að hafa á boðstólum handlagað
pasta sem gestir geta kippt með sér heim
og soðið sjálfir.
„Okkur fannst þetta bara sniðug hug-
mynd og ákváðum að prófa þetta þannig
að nú getur fólk sótt handlagað, ferskt
heilhveitipasta til okkar,“ segir Katia. „Við
gerum pastað auðvitað eftir ítalskri matar-
gerðarhefð og ég held að þetta sé alveg
einstakt í Reykjavík, að hægt sé að ganga
að svona fersku, handgerðu pasta.“
Hjónin bjóða upp á ýmsar pasta-gerðir
eins og tagliatelle, gnocchi, orechiette og
ravioli með kjötfyllingu. „Við seljum þetta
eftir vigt og fólk getur þá tekið eins mikið
með sér heim og það þarf og eldað heima.“
Massimo og Katia selja einnig ýmsan
innfluttan sælkeravarning, svo sem sætt
kex, ólífur, olíur og ýmislegt fleira sem
kemur sér vel ef fólk vill laga almenni-
legan ítalskan mat heima hjá sér.
Eðli málsins samkvæmt er ítölsk
matargerð sérgrein hjónanna og þau eru
sérstaklega stolt af handgerða orechi-
ette pastanu sínu sem á rætur að rekja til
Suður-Ítalíu.
Massimo og Katia leggja áherslu á fljót-
lega eldamennsku enda segir Katia flesta
viðskiptavini kjósa að taka matinn með sér
þannig að í raun er um skyndibita að ræða
þótt þau slái ekki af kröfunum í eldhúsinu.
„Við höfum alltaf unnið á veitinga-
húsum eða á börum,“ segir Katia. „Og við
rekum þennan stað af ástríðu og viljum að
hér geti viðskiptavinir stigið inn í ítalska
stemningu og þeir eiga alla okkar athygli.“
Katia segir þau hjónin elda allan mat
saman enda líki þeim það best.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Við gerum
pastað auð-
vitað eftir
ítalskri matar-
gerðarhefð
og ég held að
þetta sé alveg
einstakt í
Reykjavík.
Litla Ítalía á Laugarásvegi
Pasta er ekki bara pasta og fáir eru jafn meðvitaðir um það og Ítalir. Hjónin Massimo og Katia
taka pasta mjög hátíðlega og eru nú farin að selja handlagað, ferskt pasta á veitingastað sínum
við Laugarásveg. Þar bjóða þau upp á ýmsar gerðir pasta sem upplagt er að taka með sér og
sjóða heima.
Katia og Mass-
imo eru byrjuð
að bjóða upp
á handgert,
ferskt pasta á
veitingastaðn-
um sínum þar
sem fólk getur
keypt pastað
eftir vigt og
eldað heima.
Katia segir þau hjón reka veitingastað sinn af ástíðu. Hér býr hún til gnocchi með því að rúlla pasta eftir rifluðu trébretti.
Lj
ós
m
yn
di
r:
H
ar
i