Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 48
48 heilsa Helgin 18.-20. október 2013  Heilsa Betri samskipti Hætta niðurbrjótandi viðhorfum og hegðun www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur Gildir út október Kerasal Nýtt á Íslandi Kærkomin lausn fyrir þreytta, sprungna og þurra fætur Á námskeiðinu verður fólk i kennt að hætta niðurbrjótandi viðhorf- um og niðurbrjótandi hegðun þannig að það geti slakað betur á og liðið betur. Það er mjög nærandi lærdómur fyrir mannleg samskipti,“ segir Guðmundur Ragn- ar Guðmundsson. Um helgina verður haldið námskeið í umhyggju- ríkum samskiptum í Rós- inni, Bolholti 4. Það er Christiane Welk er leiðbeinandi námskeiðsins. Guðmundur Ragnar sem hefur unnið í því að fá Christiane til lands- ins segir að fólki muni ganga betur að gera það sem er nær hjarta þess þar menn geti hætt að gera hluti í einhverri hlýðni og heldur geri þá í gleði. „Verið er að kenna æfingar til að komast að því hvaða þörf menn hafa til að leysa vandamál og hvað drífur menn áfram. Fólk hættir að gera það sem virkar illa til þess að ná þeim markmiðum sem maður hefur. Við þurfum að aðgreina muninn á þörf- um okkar og hvað við erum að gera til þess að uppfylla þær. Fólk gerir margt sem er mjög skaðlegt, óhollt og meiðandi á meðan aðrar aðferðir geta verið skemmtilegar,'' segir Guð- mundur. Upphafsmaður hugmyndakerfis- ins er Marshall Rosenberg og leggur samskiptatæknin áherslu á jákvæð- ar viðhorfsbreytingar sem ekki er hægt að læra með því að lesa bækur eða hlusta á fyrirlestra heldur er um að ræða tungumál sem þarf að æfa. Guðmundur Ragnar segir að nálgunin sem notuð er henti fólki sem vill gera eitthvað fyrir sjálft sig. Segir hann þessa aðferð líka hafa verið notaða þegar ver- ið er að semja um frið milli stríðandi fylkinga í Kenýa, þar er verið að semja frið milli ætt- bálka þar sem fólk er að drepa hvort annað. „Það sem gerist oft í samskip- um er það að við erum alltaf að reyna að láta fólk gera það sem við viljum að það geri. Við beitum þvingunum og mút- um til þess að fá fólk til að gera það sem við viljum, við notum aðferðir til að stjórna fólki í kringum okk- ur og það er kallað ofbeldi í þessu samhengi,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir að mesta breytingin hjá þeim sem hafa lært þessa samskiptatækni sé að þeir upplifi minni neikvæðni gagn- vart sjálfum sér. „Maður hættir að hafa þessa þörf til þess að keyra sig áfram á neikvæðninni. Þetta er bara svo fast í vana hjá okkur og það fer svo mikil orka í það að þegar fólk hættir þessu þá losnar um svo mikla orku, fólk slakar á og verður miklu ánægðara,“ segir Guðmundur Ragnar. Námskeiðið er haldið laugar- dag og sunnudag frá 10 til 17 en kynning verður opin öllum í kvöld, föstudag. Næsta námskeiðið verður haldið í desember. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Fæst í næstu verslun Nánar á www.heilsa.is A vítamín fyrir sjón og húð! Christiane Welk mun kenna um helgina námskeiðið „Um- hyggjurík samskipti“ en upphafsmaður hugmyndakerfisins er Marshall Rosenberg. Breyting hjá þeim sem hafa lært þessa samskiptatækni er að þeir upplifa minni neikvæðni og við það losnar mikil orka, fólk lærir að slaka á og verður ánægðara með líf sitt. Christiane Welk, leið- beinandi námskeiðsins Mikilvægt að fólk læri aðferðir til þess að minnka neikvæðni í lífi sínu. • Gerðu tengsl að aðalatriði í þínu lífi. Bættu tengsl við fólkið í kringum þig eins og fjölskyldu, vini, samstarfsmenn og jafnvel nágranna. Leggðu áherslu á að byggja og bæta þín tengsl á degi hverjum en það mun bæta líf þitt til muna. • Hreyfðu þig á hverjum degi. Farðu út að labba, hjóla eða hlaupa. Ekki gleyma að leika þér í garðinum og dansaðu. Hreyfing eykur alltaf vel- líðan en fyrst og fremst finndu hreyfingu sem þú nýtur þess að stunda. • Vertu vakandi yfir umhverfinu. Vertu forvitinn um lífið og það sem gerir lífið fallegt að þínu mati. Taktu eftir breytingum á umhverfinu til dæmis við árstíðaskipti, á leið í vinnu, eða þegar þú ferð út í hádeginu. Vertu meðvitaður um líðan þína og hvernig umhverfið hefur áhrif á hana. • Haltu áfram að læra. Gerðu eitthvað nýtt með reglulegum hætti og lífgaðu við gömul áhugamál. Taktu á þig nýja ábyrgð í vinnunni, lærðu á hljóðfæri eða farðu á matreiðslunámskeið. Ef þú venur þig á að læra nýja hluti reglulega mun það auka sjálfstraustið þitt og þú munt skemmta þér konunglega í leiðinni. • Gefðu af þér. Gerðu eitthvað óvænt fyrir vin eða jafnvel einhvern sem þú þekkir ekki. Þakkaðu fyrir þig og brostu. Gerðu eitthvað í sjálfboðavinnu og gefðu til samfélagsins það mun bæta þína líðan og þú munt tengjast fleira nýju fólki. Fimm frábærar leiðir til að njóta lífsins – fyrst og fre m t ódýr! kortatímabil !Nýtt 599 Verð áður 1229 kr. stk. Djæf ísterta, 1 l kr. stk. 50%afsláttur Hámark 4 stk. á mann meðan birgðir endast!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.