Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 34
aðstæður fyrir mér, ég sé hvað pers-
ónan er að fara að gera, bý til litla
baksögu, sé fyrir mér sviðsmynd-
ina, heyri lagið sem hljómar og finn
jafnvel hvaða ilmvatn hún notar. Ég
sé alltaf þessa heild.“
Kvöldið afdrifaríka
Ólafur Helgi var sannarlega búinn
að finna sína hillu í lífinu og blasti
við að mennta sig frekar á þessu
sviði. Hann flutti til Mílanó og
byrjaði að læra ítölsku til að undir-
búa sig fyrir námið. Hann eignaðist
vini og hafði farið út að skemmta sér
með vinkonu sinni þegar lífið tók
skyndilega stóra beygju. „Aðfarar-
nótt fyrsta apríl var mér nauðgað.
Ég sá strák sem mér leist vel á þegar
við vorum að labba heim af djamm-
inu, við byrjuðum að spjalla og ég
sagði vinkonu minni bara að fara á
undan mér. Við settumst á bekk og
allt í einu vill hann að ég gefi honum
munnmök. Mér fannst það ekki við
hæfi þarna á almannafæri og segist
ekki vilja það en þá tók hann mig
hálstaki, sagði að ég vildi það víst og
ég bara fraus. Hann var harkalegur
og ég var hreinlega hræddur um að
hann myndi meiða mig meira ef ég
hlýddi honum ekki eða jafnvel drepa
mig. Hann fór síðan með mig bak
við runna þar sem hann nauðgaði
mér. Ég var mjög óttasleginn og hélt
á ég myndi frekar lifa af ef ég hlýddi
honum en loksins ákvað ég að ef
hann myndi drepa mig þá hefði ég
allavega reynt að flýja og mér tókst
að hlaupa í burtu.“ Hann hafði ekki
náð að gyrða upp um sig þegar hann
kallaði á fyrstu manneskjuna sem
hann sá og bað um hjálp því honum
hefði verið nauðgað. „Hún kallaði
mig bara öfugugga og sagði mér að
hypja mig í burtu. Ég gyrti mig og
hljóp áfram á milli fólks og leigubíla.
Loksins fann ég lögreglubíl og bað
um hjálp en lögreglumennirnir vildu
ekki hjálpa mér heldur sögðu mér
bara hvar næsta lögreglustöð var.
Ég fylltist svo miklu vonleysi þegar
lögreglan vildi ekki einu sinni að-
stoða mig að ég fór bara heim. Þar
hringdi ég í vinkonu mína á Íslandi
og hún sagði mér að hringja á lög-
regluna. Ég gerði það, var sóttur
með sjúkrabíl og fékk bæði andlega
og líkamlega aðhlynningu.“ Ólafur
Helgi fór fljótt eftir þetta aftur heim
til Íslands þar sem hann reyndi að
ná áttum í faðmi fjölskyldunnar.
Hann fór í viðtöl hjá Stígamótum og
hitti sálfræðing og var harður á því
að fara aftur til Ítalíu. „Ég vildi ekki
gefast upp. Mér fannst ég þurfa að
fara aftur út og standa mig þó fjöl-
skyldan mín hefði efasemdir um að
ég hefði náð að vinna nógu vel úr
málunum. „Mamma og bróðir minn
fóru með mér út og skildu mig svo
eftir.“
Vildi ekki gefast upp
Hann var ákveðinn í að láta nauðg-
unina ekki aftra sér frá því að láta
drauminn rætast og byrjaði aftur
fullur tilhlökkunar. Hann fór að
leigja með íslenskri stelpu sem var
einnig í skólanum og hóf hann aftur
Ólafur Helgi kom út úr skápnum árið 2002 og tók þátt í keppninni Dragdrotting Íslands sama ár. Hann tók aftur þátt að ári og sigraði sem Starina. Útskriftarlínan hans ber
nafnið Starina Couture. Ljósmynd/Hari
34 viðtal Helgin 18.-20. október 2013