Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 14
Áskoranir á mörkuðum hafa sjaldan verið meiri en nú. Tækifærin sem
þeim fylgja geta verið dýrmæt. Njóttu ráðgjafar sérfræðinga við
mat á fjárfestingarkostum og nýttu tækifærin á verðbréfamarkaði
með eignastýringu MP banka. Þjónusta okkar er sniðin að þörfum
viðskiptavina og við bjóðum fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða til að
ná ávöxtunarmarkmiðum hvers og eins.
Kynntu þér framúrskarandi þjónustu sérfræðinga
eignastýringar MP banka og fáðu kynningarfund.
www.mp.is Hafðu sambandeinkabankathjonusta@mp.is
Nánari upplýsingar um fj árfestingarleiðir
og verðskrá á www.mp.is eða í síma 540 3230.
Eignastýring MP banka
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
H
Hálfgert knattspyrnuæði hefur verið hér á landi
undanfarið vegna góðs árangurs íslenska karlalands-
liðsins í riðlakeppni heimsmeistaramótsins sem fram
fer í Brasilíu á næsta ári. Liðið hefur náð lengra en
nokkru sinni og er komið í umspil þar sem átta þjóðir
berjast um fjögur síðustu sæti Evrópu á mótinu.
Dregið verður á mánudaginn og þá kemur í ljós hvaða
þjóð verður mótherji Íslands en leikið verður heima
og heiman. Íslenska liðið er skipað leikmönnum sem
eiga framtíðina fyrir sér. Vel tókst til þegar Svíinn
Lars Lagerbäck var valinn þjálfari
liðsins. Hann er þrautreyndur og virtur,
var landsliðsþjálfari Svíþjóðar frá 1998
til 2009 og þjálfaði landslið Nígeríu um
nokkurra mánaða skeið árið 2010. Svo
reyndur þjálfari sem Lagerbäck hefði
vart tekið þetta verkefni að sér nema
gera sér bærilegar vonir um árangur
enda hafði U21 landslið Íslands, sem nú
er hryggjarstykkið í karlalandsliðinu,
sýnt getu sína þegar það náði þeim frá-
bæra árangri að komast í úrslitakeppni
Evrópumeistaramótsins árið 2011.
Vegna þessa gleðilega árangurs knattspyrnu-
landsliðsins hefur það kannski ekki vakið eins mikla
athygli og ella að Guðmundur Þórður Guðmundsson,
fyrrum landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, var á
mánudaginn valinn næsti landsliðsþjálfari Danmerk-
ur í handknattleik. Það er í senn mikil viðurkenning
fyrir Guðmund sem toppþjálfara í íþróttagreininni og
um leið fyrir íslenskan handknattleik.
Með talsverðum rétti má segja, að ógleymdum
knattspyrnuárangri nú, að handknattleikur sé þjóð-
aríþrótt Íslendinga. Í þeirri grein hópíþrótta hefur
landslið okkar náð bestum árangri og lengi verið
meðal fremstu þjóða. Hápunkturinn á afrekaskrá
landsliðsins náðist einmitt undir stjórn Guðmundar,
silfurverðlaun á ólympíuleikunum í Peking árið 2008
og bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í Austur-
ríki árið 2010. Síðan hefur Guðmundur þjálfað félags-
lið í Danmörku og nú síðast þýska stórliðið Rhein-
Neckar Löwen. Þar þykir hann hafa staðið sig afar vel
í bestu en jafnframt erfiðustu deild handknattleiks-
heimsins. Guðmundur hefur þar verið í hópi annarra
íslenskra þjálfara, Dags Sigurðssonar og ekki síst Al-
freðs Gíslasonar sem náð hefur afburðaárangri með
þýska meistaraliðið Kiel. Of langt mál yrði að telja
upp alla afrekaskrá Alfreðs en það nægir að geta þess
að í ár gerði hann Kiel að Þýskalands- og bikarmeist-
urum og í fyrra varð lið hans Þýskalandsmeistari
með fullu húsi stiga, bikarmeistari, vann Super Cup í
Þýskalandi og Meistaradeild Evrópu. Alfreð var val-
inn þjálfari ársins í Þýskalandi í fyrra og vann einnig
til þeirrar nafnbótar 2011, 2009 og 2001.
Danir eru í fremstu röð handknattleiksþjóða og
hafa lengi verið. Þeir eru í fjórða sæti á styrkleikalista
greinarinnar – en Íslendingar í því tólfta. Handknatt-
leikur er þriðja vinsælasta íþróttagreinin þar í landi,
á eftir knattspyrnu og badminton. Dönsk þjóð gerir
því miklar kröfur til handknattleikslandsliðsins – og
þjálfara þess. Guðmundur Þórður Guðmundsson
fetar í fótspor Ulrik Wilbek sem hefur náð frábærum
árangri með liðið. Danir unnu silfurverðlaun á Heims-
meistaramótinu á Spáni í janúar síðastliðnum, urðu
Evrópumeistarar 2012 og einnig 2008. Þá státa þeir af
þremur bronsverðlaunum á Evrópumeistaramótinu,
2006, 2004 og 2002. Wilbek lætur af störfum sem
þjálfari Dana eftir Evrópumeistaramótið í janúar
næstkomandi. Guðmundar bíður því að undirbúa
danska liðið fyrir ólympíuleikana í Brasilíu árið 2016.
Krafa Dana er skýr: „Við viljum ólympíugull,“ sagði
Morten Stig Christiansen, framkvæmdastjóri danska
handknattleikssambandsins, þegar Guðmundur var
kynntur sem næsti þjálfari danska liðsins – og um leið
metinn hæfasti stjórnandinn sem völ var á.
Þrátt fyrir afbragðsárangur Wilbek mun Guð-
mundur án efa fara aðra leið en forverinn, enda með
aðra þjálfaratækni. Eftir henni sækjast Danir. Mark-
mið þjálfaranna er hins vegar það sama, að sigra á
stórmótum. Fróðlegt verður að fylgjast með gengi
frændþjóðarinnar undir íslenskri stjórn. Guðmundur
náði frábærum árangri með íslenska landsliðið. Hann
ætlar sér án efa enn stærri hluti með það danska.
Viðurkenning á afburðaárangri
Hæfustu stjórnendurnir
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Dægradvöl auðugra
Það sannast enn við
þennan atburð hve Ólaf-
ur Ragnar hefur mikla
hæfileika til að vekja
áhuga auðugs fólks á
hugðarefnum sínum og
hve auðvelt honum er að
eiga samstarf við þetta fólk.
Þessu kynntust Íslendingar á heimavelli
á tímum útrásar.
Björn Bjarnson, fyrrverandi ráðherra,
ræddi hæfileika forsetans í bloggi sínu
um norðurslóðaráðstefnuna í Hörpu.
Leyndarmál frægðarinnar
Aðdáun þjóðarinnar er
stundum að drepa mig.
Meistari Megas ræddi
fylgikvilla frægðar innar
við Óttar Guðmundsson
geðlækni.
Svikasilfur
Þetta er klárlega ekki
ólympíuandinn.
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ,
brást illa við fréttum um
að silfurverðlaunapeningur
handboltalandsliðsmanns væri til sölu.
Þeir selja silfrið sem eiga það
En auðvitað er það einkamál við-
komandi íþróttamanns hvort hann
selur peninginn. Kannski finnst honum
hann ljótur, kannski hefur hann ekki
pláss fyrir hann, kannski eru leiðinlegar
minningar bundnar við hann – eða
kannski er hann bara blankur.
Egill Helgason skoðar eignarréttinn í
tengslum við silfurpeninginn.
Sjúddirarírei
Gylfi Ægisson er
karlfauskur úr Vest-
mannaeyjum. Hverjum
er ekki drullusama
hvað honum finnst?
Dóri DNA gerði
offramboð á skoðunum
að umtalsefni í Bakþönkum í
Fréttablaðinu.
Afsakið auglýsingar!
Við biðjumst velvirðing-
ar á þessum leiðinlegu
mistökum.
Ríkisútvarpið tryllti
landslýð með því að
skipta í snatri frá beinni
útsendingu landsleiksins
við Noreg yfir í auglýsingar.
Bakari hengdur
Við vildum alls ekki hrella þjóðina með
þessu – alls ekki.
Sigþór Sigurjónsson, hjá
Bakarameistaranum, átti
sjónvarpsauglýsinguna sem valtaði
yfir stórkostlegt augnablik í boltasögu
Íslendinga. Það var ekki með ráðum gert.
Í fullkomnum heimi
Við getum unnið hvaða lið sem er. Ég
veit auðvitað ekki hver andstæðingurinn
verður en við eigum alltaf möguleika.
Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu, var
vígreifur eftir jafntefli við Noreg.
Vikan sem Var
Lagerbäck hefði vart tekið þetta verkefni
að sér nema gera sér bærilegar vonir um
árangur enda hafði U21 landslið Íslands,
sem nú er hryggjarstykkið í karlalands-
liðinu, sýnt getu sína þegar það náði þeim
frábæra árangri að komast í úrslitakeppni
Evrópumeistaramótsins árið 2011.
14 viðhorf Helgin 18.-20. október 2013