Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.10.2013, Síða 12

Fréttatíminn - 18.10.2013, Síða 12
sínum starfsskyldum. Verkferlar eru orðnir óskýrari og kerfið sein- virkara“, segir Júlíus Vífill. „Framtíð borgarinnar eins og hún verður ráðin af aðalskipulaginu á næstu áratugum skiptir miklu máli. Ég sé ekki neina aðra leið en að við tökum upp aðalskipulagið aftur og endurskoðum það,“ segir Júlíus Vífill og telur að samkvæmt núver- andi skipulagi um þéttingu byggðar miðsvæðis í Reykjavík muni ungt barnafólk ekki finna húsnæði né umhverfi í samræmi við þarfir. Það muni leiða til þess að færri muni velja að búa í Reykjavík og muni þess vegna flytjast til annarra sveitarfélaga. „Aðalskipulagið byggir á þétt- ingu byggðar og að öll byggð verði á þéttingarreitum. Það er augljóslega áhugi skipulagshöfunda að borgin þróist með þessum hætti,“ segir Júlíus Vífill en bendir á að aðeins 4% borgarbúa vilji búa á þéttingar- reitum í miðborginni sem sýnir að borgarbúar séu ekki sammála þessari stefnu meirihlutans. Segir Júlíus að það sé áhyggjuefni að Reykvíkingum hafi aðeins fjölgað um 6% á undanförnum 10 árum en um 27% í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. „Deiliskipu- lag í miðri borg þarf að taka tillit til svo margra þátta. Á þéttingar- reitum þarf að haga skipulagsvinnu og framkvæmdum með öðrum og miklu kostnaðarsamari hætti en í nýjum hverfum. Borgin á ekki að bjóða einvörðungu þessa tegund af uppbyggingu til ársins 2030 eins og aðalskipulagið gerir ráð fyrir. Það gengur ekki upp og er andstætt eðlilegri borgarþróun. Aldurssam- setning borgarbúa verður óeðlileg og þá einnig samsetning útsvars- greiðenda í Reykjavík. Þar af leiðir að það verða færri til að halda uppi grunnþjónustunni,“ segir Júlíus Vífill. „Ég vona að meiri umræða verði um fjármál borgarinnar og nú er fjárhagsáætlun á dagskrá og verður til umræðu í borgarstjórn seinna í mánuðinum,“ segir Júlíus Vífill. Segir hann að núverandi meiri- hluti borgarstjórnar taki ekki þátt í pólitískri umræðu í fjölmiðlum sem hljóti þó að vera skylda stjórnmála- fólks að gera. Hann hafi áhyggjur af halla borgarsjóðs.„ Frá því að þessi meirihluti tók við hefur verið halli á rekstri borgarsjóðs en því var öfugt farið á síðasta kjörtímabili,“ segir Júlíus Vífill. Segir Júlíus að skilvirk stjórnun og gott utanumhald séu nauðsynleg til að bæta borgar- reksturinn. „Við þurfum að vera sérstaklega á verði á kosningavetri að fjármálin fari ekki úr böndunum eins og dæmi eru um í aðdraganda kosninga,“ segir Júlíus Vífill. Forréttindi að starfa sem borgarfulltrúi Júlíus Vífill telur það vera forréttindi að starfa sem borgarfulltrúi og hef- ur mikinn áhuga á því að bæta borg- ina og hafði til dæmis frumkvæði að því að breyta áherslum á gamla hafnarsvæðinu. Gömlu verbúðirnar sem áður höfðu verið notaðar sem geymslur hefur nú verið breytt í leiguhúsnæði sem nýtur sín mjög vel sem verslunarhúsnæði, gallerí og veitingastaðir. Glöggt má sjá að þær breytingar hafa haft mjög góð áhrif á umhverfið og er Júlíus Vífill ánægður með niðurstöðuna. „Ég hef gaman af því að minnast þess að mörgum fannst það ekki góð hugmynd að nýta verbúðirnar með þessum hætti en ég var sannfærður um þetta verkefni og vildi leigja út verbúðirnar fyrir lifandi starfsemi og mér finnst mjög gaman að sjá hvernig það hefur gengið og hversu góð áhrif það hefur á annan rekstur þarna í kring og bæjarlífið. Við eig- um að stefna að því að sá andi sem þarna hefur skapast verði ráðandi annars staðar á hafnarsvæðinu,“ segir Júlíus Vífill. Megináherslur Júlíusar Vífils liggja í því að skapa tækifæri fyrir ungar fjölskyldur og telur hann að það sé eitt af skyldum höfuðborgar- innar að skapa ungu fólki aðstæður sem gera þeim kleift að fjárfesta í húsnæði. Einnig segir Júlíus að brýn þörf sé fyrir að bæta húsa- leigukerfið. Mikill fjölskyldu- og listamaður Júlíus Vífill er mikill fjölskyldumað- ur en hann á fjögur börn. Á sínum yngri árum stundaði hann lögfræði en einnig lagði hann stund á óperu- söng við erlenda háskóla og dvaldist hann til dæmis í Bologna á Ítalíu með konu sinni, Svanhildi Blöndal presti og hjúkrunarfræðingi. „Við kynntumst heima þegar ég var í lögfræðinni en við fórum svo til Bologna á Ítalíu þar sem við bjuggum. Okkur tókst að safna peningum fyrir eldgömlum bíl og þá gátum við keyrt á kvöldin til Feneyja en veturnir þar eru miklu rómantískari en sumrin,“ segir Júlíus Vífill. Hann starfaði einnig sem leiðsögumaður fyrir Íslendinga á Ítalíu á þessum tíma og segir að dvölin á Ítalíu hafi verið eins og löng brúðkaupsferð. Áhugi Júlíusar Vífils á óperusöng vaknaði þegar hann var í mennta- skóla.„ Ég söng með mörgum kórum og áhuginn var mikill en svo kom í ljós að ég gat eitthvað sungið. Ég tók inntökupróf við tónlistarhá- skóla á Ítalíu og Austurríki og var svo heppinn að fljúga inn í óperu- deildirnar. Síðan starfaði ég hér heima í sjö ár við að syngja óperur en það var að sjálfsögðu ekki aðal- starfið. Ef maður ætlaði að starfa sem söngvari á þeim tíma þurfti að hafa eitthvað annað starf með,“ seg- ir Júlíus Vífill sem vann um 20 ár sem framkvæmdastjóri í fjölskyldu- fyrirtækinu Ingvari Helgasyni hf. „Þetta var mjög skemmtilegur tími en það er bara þannig að það er ekki hægt að gera allt. Það er til dæmis mjög erfitt að vinna allan daginn og ætla svo að standa á sviði og syngja að loknum starfsdegi,“ segir Júl- íus. Hann hefur þó haldið góðum tengslum við tónlistarheiminn, set- ið í stjórnum og komið náið að tón- listarmálum í gegnum tíðina. „Ég veit hvað tónlist getur verið dýrmæt fyrir ungt fólk í námi og þess vegna setti ég af stað átaksverkefni þegar ég var formaður menntaráðs þar sem tónlistarskólarnir komu með starfsemi sína inn í grunnskólana og þannig nýttist tími nemenda betur og þeir fengu tækifæri til að kynnast tónlist,“ segir Júlíus Vífill. „Svo stækkaði fjölskyldan og önnur störf tóku við. Það er samt engin eftirsjá að hafa stigið til hlið- ar. Þetta var mjög skemmtilegt og ég kynntist svo mikið af áhugaverðu listafólki þannig að maður býr að þessari reynslu sem gagnast manni hvar sem er, ekki síður í pólitík en annars staðar. Það er gaman að hafa getað leyft sér þetta á sínum tíma og haft tækifærið, tekið námslán og farið út,“ segir Júlíus Vífill. „Þegar ég var úti í Bologna hringdi þáverandi þjóðleikhússtjóri í mig og sagði mér að það vantaði tenór í sýningu og hvort að ég gæti komið heim. Ég var alveg orðinn blankur svo að ég sló til og kom...., en ef slík della dytti í mig í dag að hlaupa til og taka þátt í sýningu, þá myndi ég taka mér nokkra mánuði til þess að koma mér í form,“ segir Júlíus og hlær. „Þó að ég sé tenór þá myndi ég vilja syngja bassa. Ekki að ég geti sungið bassa, en bassahlutverkin eru svo skemmtileg. Ég myndi til dæmis vilja syngja grínhlutverk fyrir bassa í óperum eftir Donizetti og Rossini bara því að það er svo skemmtilegur leikur í þeim og sprellandi húmor,“ segir Júlíus Vífill borgarfulltrúi, lögfræðingur og óperusöngvari sem stefnir að því að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is VERKSÝN Námskeið í undirbúningi viðhaldsframkvæmda fyrir húsfélög Verksýn ehf. býður forsvarsmönnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Á námskeiðinu, sem tekur eina kvöldstund, verður farið yr ferli viðhaldsframkvæmda á ölbýlishúsum. Námskeið verða haldin á þriðjudagskvöldum í október og nóvember, í húsakynnum Verksýnar ehf. að Síðumúla 1 í Reykjavík. Námskeiðin eru opin öllum stjórnar- mönnum húsfélaga, þeim og húsfélögunum að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta skráð sig á námskeið með tölvupósti á netfangið verksyn@verksyn.is eða í síma 517-6300. Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhær sig í viðhaldi og endurnýjun fasteigna. Fyrirtækið hefur sinnt ölda verkefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu í mannvirkjagerð og viðhaldi fasteigna. Verksýn ehf l Síðumúla 1 l 108 Reykjavík l www.verksyn.is Tónagull Tónlistarnámskeið fyrir ung börn hefjast 21. september www.tonagull.is Netskráning á É g hef haft mikla ánægju af því að starfa í stjórnmálum en skemmtilegast er að sjá árangur verka sinna. Þetta hefur verið skemmtilegur og gefandi tími en það á auðvitað enginn neitt í stjórnmálum. Þú vinnur fyrir opnum tjöldum og leggur allt í dóm þeirra sem ráða hvar þú verður á framboðslista og síðan er það dómur kjósenda sem ræður í kosningum. Ég get ekki annað en verið ánægður með það sem ég hef gert í borgarmálum. Ég vona að fólki líki það og ég er tilbúinn til að gefa kost á mér til næstu fjögurra ára,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi, lögfræðingur og óperusöngvari sem býður sig fram í oddvitasæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins sem mun fara fram í nóvember næstkomandi. Júlíus Víf- ill hefur starfað í áratugi sem fram- kvæmdastjóri, sem lögmaður og sem óperusöngvari og segir hann að öll reynsla skipti miklu máli. „Ég hef verið svo heppinn að hafa fengið tækifæri til þess að starfa á mjög ólíkum vettvangi í gegnum tíðina og ég held að sú reynsla skili sér áfram,“ segir Júlíus. Skipulagsmál ráða þróun borgarinnar Júlíusi eru menntamál, skipulags- mál og fjárhagur borgarinnar ofarlega í huga. Hann boðar aðhald í rekstri og segir að nýta þurfi fjár- muni skattgreiðenda betur. Hann telur nauðsynlegt að breyta aðal- skipulagi og telur óraunhæft að Reykjavíkurflugvöllur fari eftir rúmlega tvö ár. „Ég var formaður menntaráðs og ég þekki vel að það þarf að fara varlega með peningana. Þetta eru um 34 milljarðar sem fara í menntamálin á næsta ári og við verðum að gera kröfu um að hver króna nýtist,“ segir Júlíus. Hann segir borgina skorta skýra stefnu og að það sé gagnrýnisvert að nú- verandi borgarstjóri taki ekki þátt í daglegum rekstri. „Óháðir sérfræð- ingar sem gerðu úttekt á stjórnsýslu borgarinnar gagnrýndu að borgar- stjóri kýs að sinna aðeins hluta af Júlíus Vífill telur það vera forréttindi að starfa sem borgarfulltrúi. „Ég hef verið svo heppinn að hafa fengið tækifæri til þess að starfa á mjög ólíkum vettvangi í gegnum tíðina og ég held að sú reynsla skili sér áfram,“ segir hann. Ljósmynd/Hari Skapa þarf góð tækifæri fyrir ungt fjölskyldufólk Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi segir að enginn eigi neitt í stjórnmálum og segir starf sitt hafa verið gefandi og skemmtilegt. Hann vonar að meiri umræða verði um fjármál borgarinnar og segir að framtíð hennar ráðist að miklu leyti af aðalskipulaginu á næstu áratugum. Júlíus stefnir á að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. 12 viðtal Helgin 18.-20. október 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.