Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.10.2013, Side 23

Fréttatíminn - 18.10.2013, Side 23
www.kia.com ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3- 22 17 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum Má bjóða þér að kynnast fjölskyldunni frá cee’d? Hún samanstendur af cee’d og cee'd Sportswagon, sem er rúmbetri og hentar því vel þar sem þörf er á meira rými fyrir farangur. Svo er það töffarinn í fjölskyldunni, pro cee’d. Bílarnir eru allir einstaklega sparneytnir, eyða frá 4,1 l/100 km. 7 ára ábyrgð er á nýjum Kia cee’d líkt og á öllum nýjum Kia bílum. Komdu við í sýningarsal Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum okkar og kynntu þér skemmtilega fjölskyldu. Við tökum vel á móti þér. Komdu og reynsluaktu frábærum bíl Verð frá 3.370.777 kr. 1,4 dísil, beinskiptur 180.000 kr. kaupauki fylgir nýjum Kia cee'd - fyrstir koma fyrstir fá Vetrardekk og 100.000 kr. eldsneytiskort Góð fjármögnun í boði Hiti í stýri er staðalb únaður í öllum Kia cee’d Sparneytinn Kia cee’d í ábyrgð til 2020 hafa þetta svona almennt því þetta á við svo margt.“ Enn berast fregn- ir um úrsagnir úr Þjóðkirkjunni og telur Sigurvin að margar ástæður liggi þar að baki. „Ég held að kirkjan hafi reynst sjálfri sér verst. Í hvert skipti sem samfélagið upp- lifir að kirkjan hafi brugðist hlut- verki sínu þá stendur fólk upp og segir sig úr henni. Við höfum séð það í þessum erfiðu málum eins og til að mynda Biskupsmálinu. Ég er ekki viss um að gjörðir Ólafs Skúlasonar hafi haft úrslitaáhrif um reiðina í samfélaginu heldur vegna þess að Kirkjan reyndi að breiða yfir og fela það sem hafði gerst í stað þess að takast á við það opinskátt. Ég hef trú á kirkj- unni og á að sátt muni nást um samskipti hennar við opinberar stofnanir með auknum faglegum vinnubrögðum af hálfu kirkjunnar og skýrum ramma.“ Frjálslyndir múslimar Síðasta vetur var enn á ný rætt um réttmæti leikskólaheimsókna í kirkjur og gagnrýndi ósátt móðir að sonur hennar fengi engan val- kost í leikskólanum þegar hin börnin heimsóttu Neskirkju þar sem Sigurvin starfaði þá. „Kirkjan hefur stundum litið á það sem sjálf- sagt mál að hún sé í hinu opinbera rými en ég tel að það þurfi skýrar leikreglur. Hvað þessar leikskóla- heimsóknir í fyrra varðar þá átti ég aldrei samskipti við móðurina en gengið hafði verið frá því milli leik- skólans og kirkjunnar að þar ríkti fullkomið traust. Við kröfðumst þess ekki að börnin færu með faðir- vorið eða signdu sig í kirkjunni. Það eru alltaf börn í hópnum sem koma frá öðrum hefðum og við þurfum að virða það. Það er síðan alltaf ákveðinn hópur foreldra sem vill ekki að börnin sín fari í kirkju og það er bara eðlileg krafa. Það má ekki jaðarsetja þau börn og í boði þarf að vera mannsæmandi valkostur sem viðheldur reisn allra. Á meðan leikreglurnar eru ekki skýrar eru alltaf hætta á að fólk stígi á einhverjar tær. Ég held að það jákvæða sem kemur út úr þess- ari umræðu sé að leikreglurnar skýrast, sérstaklega þegar kemur að börnum, því dýrmætasta sem við eigum. Það gerir enginn mála- miðlanir með börnin sín.“ Raunar hafa sumir foreldrar komið honum skemmtilega á óvart. „Innflytj- endur af öðrum trúarbrögðum en kristni – búddistar og múslimar – hafa margir hverjir verið ófeimnir við að senda börnin sín í barna- starfið. Þeir vilja þá einfaldlega að barnið þeirra sé í trúarlegu starfi og að kristin kirkja sé stofnun í samfélaginu sem nýtur trausts. Þetta hefur komið mér á óvart. Ímyndin af múslimum er að þeir séu allir kassalaga og bókstafstrúar en mín reynsla af starfinu í Nes- kirkju er að múslimar sumir hverjir séu jafnvel opnari og frjálslyndari en kristnir.“ Karllæg Biblía Sigurvin myndi þó sannarlega teljast frjálslyndur. Auk þess að halda Regnbogamessuna, stóð hann nýverið fyrir Geðveikri messu í Laugarneskirkju og þar sagði Heiðar Ingi Svavarsson, sem einnig var í viðtali hér í Frétta- tímanum, frá glímu sinni við geð- hvörf. Síðasta sunnudag ræddi Sigurvin síðan um ástarsögur. „Ég talaði um hvernig við segjum ást- arsögur í samtímanum og hvernig klámmenning og raunveruleika- sjónvarp hafa áhrif á skynjun okkar. Við erum sköpuð til tengsla en svo margt í menningunni okkar bendir til að við séum með brotin tengsl. Ég sagði ástarsögu úr Rut- arbók úr Gamla testamentinu sem er svo fullkomlega róttæk því hún ögrar gildum þess tíma. Biblían á það til að vera heldur karllæg, svo við tölum bara hreint út, og þessi litla saga er falin milli Dómarabókar og Samúelsbóka sem eru karllægar sögur af valdastétt Ísraels. Þetta er sagan af Rut, móabískri konu, en þær eru í öðrum bókum testamentisins taldar lauslátar og þar að auki voru lög gegn því að giftast útlendingum, sérstaklega konum. Seinni tíma fræðimenn telja að þessi bók hafi einmitt verið skrifuð af konu. Sagan fjallar um konur sem glíma við fátækt og hungursneyð og tengsl þeirra við samfélagið sitt. Þetta endar svo með því að Rut giftist, verður formóðir Davíðs konungs og síðar Jesú. Hún fær því heiðurssess þó hún passi hvergi inn í. Það rímar kannski við þessa guðfræði að fá heiðurssess þó maður passi hvergi inn í.“ Sonurinn með ADHD Sigurvin leggur áherslu á að guð- fræðin og erindi kirkjunnar þurfi að mótast af raunverulegum aðstæðum fólks. Næsta sunnudag verður messan tileinkuð ADHD. Það hýrnar yfir Sig- urvini að segja frá henni. „Við ætlum að greina Jesú með ADHD. Við ætlum að senda út fréttatilkynningu þar sem við segjum frá því að Jesú hafi verið afgerandi ofvirkur og hvatvís með snert af athyglisbresti. Guðsþjónustan verður mjög óvenjulega og við ætlum að vaða úr einum sálmi í annan eins og hvatvísir og ofvirkir gera. Auðvitað er þetta til gamans gert en það fellur inn í guðfræðihefð að leita að þáttum í fari Jesú sem maður tengir við. Það hafa konur gert, það hafa samkyn- hneigðir gert og það hafa svartir gert. Að þessu sinni ætlum við að lyfta upp málefnum ADHD-samtakanna þar sem ég er raunar gjaldkeri. Sonur minn er með ADHD og ég hef þurft að standa vörð um hann í skólakerfinu. Við ætlum að mæta fordómum í sam- félaginu en fullorðnir með athyglis- brest eru sérstaklega útsettir fyrir þeim því lyfin sem hjálpa þeim eru einnig notuð á fíkniefnamarkaðnum. Skólakerfið gerir líka oft svolítið ráð fyrir að allir séu normal. En þetta er sumsé innlegg kirkjunnar til að vekja athygli á góðum málefnum, að halda þessar óhefðbundu messur og opna dyr kirkjunnar fyrir öllum. Við erum jú öll jöfn.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Þetta starf snýst um fólk og fólk er uppáhalds – að vinna með fólki og ganga með því. viðtal 23 Helgin 18.-20. október 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.