Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 38
Erindisbréf til árgangsbræðra
K
Konur og karlar sitja yfirleitt saman
til borðs og borða sama matinn.
Smekkur kynjanna er þó að hluta til
misjafn, að því hef ég komist bæði
heima og á vinnustað. Konur nefna
það gjarna kallamat, með hæfilegri
fyrirlitningu, þegar karlar gleðjast
eins og börn yfir bjúgum, kjötboll-
um, kótelettum í raspi, rauðkáli
og grænum baunum, að ógleymdu
snitseli, sem þó á ekkert skylt við
seli sem undirritaður borðaði sem
smaladrengur í sveit fyrir margt
löngu. Konurnar sækja, samkvæmt
sömu rannsóknum, meira í léttari
og líklega nútímalegri fæðu þar sem
kjötbollur, sperðlar og raspaðar kóte-
lettur koma hvergi nærri en fersku
grænfóðri af öllu tagi er gert hátt
undir höfði.
Vegna þessa eiga karlar það til að
hópa sig saman, gefist til þess tæki-
færi, og þjóna lund sinni og maga
með einföldu fæði þar sem ferskt
grænmeti eða ávextir koma lítt við
sögu nema hugsanlega sem lime-
sneið í G&T fordrykk. Eftirminnileg-
asta veisla þessarar tegundar sem
pistilskrifarinn hefur tekið þátt í var
haldin heima hjá góðum félaga þegar
konur okkar beggja – og fleiri –
héldu á samkomu úti í bæ. Þær halda
hópinn og hittast reglulega sér til
yndisauka. Húsbóndinn á því heimili
boðaði okkur, nokkurn hóp karla, til
kvöldverðar á meðan og hafði und-
irbúið hann vel, heldur laumulega þó
gagnvart eiginkonu sinni. Sú prýðis-
kona kann engan veginn að meta
svið, þann þjóðlega rétt, ekki einu
sinni lyktina af þeim krásum. Því
sagðist okkar maður ætla að skella
í pitsu fyrir okkur félagana meðan
virðulegar frúrnar brygðu sér af bæ
og ættu þar góða stund saman. Hon-
um var hins vegar nokkuð tíðförult
út í bílskúr á meðan frúin hafði sig
til, lakkaði neglur, málaði augnaum-
gjörð og setti lit á varir. Í skúrnum,
athvarfi sínu, hafði hann nefnilega
sett pott á prímus og lét svið malla,
að minnsta kosti haus á mann.
Kátt var í kotinu á meðan frúrnar
nutu menningarinnar. Búnaður var
allur einfaldur hringinn í kringum
matarborð félagans, kjammi á hvers
manns disk, rófustappa og hnífur til
að gera að tungu, auga og hnakka-
spiki. Það eina sem segja má að
hafi verið stílbrot miðað við fyrri
tíma sviðaveislur var rauðvínsdrei-
till með kræsingunum. Sú nýbreytni
skaðaði ekki. Svolítið var svipur-
inn á húsfreyju undarlegur þegar
hún kom heim í pitsuafganginn, í
fylgd vinkvenna sinna, en það má
eiginmaður hennar eiga að hann var
herramennskan uppmáluð þegar
hann bauð henni undanbragðalaust
kjamma.
Fleiri konur halda hópinn og hafa
gert í áratugi. Þar á meðal eru skóla-
systur úr menntaskóla en rekstur
saumaklúbba þeirra hefur verið ár-
angursíkur í áratugi. Við, skólabræð-
ur þeirra, höfum síður sótt í sam-
eiginlegt klúbbastarf en látið okkur
nægja að hittast – með meyjunum – á
fimm ára fresti. Við svo búið má hins
vegar ekki standa öllu lengur. Við
erum að komast á virðulegan aldur
og því þótti sjálfkjörnum foringja
hópsins, þrautreyndum bankamanni,
ástæða til að kalla saman bræðra-
hópinn til hátíðarfundar í kvöld – og
bjóða upp á ekta kallamat nú í slátur-
tíðinni. Í erindisbréfi til árgangs-
bræðranna kom fram að haldið yrði
haustblót fyrir þessa vösku sveit sem
gert hefur sig gildandi víða í samfé-
laginu allt frá útskriftardegi. Boðað
var að sláturtíðinni fylgdi ýmislegt
góðmeti sem nútímakonur bæru ekki
á borð fyrir bændur sína. Þetta leyfði
okkar maður sér að segja í bréfinu,
sem eingöngu vær ætlað körlum,
enda var það ekki fyrr en löngu eftir
útskrift okkar úr menntaskólanum
að sá siður fór að tíðkast að einhverju
gagni að karlar bæru mat á borð til
jafns við konur.
Það eina sem lofað var um form
blótsins var að það færi fram sam-
kvæmt sveitasiðum og venjum til
forna, að menn skvettu svolítið í sig
fyrir matinn og hefðu síðan öl og
snaps með honum. Matseðill var
ekki tíundaður frekar – enda óþarft.
Foringjanum er fyllilega treystandi
til að velja réttina. Trúlega verður
málsverðurinn heldur í þyngri
kantinum, að minnsta kosti að mati
kvenna, og víst er að hvorki þvælast
fyrir gúrkur né tómatar, né annað
það sem nýtískulegra er, káltegundir
alls konar og salatblöð á beði. Blóm-
kál, blöðrukál, grænkál, kínakál og
jafnvel spergilkál bíður betri tíma,
þótt hið síðastnefnda þyki einkar gott
fyrir blöðruháls karla – og er víst sá
háls sem angrar marga karla þegar
þeir taka aðeins að reskjast. Sama
gildir um kletta- og jöklasalat, auk
gulróta og spínats, þótt hollt sé. Það
verður feitmeti sem ræður ríkjum
og það næsta sem hópurinn kemst
jurtaríknu þessa kvöldstund verður
trúlega rauðkál úr dós og Orabaunir
grænar.
Annað er ekki á dagskrá, ekki
frekar en í sviðaveislunni forðum.
Á því er engin þörf enda er reiknað
með því, samkvæmt fyrrnefndu
erindisbréfi, að einstaka menn
standi upp og flytji fram gamanmál
eða bresti í söng af tómri hamingju.
Þannig var það að minnsta kosti
í heimilissamkvæminu þegar við
beittum hnífnum og skárum brostin
lambsaugun úr tóttunum, bútuðum
niður tunguvöðvann, sneiddum
hnakkaspikið frá eyra – og blönd-
uðum saman við rófustöppuna. Þá
skorti ekki gamanmálin, jafnvel
svo að halda þurfti aftur af sumum
svo þeir færu ekki að kveða rímur.
Það eru takmörk fyrir öllu, jafnvel á
hátíðarstundum.
Listamennina vantar ekki í hóp
þeirra sem leiða saman hesta sína
þegar kvölda tekur þennan föstudag-
inn, það einvalalið gleðimanna sem
kætast mun yfir grænmetislausu
krofi, kýrketi, bjúgum og bauta.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
BORÐ
STOFU
dagaR
aF BORÐSTOFU
húSgögnUm
Um helgina
aFSl.5020
BORÐSTOFUSTólaRmikiÐ úRval
veRÐ FRá 3.500 kR.
24.500 kR.
TilBOÐSveRÐ TilBOÐSveRÐ TilBOÐSveRÐ TilBOÐSveRÐ TilBOÐSveRÐ
29.000 kR. 16.900 kR. 24.500 kR. 18.900 kR.
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
38 viðhorf Helgin 18.-20. október 2013