Fréttatíminn - 18.10.2013, Blaðsíða 68
Í takt við tÍmann kolfinna nikulásdóttir
Dreymir um að eignast Segway-hjól
Kolfinna Nikulásdóttir er 22 ára tónlistarkona og starfsmaður í Hinu húsinu. Hún treður upp með hljómsveit-
inni Amaba Dama á Iceland Airwaves. Kolfinna drekkur kaffi á Kaffivagninum og langar í Segway-hjól.
Kolfinna vakti athygli á dögunum
þegar hún var ein þeirra sem komu
fram á umtöluðu rappkvennakvöldi.
Auk þess er hún meðlimur í
reggísveitinni Amaba Dama sem
kemur fram á Iceland Airwaves í
þarnæstu viku. „Við höfum verið
að æfa á fullu
og semja ný lög
fyrir plötu sem
við vinnum að.
Svo höfum við
verið að spila úti
um allt til að forma þetta band, verða
þétt saman,“ segir hún. „Það er mikil
ástríða í gangi og þetta er ógeðs-
lega gaman. Það er sál og kærleikur
í reggímúsík, einhver dýpri tilfinn-
ing.“
Staðalbúnaður
Öll föt sem ég á eru notuð. Ég hef
það ekki í mér að kaupa nýtt ef það
er barnablóð á því. Áður fyrr gekk ég
oft í rifnum fötum en ég er reyndar
hætt því, mér finnst það ekki lengur
smart. Fötin sæki ég til að mynda í
búningageymslur í leikhúsunum, þar
er góss og gersemar. Svo hef ég lagt
það í vana minn að sækja mér föt í
óskilamunageymslur, ég á mikið af
óskilamunum héðan og þaðan.
Hugbúnaður
Ég geri nú ekki mikið af því að fara
á skemmtistaði lengur en þegar ég
gerði það fór ég oft á Áslák í Mos-
fellsbæ eða á Mónakó. En það er liðin
tíð. Nú fer ég á BSÍ til að tjilla og
spjalla við fólk og á Kaffivagninn. Þar
er gott að vera og þar fæ ég innblást-
ur. Annars er ég mestmegnis bara á
vinnustofunni minni og svo mæti ég
á hljómsveitaræfingar hjá litlu systur
minni. Uppáhaldsmyndin mín er
Kokkurinn, þjófurinn, konan hans og
elskhuginn hennar. Það er algerlega
ódauðleg mynd sem ég horfi reglu-
lega á. Annars horfi ég ekki mikið á
sjónvarp og alls ekki á þætti. Ég er
nefnilega með þá reglu að hafa ekki
tölvuna með upp í rúm.
Vélbúnaður
Síminn minn er Nokia 3110. Batteríið
á honum endist í heila viku. App?
Hvað er það?
Aukabúnaður
Það er misjafnt hvort ég elda eða
borða á veitingastöðum. Ég er mikið
fyrir að gera aspashlaup. Það er gul-
grænt á litinn, meinhollt og megr-
andi. Uppáhalds veitingastaðurinn
minn er Aktu taktu, það er svo
frábært starfsfólk þar. Ég er alltaf
svo glöð í hjartanu þegar ég er búin
að fara í bílalúguna þar en svo er líka
gott að sitja inni og njóta útsýnisins.
Ég fer allt labbandi eða á hjóli en
drauma ferðamátinn er Segway-hjól.
Ég hef sett stefnuna á að halda heilög
jól á Tenerife. Mig hefur lengi langað
að prófa að gera eitthvað í stíl við
samlanda mína.
appafengur
iTranslate
Appið iTranslate er
einfaldlega algjör
snilld. Eins og nafn-
ið bendir til þá er
þetta þýðingarapp
og möguleikarnir
eru ótrúlega marg-
ir. Þetta hefur lengi
verið eitt vinsæl-
asta þýðingarappið
fyrir iPhone en er
nú einnig fáanlegt
fyrir Android.
iTranslate þekkir
yfir 70 tungumál og
auðvitað er íslenska
þar á meðal. Eins
og gengur og gerist
með þýðingarfor-
rit eru alltaf ein-
hverjir hnökrar en
ef iTranslate er í
vafa gefur appið þér
aðgang að orðabók
þar sem nokkrir möguleikar
koma til greina. Þýðingarnar og
orðabækurnar eru gagnvirkar
þannig að notendur gefa þýðing-
um einkunn og leggja þannig sitt
til að bæta gæði appsins.
Ekki er aðeins hægt að fá
skriflega þýðingu heldur les app-
ið líka upp fyrir þig, og þá getur
þú valið hvort karl eða kona les
fyrir þig, og hversu hratt lesið er.
iTranslate hefur bæði skemmt-
anagildi, námsgildi og svo getur
þú notað það til að hafa samskipti
við fólk í útlöndum. Það gerist
varla betra.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Kolfinna kemur fram með Amaba Dama á Amsterdam föstudagskvöldið 1. nóvember. Auk
þess treður sveitin upp utan dagskrár í Lucky Records þriðjudaginn 29. október klukkan 16
og á Hlemmi Square miðvikudaginn 30. október klukkan 17. Ljósmynd/Hari
68 dægurmál Helgin 18.-20. október 2013