Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 4
Hafðu bílinn
kláran fyrir
veturinn!
Gæði, reynsla og gott verð!
reykjavík, Bíldshöfða 9
kópavoGur, Smiðjuvegi 4a, græn gata
Hafnarfjörður, Dalshrauni 17
reykjanesbær, Krossmóa 4, selfoss, Hrísmýri 7
akureyri, Furuvöllum 15, eGilsstaðir, Lyngás 13
www.bilanaust.is
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
verslanir
sjö
með mikið
vöruúrval
Hagnaður Landsbanka
22 milljarðar 22,3
milljarða
hagnaður
Fyrstu 9. mánuði 2013
Landsbankinn
S tofnun Vigdísar Finnbogadóttur, í samstarfi við sagnfræðistofnun Há-skóla Íslands, safnar nú sögum af Dönum á Íslandi í tengslum við rann-sókn sem stendur yfir. Auður Hauksdóttir, forstöðumaður stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur, segir að tvær ástæður séu fyrir því að sagnanna sé
leitað, annars vegar hafi komið í ljós að Danir nútildags kunni mun betri ís-
lensku en Danir hér áður fyrr, svo áhugi hafi vaknað á að rannsaka hvernig á
því stæði. Einnig er áhugi á því að kanna upplifun Dana af danskri menningu
og menningaráhrifum hér á landi fyrr á tímum. Horft er sérstaklega til tíma-
bilsins 1900-1970 vegna þess hve sá tími var mikill umbrotatími í íslenskri
sögu, að sögn Auðar. „Við höfum áhuga á því að heyra hvað Danir höfðu að
segja af upplifun sinni af því að búa hérna og hvernig þeir upplifðu íslenskt
samfélag á þessum tíma,“ segir Auður. Óskað er eftir hvers kyns
heimildum sem geta varpað á það ljósi, sendibréfum, póst-
kortum, ljósmyndum, dagbókum og þar fram eftir göt-
unum.
„Mikið hefur verið rætt um þau áhrif sem dönsk
tunga og menning höfðu hér á landi. Okkur langar
hins vegar að vita hvort þau áhrif séu eins mikil og
um hefur verið rætt, hvernig Danirnir sem bjuggu
hér upplifðu það. Við höfum tekið viðtal við tugi Dana
undanfarin fjögur til fimm ár sem við höfum skráð og
greint og afraksturinn er greinasafn sem kemur út í bók í
Danmörku á næstunni. Auk mín hafa Guðmundur
Jónsson prófessor og Erik Skyum-Nielsen,
lektor við Kaupmannahafnarháskóla, leitt
rannsóknarverkefnið „Á mótum danskrar og
íslenskrar menningar. Danir á Íslandi 1900-
1970“. Íris Ellenberg hefur einnig unnið
doktorsritgerð um viðfangsefnið, sem hún
ver í næstu viku,“ segir Auður.
Í dag, föstudag, verður undirritað sam-
komulag milli Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns, Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumál-
um og Sagnfræðistofnunar Háskóla
Íslands, um varðveislu og skráningu
gagna um Dani og danska menningu
á Íslandi. Heiti safnsins er DAN-
ÍS. „Við hvetjum fólk, sem á í fórum
sínum heimildir um Dani hér á landi
að afhenda gögnin þessu gagnasafni.
Þar verða þau skráð og varðveitt,“ segir
Auður.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Menning Stofnun VigdíSar finnbogadóttur
Safna sögum af
Dönum á Íslandi
Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur
og sagnfræði-
stofnun hÍ safna
nú sögum af
Dönum á Íslandi
fyrr á árum.
markmiðið er að
varpa ljósi á upp-
lifun Dananna af
dönskum menn-
ingaráhrifum
hér á landi. Fólk
er hvatt til að
leggja nýjum
gagnagrunni
lið með því að
afhenda sendi-
bréf, ljósmyndir
og þvíumlíkt sem
varpað getur
ljósi á upplifun
Dananna.
Veður föStudagur laugardagur Sunnudagur
Að meStu úrkomuLAuSt og kóLnAr
fyrir norðAn og AuStAn.
HöfuðborgArSvæðið: Þurrt, en
SlyDDuél lÍkleg SÍðDegiS.
LéttSkýjAð og víðASt Hægur vinDur.
nokkurt froSt tiL LAnDSinS.
HöfuðborgArSvæðið: hæglátt Veður
og léttSkýjað. FroStlÍtið.
Heiðríkt A-tiL. SíðDegiS, SnjókomA
og SíðAr rigning v-tiL.
HöfuðborgArSvæðið: Þykknar upp.
SlyDDa og Snjór, en rigning um kVölDið.
Laugardagur – fremur
stillt og fallegt
Hitasveiflurnar hafa verið öfgakenndar
í veðrinu að undanförnu og lítið lát á.
kólnar fram að helgi og á laugardag
er spáð hæðarhrygg yfir landinu. Með
honum birtir upp um land allt.
Það verður því fyrirtaks úti-
vistarveður og um að gera að
teyga í sig lága vetrarsólina
yfir miðjan daginn, en njóta
stjörnuskins. Stendur ekki
lengi, því að sunnudag
dregur upp ský í vestri og
fer að rigna um síðir
1
-1 -4
-5
0
-1
-4 -6 -8
-5
1
-1 -5 -9
-5
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
„Við höfum áhuga á því að heyra hvað
Danir höfðu að segja af upplifun sinni af
því að búa hérna og hvernig þeir upp-
lifðu íslenskt samfélag á þessum tíma,“
segir auður hauksdóttir, forstöðu-
maður stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur.
Borgarstjórn efnir til samráðs við íbúa
og hagsmunaaðila um tækifærin sem
felast í landsvæðinu í gufunesi. Svæðið
býður upp á ótal möguleika til útivistar
og afþreyingar, nýtingarmöguleika á
svæði gömlu öskuhauganna og á svæði
áburðarverksmiðjunnar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá borginni. Í kringum
gamla gufunesbæinn hefur þegar verið
byggð upp myndarleg tómstundaað-
staða, með leiktækjum, strandblaksvelli,
frisbígolfaðstöðu, klifuraðstöðu og ýmsum
leiktækjum. „Fram hafa komið hugmyndir
um að leggja 18 holu golfvöll á svæðinu,
ylströnd, aðstöðu fyrir ýmsar jaðarí-
þróttir og byggingu hótels í tengslum við
hafnaraðstöðu á svæðinu,“ segir Dagur
B. eggertsson, formaður borgarráðs.
Þessar hugmyndir eru meðal þess sem
taka þarf afstöðu til í samráði við íbúa og
hagsmunaaðila. Við sjóinn mætti bjóða
upp skemmtilega möguleika til þróunar á
ýmis konar vatnasporti, t.d. á sjókajökum
og vatnaþotum, og ekki má gleyma þeim
möguleika að brúa milli gufuness og Við-
eyjar,“ segir Dagur. -sda
hagnaður landsbankans var 22,3 milljarðar króna eftir
skatta fyrstu níu mánuði ársins 2013. hagnaður á sama
tímabili árið 2012 nam 13,5 milljörðum króna. Þessi breyting
skýrist einkanlega af hækkun annarra rekstrartekna,
lækkun kostnaðar, af hækkandi virði hluta- og skuldabréfa,
af virðisbreytingu lána og hærri þjón ustutekjum, að því er
fram kemur í tilkynningu. -sda
Frjóar hugmyndir um nýtingu gufuness
4 fréttir helgin 22.-24. nóvember 2013