Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 8
er
komið
á kfc
fylgirmeð
öllum
barnaboxum
svooogott™
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 132743
„Það er nauðsynlegt fyrir framþróun að fjárfesta í nauðsynlegum tækninýjungum, ekki síst í því skyni að laða til okkar fært
starfsfólk og fylgja þeim spítölum eftir sem við viljum vera á pari við,“ segir Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurðlækn-
ingadeild Landspítalans.
Heilbrigðismál TækjaskorTurinn á landspíTalanum
Læknar safna fyrir róbot
Sérfræðilæknar á Landspítalanum fara fyrir söfnun til kaupa á svokölluðum aðgerðarþjarki,
róbot, sem nýtist til skurðaðgerða. Sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum segir að læknar
neyðist til að vekja athygli á tækjaþörfinni með þessum hætti og vonast til að geta safnað
helmingi af þeim 300 milljónum sem tækið kostar.
e iríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurð-lækningadeild, fer fyrir hópi lækna sem hrundið hafa af stað söfnun fyrir kaupum á svoköll-
uðum aðgerðaþjarki, eða róbot, sem nýtist til marg-
víslegra skurðaðgerða, svo sem vegna krabbameins í
blöðruhálskirtli og við aðgerðir á grindarholslíffærum
kvenna. Aðgerðir með þessari aðferð eru inngrips-
minni en ella, að sögn Eiríks, bati er skjótari og hægt
að hlífa betur nærliggjandi líffærum og viðkvæmri
starfsemi. „Í raun er um að ræða framlengingu á fingr-
um skurðlæknisins. Allar hreyfingar verða nákvæmari
og sýn skurðlæknisins á aðgerðarsvæðinu framúrskar-
andi. Þetta er dýrt tæki, kostar um 300 milljónir, en við
þurfum hins vegar einungis að hugsa um kostnaðinn
við tækið sjálft því við erum nú þegar með sérfræði-
lækna á Landspítalanum sem hafa reynslu af því að
nota þetta tæki,“ segir Eiríkur. Tæki sem þetta er að
finna á nær öllum háskólasjúkrahúsum á Norðurlönd-
unum og hefur verið í notkun í 10-15 ár. „Það er nauð-
synlegt fyrir framþróun að fjárfesta í nauðsynlegum
tækninýjungum, ekki síst í því skyni að laða til okkar
fært starfsfólk og fylgja þeim spítölum eftir sem við
viljum vera á pari við,“ segir Eiríkur.
Aðspurður hvort það sé eðlilegt að læknar og annað
heilbrigðisstarfsfólk þurfi að standa í því sjálft að safna
fyrir nauðsynlegum tækjabúnaði segir hann: „Þannig
gerast nú bara kaupin á eyrinni. Viðkomandi sérgrein-
ar neyðast til að vekja athygli á þörfinni með þessum
hætti. Við gerum það samt sem áður í samráði við yfir-
stjórn spítalans því það myndi ekki ganga ef allir færu í
einu í gang með tækjasöfnun fyrir tækjum sem hver og
einn telur þörf á,“ segir Eiríkur.
Stefnt er að því að safna helmingi upphæðarinnar og
mun Landspítalinn brúa rest. Eiríkur vonast eftir því að
tækið verði komið í notkun strax á næsta ári.
Sjá fréttaskýringu á síðum 32-37
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
ráðHúsið FjölbreyTT bókmennTadagskrá
Bókamessa í Bókmenntaborg
Bókamessa í Bókmenntaborg
verður haldin í þriðja sinn nú um
helgina, 23.-24. nóvember. Messan
verður sem fyrr í Ráðhúsi Reykja-
víkur þar sem útgefendur sýna bæk-
ur sínar og boðið verður upp á fjöl-
breytta bókmenntadagskrá.
Bókamessan verður opin frá
klukkan 12-18 bæði laugardag og
sunnudag. Höfundar lesa úr verkum
sínum, þekktar sögupersónur mæta
í heimsókn, boðið verður upp á lif-
andi tónlist, tískusýningu, förðun,
LEGO-smiðju, sögustundir, fræð-
andi erindi og umræður um nýjar
bækur. Gestir geta skorað á Gunnar
Helgason í fótboltaspili, spreytt sig
á að skrifa upp texta eftir handriti úr
fórum Árna Magnússonar, teiknað
brosmyndir – eða bara hreiðrað um
sig í lestrarhorninu og lesið. Meðal
annars verður hægt að kynna sér
fjölbreytt úrval lífsstílsbóka en þær
hafa verið valdar jólagjöf ársins 2013
af valnefnd Rannsóknarseturs versl-
unarinnar. Matreiðslubækur, sjálfs-
hjálparbækur og hannyrðabækur
verða kynntar á Ráðhúsganginum
alla helgina, að því er fram kemur í
tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Klukkan 16 báða dagana verð-
ur bókmenntadagskrá í Borgar-
stjórnarsalnum. Haukur Ingvars-
son fær til sín skáldin Guðmund
Andra Thorsson, Sindra Freysson
og Sjón til að ræða Hliðar karl-
mennskunnar í verkum sínum á
laugardag og skáldið og þýðandinn
Þórdís Gísladóttir fær til sín þýðend-
urna Ingunni Ásdísardóttur, Óskar
Árna Óskarsson og Rúnar Helga
Vignisson til að ræða Ást, dauða og
djöfulskap í þýðingum. Að þessu
sinni verða tveir erlendir höfundar
þýddra bóka ársins gestir mess-
unnar, þeir Carl Jóhan Jensen frá
Færeyjum og norski glæpasagna-
höfundurinn Jörn Lier Horst. -jh
8 fréttir Helgin 22.-24. nóvember 2013