Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 16
Siðfræðilegt álitamál sem verður að ræða opinskátt
Hvenær á að lækna fólk og hvenær á ekki að lækna fólk?
E iríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurðlækningadeild, vekur máls á áhugaverðri um-
ræðu í viðtali hér í Fréttatímanum í dag,
síauknum kostnaði í heilbrigðiskerfi
Vesturlanda, sem sliga mun samfélög
verði ekki brugðist við. Í nýútkomnu riti
OECD, Health at a Glance 2013, kemur
fram að í tveimur af hverjum
þremur ríkjum hafi heildarút-
gjöld til heilbrigðismála aukist
á milli ára. Aukningin var hins
vegar enn meiri á árunum fyrir
efnahagshrun.
Eiríkur segir að þjóðir verði
að bregðast við kostnaðar-
aukningunni með því að velja
hvað þær ætli ekki að gera.
„Við verðum að ganga heiðar-
lega fram hvað það varðar
að það er ýmislegt sem við
ætlum ekki að gera. Við verð-
um að taka afstöðu til þess
hvort við ætlum að veita sjúklingum
sem hafa í grunninn lélegar lífslíkur,
vegna veikinda eða hás aldurs, dýra
og flókna læknismeðferð. Við erum
nú þegar að forgangsraða í heilbrigð-
isþjónustu en læknar og hjúkrunar-
fólk þurfa að taka þessa umræðu, við
getum ekki sett þetta í hendurnar
á pólitíkinni,“ segir Eiríkur. „Við
þurfum að sækja fram en þetta getur
ekki bara verið opinn reikningur. Hið
sama er uppi á teningnum á öllum
Vesturlöndum, fólk er að eldast og
sjúkdómar eru farnir að láta á sé
kræla sem við þurftum áður fyrr ekki
að hafa áhyggjur af. Það verður æ
brýnna að ræða hvenær við ætlum
að aðhafast, hvar á að draga línuna.
Þetta er óhjákvæmileg umræða en
samfélagið stendur ekki undir enda-
lausum kostnaði,“ segir hann.
Það er rétt hjá honum að þetta
er umræða sem nauðsynlegt er að
taka. Vestræn ríki eru í raun orðin
fórnarlömb eigin velmegunar því með
hækkandi meðalaldri fjölgar til muna
sjúkdómum sem heilbrigðiskerfið
þarf að takast á við með sívaxandi
kostnaði. Ég er nú hvorki læknir né
siðfræðingur og treysti mér ekki til
þess að taka afstöðu í þessu siðferði-
lega álitamáli, hvenær á að lækna fólk
og hvenær ekki, en eins og Eiríkur
bendir á þurfa læknar og hjúkrunar-
fólk að ganga fram í því máli. Hann
bendir á að nú þegar fari fram for-
gangsröðun í heilbrigðiskerfinu.
Læknar og hjúkrunarfólk ákveða
hvenær hætta skuli læknismeðferð
og hefja beri líknandi meðferð, þegar
sjúklingar eru ekki að ná bata. Um-
ræðuna þarf hins vegar að víkka út
og taka opinskátt og heiðarlega, eins
og hann bendir á, því kostnaðurinn á
einvörðungu eftir að aukast enn meir.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Þetta er óhjákvæmileg umræða en samfélagið
stendur ekki undir endalausum kostnaði.
heimkaup.is
Smáratorgi 3 / 201 Kópavogi / 550 2700
Örugg
vefverslun
Sendum um
allt land
Hagstætt
verð
Hraðsendingheimkaup.is
SENDUM
FRÍTT HEIM
STRAX Í
KVÖLD
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
41
9
innan höfuðborgarsvæðisins.
Snyrtivörur með Tax Free*
afslætti hjá Heimkaupum
dagana 22.–25. nóvember.
Glæsilegt úrval af vörum
fyrir húðina og hárið.
Gerðu góð kaup fyrir
jólin á Tax Free dögum
á Heimkaup.is.
*Heimkaup greiða virðisaukaskatt en veita afslátt sem
nemur 20,3% af verði vörunnar. Tax Free afsláttur gildir
aðeins um snyrtivörur, dagana 22.–26. nóvember.
16 viðhorf Helgin 22.-24. nóvember 2013