Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.11.2013, Page 36

Fréttatíminn - 22.11.2013, Page 36
Við erum með skurð- stofur í fjór- um húsum en því til viðbótar með dauðhreins- unardeild í fimmta hús- inu, á Tungu- hálsi. Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is 3,6 L/100km í bLönduðum akStri C02 útbLáStur aðeinS 94 g Honda CiviC 1.6 dÍSiL kOStar frá kr. 3.840.000 Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn Samkvæmt What Car og Warranty direct hefur Honda verið valin áreiðanlegasti bílaframleiðandinn átta ár í röð. bí ll á m yn d: H on da C ivi c 1 .6 i-d te C e xe cu tiv e. Honda CiviC 1.6 dÍSiL 3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km Utanbæjar akstur Blandaður akstur Innanbæjar akstur CO2 útblástur 94 g/km komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil, með nýrri Earth dreams Technology dísilvél, sem býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts. Umboðsaðilar: bernhard, reykjanesbæ, sími 421 7800 bílver, akranesi, sími 431 1985 Höldur, akureyri, sími 461 6020 bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535 www.honda.is Honda CiviC 1.4 BEnSÍn - beinSkiPtur, kOStar frá kr. 3.490.000 Honda CiviC 1.8 BEnSÍn - SJáLfSkiPtur, kOStar frá kr. 3.840.000 Heilbrigðiskerfi á Heljarþröm hluti8. ekki hvernig hægt er að skella skollaeyrum við því sem fagfólkið segir. Tugir starfsmanna og er- lendra sérfræðinga hafa lagst yfir það að finna bestu lausnina á vanda spítalans fyrir þjóðina. Við gerum það ekki í okkar eigin þágu, heldur í þágu sjúklinganna, þjóðarinnar, og niðurstaðan er sú að best er að byggja nýtt meðferðarhús á Hring- braut. Auðvitað hefði verið best af öllu að byggja nýjan spítala frá grunni á einhverjum allt öðrum stað eins og Vífilsstöðum en taka varð inn í myndina þann kostnað sem hlytist af því að endurbyggja alla þá starfsemi sem þegar er til staðar á Hringbraut, svo sem ný- legan barnaspítala, og fleira,“ segir Helga. „Það þýðir ekkert að þrasa um staðsetninguna lengur. Niður- staðan af áralöngum rannsóknum er sú að það sé hagkvæmast að byggja við Hringbraut. Við erum ekki að tala um nýjan spítala, held- ur einungis um að koma upp nýju meðferðarhúsi þar sem hægt væri að bæta aðstöðu til skurðaðgerða til mikilla muna, svo og aðstöðu fyrir svæfingardeildir og gjörgæslu,“ segir hún. Þrengsli á vöknun Heilaskurðaðgerðinni miðar vel og allt fer fram samkvæmt áætlun. Skerma hefur þurft fyrir vetrar- sólina sem sker í augu og útsýnið hverfur og skurðstofan verður einungis miðlungs skurðstofa en án útsýnis. Heilaskurðlæknarnir til- kynna viðstöddum ánægðir að þeir hafi fundið æxlið og séu nú að fjar- lægja það. Aðgerðin heppnaðist og sjúklingurinn er því læknaður. Smám saman fækkar fólki á skurðstofunni. Þeir sem hafa lokið sínu hlutverki yfirgefa svæðið um leið. Sjúklingurinn er færður inn á vöknun um leið og hann hefur ver- ið búinn undir það. Í skýrslu vinnu- hóps um húsnæði skurðsviðs kem- ur fram að mikil óánægja sé meðal starfsfólks á vöknun með þrengsli og lélegar vinnuaðstæður. Búið sé að teikna upp lausnir en fátt sé um úrbætur í því takmarkaða rými sem nú er nýtt undir vöknun. Því felist allar raunverulegar lausnir í því að stækka eininguna um þrjú stæði líkt og lagt hefur verið til og metið er að kosti um 30 milljónir. Eftir að sjúklingur er vaknaður er hann færður yfir á eina af legu- deildum spítalans ef talið er að hann þurfi að dvelja yfir nótt. Eitt af helstu vandamálum skurðsviðs er svokallaður fráflæðisvandi. Á hverj- um tíma er fjöldi sjúklinga inniliggj- andi sem þarf ekki lengur á læknis- þjónustu að halda en er ekki nógu heilbrigt til að sjá um sig sjálft og bíður ýmist eftir plássi á hjúkrunar- heimili eða heimahjúkrun. Ein deildin stífluð til hálfs Ein legudeildin er nánast stífluð til hálfs því helmingur sjúklinga er á bið eftir úrræðum. Margir bíða á spítalanum í mánuð, jafnvel lengur, og fyrir vikið hægist á skurðaðgerð- um því engin rúm eru til að taka við þeim sem koma úr aðgerðum. Undanfarin ár hefur áhersla færst yfir á dag- og göngudeildarform og dregið hefur verulega úr innlögn- um yfir nótt. Þrátt fyrir það lengjast biðlistar, sérstaklega eftir aðgerð- um sem eru ekki lífshótandi, svo sem liðskiptiaðgerðum eða öðrum bæklunaraðgerðum. Sjúklingar eru misþolinmóðir að sögn tveggja hjúkrunarfræðinga sem starfa við svokallað innköllun, sem felst í því að búa sjúklinga undir aðgerð símleiðis. Fyrsta viðtal hjúkrunar- fræðings við sjúkling fyrir aðgerð fer því fram í gegnum síma. Eitt af þeim verkefnum sem skurðsviðið vinnur nú í er að breyta verkferlum með þeim hætti að jafna betur álag á starfsfólk deildanna og eru verkefnin því færð til eftir álagi og mönnun. Sérhæfð teymi starfa með hverri sérgrein enda vinna sérþjálfaðir hjúkrunarfræð- ingar og sjúkraliðar í teymum með ákveðnum skurðlæknum í tiltekn- um sérgreinum. „Allur mannafli mun nýtast betur þegar við erum komin í eitt húsnæði,“ bendir Helga Kristín á. Sýnt hefur verið fram á að tveir milljarðar muni sparast í rekstri Landspítalans árlega vegna breytts rekstarfyrirkomulags í einu húsnæði. Árlegur rekstrarkostn- aður spítalans er um 40 milljarðar og fyrirhugaður byggingar- og fjár- magnskostnaður við nýjan spítala er á bilinu 60-80 milljarðar, rúm- lega rekstrarkostnaður spítalans í eitt ár. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Skurðstofan er full af fólki og tækjum, þar eru fjórir sérfræðilæknar og fjöldi sérmenntaðra hjúkrunarfræðinga, auk hjúkrunarnema og læknanema. Hver og einn hefur sínu mikilvæga hlutverki að gegna. 36 fréttaskýring Helgin 22.-24. nóvember 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.